Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 19:30

Haraldur Franklín spilaði best af liði GR á Evrópumóti klúbba

Sveit GR tekur þátt í Evrópumóti golfklúbba í National Golf Club, Antalya í Tyrklandi. Sveitina skipa þeir Arnar Snær Hákonarson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús. Eftir 1. keppnisdag er sveitin í 22. sæti af 29 klúbbum, sem þátt taka.

Sveit GR spilaði á samtals 14 höggum yfir pari.  Haraldur Franklín spilaði best af sveit GR, kom inn á 78 höggum, þ.e. + 6 yfir pari.  Arnar Snær og Guðmundur Ágúst spiluðu á 80 höggum.

Golf 1 óskar sveit GR góðs gengis á morgun!

Sjá má stöðuna á Evrópumóti klúbba með því að smella HÉR: