LET: Becky Brewerton leiðir í Suzhou eftir 1. dag
Í dag, 28. október 2011, hófst Suzhou Taihu Open mótið í Suzhou, í Kína. Það er Becky Brewerton frá Wales, sem leiðir eftir 1. dag á -5 undir pari, 67 höggum. Becky fékk 6 fugla og 1 skolla á frábærum hring. í 2. sæti eru 6 stúlkur þ.á.m Yani Tseng, allar á 68 höggum. T-8 eru síðan 4 stúlkur: Caroline Hedwall frá Svíjóð; Tan Ling Ling, frá Kína; Veronica Zorzi frá Ítalíu og Stacy Lee Bregman frá Suður-Afríku allar á -3 undir pari, 69 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Suzhou Taihu Open smellið HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: – Ólafur Þór Ágústsson – 28. október 2011
Það er Ólafur Þór Ágústsson, sem er afmæliskylfingur dagsins í dag. Ólafur Þór er nýtekinn við sem framkvæmdastóri Golfklúbbsins Keilis, af föður sínum Ágúst Húbertssyni, sem gegnt hefir stöðunni undanfarin 23 ár og lætur endanlega af störfum nú um mánaðarmótin. Ágúst hefir gegnt 1/2 stöðu hjá Keili undanfarið ár til þess að koma afmæliskylfingnum okkar inn í allt sem varðar Keili. Ekki að Ólafur Þór sé ekki vel kunnugur Keili og Hvaleyrinni, en hann starfaði áður sem vallarstjóri á Hvaleyrinni. Ólafur Þór fæddist 28. október 1975 að Sólvangi í Hafnarfirði og er því borinn og barnfæddur Hafnfirðingur. Hann byrjaði að spila golf 8 ára gamall vegna þess að hann elti Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn spilar á Landfall Tradition
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest, hefur leik á Landfall Tradition mótinu í dag, í bandaríska háskólagolfinu. Þetta er 3 daga mót og stendur dagana 28.-30. október. Mótið er haldið í hinum gullfallega Country Club of Landfall í Norður-Karólínu og má sjá myndir frá honum og vellinum, sem mótið fer fram með því að smella HÉR: Þátttakendur í mótinu eru 90 frá 18 háskólum. Ólafía Þórunn á rástíma kl. 9:50 (þ.e. kl. 13:50) að íslenskum tíma. Fylgjast má með gengi Ólafíu Þórunnar með því að smella HÉR:
Bandaríska háskólagolfið: Ingunn Gunnarsdóttir spilar í Lady Paladin Invitational
Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og Furman, hefur leik á Lady Paladin Invitational í dag, en mótið fer fram á heimavelli Ingunnar, þar sem Furman háskólinn sér um að halda mótið. Mótið er haldið í Greenville, Suður-Karólínu, dagana 28.-30. október. Þátttakendur eru 81 frá 15 háskólum. Ingunn á rástíma kl. 9:18 að staðartíma (kl. 13:18 að íslenskum tíma). Fylgjast má með gengi Ingunnar með því að smella HÉR:
LET: Suzhou Taihu mótið hófst í dag
Í dag, 28. október 2011, hófst Suzhou Taihu Open mótið í Suzhou í Kína. Þetta er hlýr morgun með svolítilli golu í Suzhou Taihu International Golf Club. Lee-Anne Pace frá Suður-Afríku byrjaði vel, en hún á titil að verja og var í forystu ásamt 3 öðrum eftir 12 holur, þeim: Lisu Holm Sorensen frá Danmörku, Jenni Kuosa frá Finnlandi og Kylie Walker, frá Skotlandi. Nr. 1 í heiminum Yani Tseng er í holli með Pace og sigurvegaranum á Sanya Ladies Open, áströlsku stúlkunni Frances Bondad. Tseng byrjaði vel og var á -1 undir pari eftir fyrri 9, eftir að hafa misst af mörgum fugla- og arnarfærum og á eflaust eftir Lesa meira
Birgir Leifur á 73 höggum á 3. degi í Pinehurst
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hefir lokið við að spila 3. hring í Pinehurst, Norður Karólínu. Hann kom í hús í dag á 73 höggum, þ.e. + 1 yfir pari og er því á parinu eftir 3 spilaða hringi (73 70 73) þ.e. á samtals 216 höggum. Birgir Leifur er nú í 17. sæti. Glæsilegt! Golf 1 óskar Birgi Leif alls hins besta á lokahringnum á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag í Pinehurst smellið HÉR:
Kylfingar 19. aldar: nr. 8 – Thomas Dunn – seinni grein –
Árið 1889, (eftir að hafa verið rekinn frá North Berwick) var Tom Dunn skipaður vallarstjóri og kylfusmiður í Tooting Bec golfklúbbnum í Surrey þar sem hann hannaði og byggði Furzedown golfvöllinn. Philip Wynn, kylfusmiður frá North Berwick gerðist samstarfsmaður Tom Dunn í Tooting Bec. Tom Dunn kenndi Arthur J. Balfour að spila golf í North Berwick (en Balfour var forsætisráðherra Breta 1902-05) og eftir að þing var komið saman spiluðu Balfour og Tom Dunn oft í Tooting Bec nálægt London. Siðar var jörðin tekin og íbúðir byggðar, en 1906 var hinn frægi Tooting Bec Lídó þarna. Tom Dunn fluttist til London Scottish G.C. þar sem hann stækkaði völlinn í 18 Lesa meira
Evróputúrinn: Richie Ramsey leiðir á Valderrama eftir 1. dag
Það er Skotinn Richie Ramsey, sem leiðir á Valderrama; kom í hús á glæsilegu 65 högga skori í dag. Ramsay fékk 5 fugla, 1 glæsilegan örn á 11. par-5 brautinni (sem ekki er sú léttasta á vellinum) og því miður 1 skolla á erfiðu par-5 17.brautinni, sem leikið hefir margan grátt. Í 2. sæti er Bretinn Ross Fisher, tveimur höggum á eftir, þ.e. hann kom í hús á 67 höggum. Þriðja sætinu deila landi Ramsay, Stephen Gallacher og Frakkinn Gregory Havret á 68 höggum, hvor. Fjórir kylfingar, þ.á.m. Sergio Garcia deila síðan 5. sætinu, en þeir komu inn á 70 höggum í dag. Spennandi helgi framundan á Valderrama! Til þess Lesa meira
Rory efstur á 64 höggum í Shanghai Masters eftir 1. dag!
Í Kína fer nú fram Shanghaí Masters sem er ekki liður í neinni mótaröð heldur boðsmót, þar sem 30 gríðarsterkum kylfingum er boðið til leiks og verðlaunaféð er £1.25milljónir (u.þ.b. 200 milljónir íslenskra króna). Sá sem tapar í mótinu, þ.e. lendir í neðsta sætinu fær lummulegar £ 25.000,- Staðan eftir 1. dag er þessi: -8: R McIlroy (Norður-Írl) -7: H Mahan (US) -5: P Harrington (Írl), P Casey (Eng), I Poulter (Eng) Nokkrir aðrir -3: L Westwood (Eng), J Daly (US) -2: C Montgomerie (Sko), C Schwartzel (Suður-Afríka) Heimild: BBC Sports
Robert Allenby í 1. sæti eftir 1. dag á CIMB Asia Pacific Classic
Apamálið virðist ekki hafa haft nein eftirköst því Ástralinn Robert Allenby kom inn á -8 undir pari, 63 höggum eftir 1. hring á CIMB Asia Pacific Classic, sem er sameiginlegt mót PGA Tour og Asian Tour. Allenby leiðir því eftir 1. dag mótsins og setti þar að auki vallarmet. Hann varð að forða sig á harðahlaupum í fyrrdag, þegar grár, skarptenntur api sem hann nálgaðist of mikið og tók mynd af, elti hann um golfvölinn við 10. braut á The Mines Resort and Golf Club, þar sem hann var við æfingar. Robert Allenby náði fugli á 4 af fyrstu 6 holunum og 3 af síðustu 4 í skollafríum hring í dag. Lesa meira









