Afmæliskylfingar dagsins: Anna Jódís og Björgvin Sigurbergsbörn – 27. október 2011
Það eru tvíburarnir Anna Jódís Sigurbergsdóttir og Björgvin Sigurbergsson, sem eru afmæliskylfingar dagsins en þau eru fædd 27. október 1969. Bæði eru þau í golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Björgvin er golfkennari hjá GK og margfaldur Íslandsmeistari í golfi. Anna Jódís er með forgjafarlægstu kvenkylfingum Íslands. Golf 1 óskar afmæliskylfingum dagsins innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Carol Semple, f. 27. október 1948 (63 ára); Patty Sheehan, 27. október 1956 (55 ára); og Des Terblanche (Suður-Afríka) 27. október 1965 (46 ára). Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is Lesa meira
Viðtalið: Birgir Leifur Hafþórsson, GKG.
Um miðjan maí, þegar allt var að vakna til lífsins þetta herrans ár 2011 fór Golf 1 af stað með að taka viðtöl við íslenska kylfinga, þ.e. leggja fyrir þá á fjórða tug staðlaðra spurninga, með örlitlum frávikum í hvert sinn. Hér fer eitt viðtalanna, en viðmælandi er Birgir Leifur Hafþórsson, sem tekur þátt á 1. stigi PGA Q-school í Pinehurst, Norður-Karólínu, þessa dagana. Eftir 2. dag er Birgir Leifur í 11. sæti og enn lítur allt vel út með að hann komist á 2. stig úrtökumótsins. En hér eru spurningarnar og svör Birgis Leifs: Fullt nafn: Birgir Leifur Hafsteinsson. Klúbbur: GKG og GL. Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist Lesa meira
Graeme McDowell:„Átti minnstan þátt í þessu öllu“ – þ.e. skiptum Rory frá ISM til Horizon
Graeme McDowell átti ekki þátt í að nr. 3 í heiminum, Rory McIlroy skipti um umboðsskrifstofur, sagði sá sem á titil að verja á Andalucia Masters, í gær. Sigurvegari US Open (2011), Rory McIlroy skipti öllum að óvörum um umboðsskrifstofu þegar hann flutti sig um set frá International Sports Management (ISM), skrifstofu Andrew Chubby Chandler og á Horizon skrifstofuna í eigu Conor Ridge. „Ég hef heyrt að ég eigi að hafa hvatt Rory, en ég átti minnstan þátt í þessu öllu,“ sagði sigurvegari US Open 2010, Graeme McDowell, kvöldinu fyrir titilvörn sína í Valderrama (en hún hefst í dag). „Rory tekur sínar eiginn ákvarðanir og hlustar ekki á neinnn. Ég Lesa meira
Birgir Leifur í 11. sæti þegar PGA úrtökumótið er hálfnað
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, átti glæsilegan hring upp á -2 undir pari, þ.e. 70 högg á Magnolia golfvellinum í Pinehurst í dag. Birgir Leifur fékk 4 fugla og 2 skolla. Hann er samtals búinn að spila á 143 höggum (73 70) og deilir 11. sætinu með 3 öðrum. Efstu 20% þ.e. 15-16 efstu, komast áfram á næsta stig úrtökumótsins. Golf 1 óskar Birgi Leif góðs gengis á morgun. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á PGA úrtökumótinu í Pinehurst smellið HÉR:
Fyrirlestur á vegum SÍGÍ fellur niður
Af óviðráðanlegum orsökum þá fellur niður fyrirhugaður fyrirlestur á vegum Punctus sem vera átti í næstkomandi fimmtudag, 3. nóvember. Það kom eitthvað uppá hjá Punctus sem gerir það að verkum að þeirra fulltrúar komast ekki og þykir þeim það mjög miður. Ákveðið hefur verið að halda fyrirlesturinn þess í stað eftir áramót, nánar tiltekið þann 30. mars, 2012 og vonum við að þeir fjölmörgu sem voru búnir að skrá sig sjái sér fært að mæta í mars. Stjórn SÍGÍ biðst velvirðingar á þessu og vonast til að sjá sem flesta í mars.
Robert Allenby eltur af apa á golfvelli
Ástralski kylfingurinn Robert Allenby sagði nú fyrr í dag að hann hefði rekist á heldur óvenjulegan keppinaut þegar hann var að hita upp fyrir CIMB Asia Pacific Classic mótið í Malasíu – vingjarnlegan, hrekkjalóms apa. Allenby var að æfa á 10. braut fyrir þetta sameiginlega mót PGA og Asíumótaraðarinnar sem byrjar á morgun þegar hann sá gráa veru hangandi í nálægu tré. Hinn 40 ára Allenby sagðist hafa tekið mynd af apanum, en þegar hann fór nær til að taka aðra mynd hefði apinn gerst of vingjarnlegur. „Ég var eltur af apa í gær, sem var áhugavert,“ sagði Allenby á blaðamannafundi á The Mines Resort & Golf Club í Kuala Lumpur. Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: – Melodie Bourdy – 26. október 2011
Það er franski LET kylfingurinn Melodie Bourdy, „Birdie Bourdy” sem er afmæliskylfingur dagsins í dag. Melody fæddist í Frakklandi 26. október 1986 og er því 25 ára í dag. Hún komst í gegnum Q-school LET, sem fram fór í desember 2010 á La Manga golfvellinum á Spáni. Þar varð hún í 28. sæti og hefir því spilað á Evróputúr kvenna þetta keppnistímabil. Melodie byrjaði í golfi 6 ára gömul og er í golfklúbbnum Golf Bordelais. Hún á bróður, Gregory, sem spilar á Evróputúr karla. Meðal helstu áhugamála afmæliskylfingsins okkar eru bíóferðir og að verja tíma með vinum sínum. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Mark Bucek, Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Kristján Þór spilaði best allra í liði Nicholls á HBU Intercollegiate
Kristján Þór Einarsson, GKJ, varð í 4. sæti á HBU Intercollegiate mótinu, sem lauk í gær. Hann átti því miður ekki sinn besta dag og lauk keppni á 75 höggum, en var búinn að spila fyrri daga mótsins á hringjum undir 70 (67 69). Samtals spilaði Kristján Þór því á -2 undir pari, 211 höggum (67 69 75). Fyrir daginn í gær var Kristján Þór í 2. sæti. Pétur Freyr Pétursson, GR, tók einnig þátt í mótinu og lauk leik á +31 yfir pari, samtals 244 höggum (77 79 88) og lauk leik í 48. sæti. Í mótinu voru keppendur 52 frá 7 háskólum. Mótið fór fram 23.-25. október í Lesa meira
Evróputúrinn: Nokkrar tölfræðilegar staðreyndir um Valderrama
Lokamót Evrópumótaraðarinnar í Evrópu 2011 fer fram á Valderrama á Suður-Spáni. Eftir 3 vikna ferðalag um Íberíuskagann fer næsta mót Evrópumótaraðarinnar, Andalucia Masters, nú fram á Sotogrande og hefst á morgun. Fyrsta mótið á Valderrama, sem er einn frægasti golfvöllur Spánar, var haldið 1988, en frá þeim tíma hafa mörg fræg mót verið haldin á vellinum og er e.t.v. það þekktasta Ryder bikarkeppnin 1997. Valderrama golfvöllurinn, sem hannaður er af Robert Trent Jones, opnaði 1985 og er í 64 km fjarlægð frá Malaga, er einn sá erfiðasti í evrópsku golfi og laðar að sér bestu kylfingana. Völlurinn hefir trjágirtar brautir með litlum, bylgjandi flötum, þar sem reynir á alla þætti Lesa meira
Birgir Leifur var á 73 höggum í Pinehurst
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf leik í dag á úrtökumóti fyrir PGA, sem fram fer dagana 25.-28. október 2011 á Magnolia golfvellinum í Pinewild Country Club of Pinehurst í Norður-Karólínu. Þátttakendur eru 76 og keppa þeir um að verða í 20% hóp, sem kemst á næsta stig úrtökumótsins. Talið er að um 15-16 kylfingar nái á næsta stig. Birgir kom inn á + 1 yfir pari, þ.e. 73 höggum og deilir 26. sætinu með 12 öðrum eftir 1. dag. Þetta úrtökumót er býsna sterkt. Í holli með Birgi Leifi í dag var Brent Delahoussaye, frá Suður-Karólínu, sem spilaði á PGA mótaröðinni 2010 (náði m.a. eftirminnilegu glæsiskori, 62 höggum, á RBC Lesa meira







