Kylfingar 19. aldar: Nr. 3 Allan Robertson – seinni hluti –
Allan Robertson bætti Old Course umtalsvert með því að stækka flatir vallarins, vegna aukins áhuga á golfinu. Fram og tilbaka flæði leiks um mjóa braut á Old Course leiddi að lokum til þess að búnar voru til stórar flatir, sem voru einstakar í Skotlandi; stundum hefir verið líkt eftir þeim í nútíma golfvallarhönnun. Fyrsta verk Allan í golfvallarhönnun, var að hanna 10 fyrstu holur á Carnoustie golfvellinum 1842, en við það verk naut hann aðstoðar Old Tom Morris. Samskipti Allan og Old Tom súrnuðu þegar Allan stóð Old Tom Morris að verki að spila með guttie golfboltanum, sem var nýr og ódýrari golfbolti og flýtti fyrir endalok á 100 ár Lesa meira
Sveit GR tekur þátt í Evrópukeppni klúbba
Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur hefur leik í Evrópukeppni klúbba í Tyrklandi og meðal keppenda eru eru 21 lið og mörg þeirra innahalda feiknasterka leikmenn og þónokkrir leikmenn eru með + 3 til + 4 í forgjöf. Árangur síðasta árs eða 2.sæti var besti árangur Íslenskra klúbba frá upphafi í þessari keppni. Undirbúningurinn hefur gengið vel fyrir utan það að golfsett og farangur skiluðu sér fyrst degi fyrir mótið sem setti strik í æfingar sveitarinnar á tveimur æfingarhringjum fyrir mótið. Íslensku sveitina skipa (mynd): Arnar Snær Hákonarson (Captain) Haraldur Franklín Magnús Guðmundur Ágúst Kristjánsson Brynjar Eldon Geirsson (Liðstjóri) Íslenska sveitin hefur leik um kl 9:00 í fyrramálið og leikur með liði frá Lesa meira
Keegan Bradley tók Grand Slam
Keegan Bradley horfði á Charl Schwartzel setja niður 4 fugla og sigra Masters í sjónvarpinu. Hann sá hvað Suður-Afríkumaðurinn (Schwartzel) getur í beinni á PGA Grand Slam í dag. Bradley sigraði með 1 höggs mun á Port Royal golfvellinum, og setti niður taugatrekkjandi 2 metra pútt á 18. holu og lauk keppni á sléttu pari (seinni hringinn) 71 höggi, samtals -4 undir pari. Parhringur PGA meistaramóts meistarans nægði til þess að verjast tilhlaupi frá Schwartzel, sem setti vallarmet í dag, spilaði á -6 undir pari, var á glæsilegum 65 höggum, samtals -3 undir pari Schwartzel sökkti 10 metra pútti á 5. holu og hóf röð 5 fugla í röð, en hápunktur þeirrar Lesa meira
Hvað er heitt og hvað afleitt í golfinu?
Í byrjun hverrar viku tekur Alan Shipnuck, golfpenni Sports Illustrated saman lista yfir það sem honum finnst heitt og afleitt í golfinu eftir mót helgarinnar … og eftir þessa helgi er af nógu að taka. Það sem vekur athygli þessa vikuna er fall Yani af nr. 1 á lista hans yfir það sem er heitt, í nr. 1 á lista þess sem honum þykir afleitt. En hér fer listinn í lauslegri þýðingu: HEITT: 1. Tom Lewis. Tom hinn ungi er stjarna Opna breska meðal áhugamannanna. Nú þegar hann er orðinn atvinnumaður þurfti hann ekki nema 3 stört á Evrópumótaröðinni til að landa fyrsta sigrinum á Portugal Masters í síðustu viku. Jeminn, Lesa meira
Manassero rifjar upp skemmtilegar minningar
Matteo Manassero rifjaði upp vikuna „sem allt breyttist” þegar hann sneri aftur til Club de Campo del Mediterráneo til þess að hefja titilvörn sína í Castelló Masters – en Castelló mótið hefst á morgun. Þessi 18 ára gamli Ítali varð yngsti sigurvegari Evróputúrsins fyrir 12 mánuðum þegar hann vann Castelló Masters með 4 högga mun á næsta mann aðeins 17 ára og 188 daga gamall. Manassero hafði þegar sannað hæfni sína með sigri á British Amateur Championship og hann hlaut silfurmedalíuna á Opna breska. En eðli þessa fyrsta sigurs Manassero vakti undrun áhorfenda því Manassero sýndi þroska umfram aldur sinn. Hann hlaut Sir Henry Cotton nýliðaverðlaunin, sem viðurkenningu á hæfileikum Lesa meira
