
Sveit GR tekur þátt í Evrópukeppni klúbba
Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur hefur leik í Evrópukeppni klúbba í Tyrklandi og meðal keppenda eru eru 21 lið og mörg þeirra innahalda feiknasterka leikmenn og þónokkrir leikmenn eru með + 3 til + 4 í forgjöf. Árangur síðasta árs eða 2.sæti var besti árangur Íslenskra klúbba frá upphafi í þessari keppni.
Undirbúningurinn hefur gengið vel fyrir utan það að golfsett og farangur skiluðu sér fyrst degi fyrir mótið sem setti strik í æfingar sveitarinnar á tveimur æfingarhringjum fyrir mótið.
Íslensku sveitina skipa (mynd):
Arnar Snær Hákonarson (Captain)
Haraldur Franklín Magnús
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Brynjar Eldon Geirsson (Liðstjóri)
Íslenska sveitin hefur leik um kl 9:00 í fyrramálið og leikur með liði frá Wales og Ítalíu fyrstu tvo keppnisdagana, en leiknir eru þrír hringir og telja tvö bestu skor sveitarinnar á hverjum hring.
Síðasti keppnisdagurinn er á laugardaginn 22. október
Völlurinn sem leikið er á:
Völlurinn er um 6500 m ,gríðarlega þröngur af teig og flatirnar eru litlar og bjóða ekki upp á mikið af mistökum. Liðið hefur því lagt upp með að reyna að halda boltanum í leik af teig og slá á miðja flöt og reyna að leika af yfirvegun fyrstu hringina í mótinu. Að öðru leiti er völlurinn í frábæru ásigkomulagi og veðurspáin er góð en það getur orðið hvasst samkvæmt veðurspá.
Hægt verður að fylgjast með stöðunni á heimasíðu mótsins
www.emct2011.com
Heimild: grgolf.is
- júní. 7. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía M. Jónsdóttir – 7. júní 2023
- maí. 19. 2023 | 19:00 GKS: GA tekur við rekstri Siglo Golf
- maí. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingjaldur Valdimarsson – 19. maí 2023
- apríl. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórey Petra ——– 18. apríl 2023
- apríl. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ragna Björk Ólafsdóttir – 17. apríl 2023
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1