Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2011 | 13:00

PGA: Bo Van Pelt í forystu fyrir lokahring CIMB Asia Pacific Classic

Það er Bandaríkjamaðurinn Bo Van Pelt sem er í forystu eftir 3. dag CIMB Ascia Pacific Classic í Malasíu. Hann er samtals búinn að spila á -16 undir pari, þ.e. hefir spilað á samtals 197 höggum (66 64 67). Í 2. sæti er forystumaður gærdagsins Jeff Overton, aðeins höggi á eftir Van Pelt.  Þriðja sætinu deila Bandaríkjamaðurinn Mark Wilson og Svíinn Fredrik Jacobson, -13 undir pari, á samtals 200 höggum. Til þess að sjá stöðuna í CIMB Asia Pacific Classic mótinu eftir 3. dag smellið HÉR:  Til þess að sjá hápunkta CIMB Asia Pacific Classic mótsins í Malasíu smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2011 | 12:30

LET: Yani Tseng með 3 högga forystu í Kína þegar Suzhou Taihu mótið er hálfnað

Yani Tseng leiðir þegar Suzhou Taihu mótið í Suzhou í Kína er hálfnað. Yani kom inn á 66 höggum og er samtals búin að spila á -10 undir pari (68 66) þ.e. 134 höggum.  Hún fékk 7 fugla og einn óþarfa skolla á par-4, 2. brautinni. Í 2. sæti  og 3. sæti eru fyrrum skólafélagar Eyglóar Myrru, sænsku stúlkurnar Pernilla Lindberg og Caroline Hedwall en báðar spiluðu fyrir Oklahoma State, líkt og Eygló Myrra en spila nú á LET. Pernilla er í 2. sæti, 3 höggum á eftir Yani, þ.e. á -7 undir pari, 134 höggum (72 65). Caroline Hedwall (69 69) deilir 3. sætinu með 5 öðrum: Becky Brewerton Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2011 | 10:00

Kylfingar 19 aldar: nr. 9 – Seymour G. Dunn

Seymour Gourlay Dunn er annar af tveimur sonum Tom Dunn, sem fjallað var um í síðustu 2 greinum og barnabarn Willie Dunn eldri. Talið er að hann hafi fæðst í kylfusmíðaskúr föður síns á West Links North Berwick 11. mars 1882. Á fullorðinsárum var honum var lýst sem 1,80 metra háum ljóshærðum og  bláeygðum manni, með þyrni tatooveraðan á framhandlegginn. Hann var aðeins 15 ára þegar hann kom í fyrsta sinn til Bandaríkjanna í júní 1897. Þá þegar hannaði hann 9 holu völl í Lawrenceville School í New Jersey.  Tveimur árum síðar, 1899 var Seymour ráðinn sem golfkennari til Societe Golf de Paris og hannaði nokkra golfvelli í Evrópu m.a. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2011 | 20:15

Birgir Leifur komst áfram á 2. stig PGA úrtökumótsins! – Spilaði á 74 höggum og varð í 18. sæti

Birgir Leifur Hafþórsson, sem hefir verið að spila á úrtökumóti fyrir PGA mótaröðina undanfarna 4 daga í Pinehurst, Norður-Karólínu, lauk leik í dag á 74 höggum.  Samtals spilaði Birgir Leifur því á 290 höggum (73 70 73 74) og deildi 18. sætinu með 3 öðrum. Birgir Leifur tryggði sér þar með öruggt sæti á 2. stigi úrtökumóts PGA. Glæsilegt!!! Í 1. sæti þessa 1. stigs úrtökumótsins fyrir PGA varð Kanadamaðurinn Richard Scott og Spánverjinn Alfredo Garcia Heredia er líka kominn áfram en hann deildi 13. sætinu með öðrum. Sjá má lokaúrslit í úrtökumótinu í Pinehurst með því að smella HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2011 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn í 32. sæti á Landfall Tradition eftir 1. dag

Ólafía Þórunn Kristínsdóttir spilaði í dag á Landfall Tradition mótinu  á 78 höggum, þ.e. samtals 156 höggum, + 6 yfir pari.  Hún deilir 32. sætinu með 14 öðrum stúlkum, þ.á.m liðsfélaga sínum, frænku Tiger Woods, Cheyenne. Wake Forest, lið Ólafíu Þórunnar deilir 8. sætinu með North Carolina State. Sjá má stöðuna eftir fyrstu 2 spiluðu hringina á Landfall Tradition með því að smella HÉR:       

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2011 | 19:45

Bandaríska háskólagolfið: Ingunn Gunnars í 22. sæti á Lady Paladin eftir 1. dag

Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og Furman, lauk 1. hring á Lady Paladin Invitational í dag á 79 höggum. Hún fékk 9 skolla á hringnum og náði að taka það aðeins aftur með 2 fuglum.  Ingunn er sem stendur í 22. sæti. Mótið er haldið af hálfu Furman háskólans, þar sem Ingunn stundar nám. Það fer því fram í Greenville, Suður-Karólínu. Lið Furman háskóla er í 7. sæti eftir 1. daginn. Þetta er 3 daga mót og þátttakendur eru 81 frá 15 háskólum. Þetta er því flottur árangur hjá Ingunni og Furman! Fylgjast má með stöðunni á Lady Paladin mótinu með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2011 | 19:30

Evrópumótaröðin: Ramsey enn með forystuna á Valderrama

Þegar Andalucia Masters er hálfnað er skoski kylfingurinn Richie Ramsey enn með forystuna. Hann kom í hús í dag á 72 höggum og er samtals búinn að spila -5 undir pari, þ.e. á 137 höggum (65 72). Í 2. sæti er Frakkinn Gregory Havret, tveimur höggum á eftir Ramsay. Í 3. sæti er Sergio Garcia, 3 höggum á eftir Ramsay, þ.e. búinn að spila báða hringina á 70 höggum. Í 4. sæti er landi Sergio, uppáhaldskylfingur margra, Miguel Angel Jiménez á -1 undir pari, samtals 141 höggi (71 70) 4 höggum á eftir Ramsay. Til þess að sjá stöðuna þegar Andalucia Masters er hálfnað smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2011 | 19:15

Rory McIlroy leiðir með 2 höggum á Shanghai Masters eftir 2. dag

Sigurvegarinn á U.S. Open 2011,  Rory McIlroy  var á -3 undir pari, þ.e. 69 höggum í dag og jók forystu sína í 2 högg og eftir 2. hring á Shanghai Masters. Eftir að frábæra byrjun í gær á skollafríum hring upp á 64 högg, þá átti Rory í nokkrum vandræðum á fyrri 9 í dag, fékk skolla á 4. holu og missti 2 högg þegar hann drævaði í vatnið í par-4, 9. brautinni. Hin 22 ára gamla golfstjarna frá Norður-Írlandi (Rory) náði sér á strik með 4 fuglum á seinni 9 og lauk leik á -11 undir pari þ.e. samtals 133 höggum á   Malaren Jack Nicklaus hannaða golfvellinum. „Mér líkaði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2011 | 14:00

Sólskinstúrinn: BMG Classic hófst í dag

Í dag hófst í Glendover Golf Club í Jóhannesarborg í Suður-Afríku BMG Classic mótið.  Í augnablikinu er það Bradford Vaughan sem leiðir á -8 undir pari, en hann á 6 holur eftir óspilaðar og þó nokkrir eftir að koma í hús. Dawie van der Walt hefir hins vegar lokið leik á -6 undir pari og því ljóst að skorin verða góð í dag. Fylgjast má með stöðunni á BMG Classic með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2011 | 13:25

PGA: Overton og Jacobson leiða eftir 2. dag í Malasíu

Það eru Bandaríkjamaðurinn Jeff Overton og Svíinn Fredrick Jacobson sem leiða þegar CIMB Asia Pacific Classic er hálfnað. Báðir hafa spilað á -13 undir pari; Overton (67 62) og Jacobson (65 64). Hringur Jeff Overton var sérlega glæsilegur en hann spilaði skollafrítt og fékk 7 fugla og 1 örn. í 2. sæti er Bandaríkjamaðurinn Bo van Pelt, höggi á eftir á -12 undir pari (66 64). T-4 eru fjórir kylfingar: Jhonattan Vegas frá Venezuela og Bandaríkjamennirnir, Mark Wilson, Stewart Cink og Jimmy Walker, 4 höggum á eftir Overton og Jacobson. Í 8. sæti er Bandaríkjamaðurinn Cameron Tringale. Robert Allenby, sem leiddi í gær, spilaði á 72, en hann er þá Lesa meira