PGA: Dagskráin fyrir 2012 keppnistímabilið kynnt
PGA Tour tilkynnti dagskránna fyrir keppnistímabilið 2012 í dag. Á dagskránni eru 45 opinber mót (sami fjöldi og í ár) og eru 37 þeirra hefðbundin keppnismót, 4 FedExCup mót og 4 mót á haustmótaröðinni (Fall series events). Örlitlar breytingar eru á dagskránni og styrktaraðilum, t.a.m. eru tveir nýir styrktaraðilar: Humana Challenge er styrkt af Clinton Foundation og fer fram á La Quinta í Kaliforníu og RBC er nýr styrktaraðili The Heritage mótsins á Hilton Head Island í Suður-Karólínu. „Dagskráin 2012 sýnir styrk íþróttagreinarinnar, þar sem við bjóðum upp á fjölbreytt mót, mótsstaði og styrktaraðila, sem bjóða upp á tækifæri fyrir keppendur sem áhangendur þeirra,“ sagði framkvæmdastjóri PGA Tour Tim Finchem Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Louis Oosthuizen – 19. október 2011
Það er Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen sem er afmæliskylfingur dagsins. Louis fæddist 19. október 1982 í Mossel Bay Suður-Afríku og er því 29 ára í dag. Færri vita fullt nafn Louis en það er Lodewicus Theodorus Oosthuizen og svo er uppnefni hans „Shrek”, sem kylfubera hans finnst óviðunandi en Louis hlær að. Louis gerðist atvinnumaður 2002 og hefir á ferli sínum unnið 8 sinnum, 1 sinni á PGA, 3 sinnum á Evróputúrnum og 6 sinnum á Sólskinstúrnum suður-afríska (tvö mótanna, sem Oosthuizen sigraði á voru sameiginleg mót Evrópumótaraðarinnar og Sólskinstúrsins). Þekktastur er Louis fyrir að sigra Opna breska í fyrra 2010. Louis er kvæntur Nel Mare og saman eiga þau dótturina Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi og lið Belmont Abbey urðu í 6. sæti á Will Wilson mótinu í Clemmons, Norður-Karólínu
Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR og Belmont Abbey, tók þátt í 3 daga golfmóti, The Will Wilson/Tanglewood Intercollegiate, sem fram fór dagana 16.-18. október í Clemmons, Norður Karólínu. Mótinu lauk í gær. Lið Belmont Abbey varð í 6. sæti. Arnór Ingi byrjaði glæsilega, var í 1. sæti eftir 1. dag á glæsilegu skori 68 höggum. Næstu tvo daga gekk ekki eins vel; Arnór Ingi spilaði á 77 höggum á 2. degi og 76 höggum í gær, lokadeginum, þ.e. var samtals á 221 höggi. Arnór Ingi lauk keppni með því að deila 17. sæti með öðrum (T-17) Skor Arnórs Inga taldi, en tveimur í liði Belmont Abbey gekk þó betur en honum; Lesa meira
Hver er kylfingurinn: Na Yeon Choi?
Na Yeon Choi sigraði á Sime Darby LPGA mótinu í Malasíu nú um helgina. Hver er þessi 5-faldi sigurvegari á LPGA? Na Yeon Choi (á kóreönsku: 최나연) fæddist 28. október 1987 í Seúl í Suður-Kóreu og er því 23 ára. Hún byrjaði að spila golf 10 ára og vann strax 1. mótið sitt árið eftir að hún byrjaði og lét fljótlega að sér kveða sem áhugamaður. Þegar hún var 17 ár vann hún ADT CaPS Invitational á kóreanska LPGA, vann frægðarhallarkylfinginn Se Ri Pak með 4 höggum. Na Yeon gerðist atvinnumaður skömmu þar á eftir í nóvember 2004. Alls hefir hún sigrað 10 sinnum sem atvinnukylfingur. T.a.m. vann hún mót á Lesa meira









