
Nirwana golfvöllurinn á Balí
Í viðtali við Ólaf Þór Ágústsson, framkvæmdastjóra golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði, (sem birtist síðar hér á Golf 1) kom m.a. fram að honum þætti Nirwana golfvöllurinn á Balí vera sérstakasti golfvöllur, sem hann hefði spilað m.a. vegna fallegs landslags og sérstaks, en völlurinn er byggður í miðjum hrísgrjónaakri.
Nirwana golfvöllurinn er hannaður af Greg Norman. Meðal sérstakra þátta á vellinum er að allir kaddýar klúbbsins eru konur frá nálægum bæjum. Þær eru allar frábærir kylfingar og hljóta þar að auki 3 mánaða grunnþjálfun áður en þær mega hefja störf.
Golfvöllurinn er á suð-vesturströnd Balí og aðeins 45 mínútna akstur frá alþjóðaflugvelli Balí og rétt hjá fræga musterinu Tanah Lot Ubud og höfuðborg Balí, Denpasar.
Golfvöllurinn er meðal mest krefjandi golfvalla í heiminum og klúbburinn hefir verið leiðandi í golfi á Balí og hlotið World Travels Award viðurkenninguna 5 ár í röð 2004-2009. Hann er 18. í röðinni yfir mest mynduðu golfvelli heims.
Þrjár brautir á vellinum (m.a. sú sem myndin er af) eru meðfram Indverska hafinu og hrísgrjónaakrar í stöllum eru meðal óvenjulegra hindranna á vellinum. Völlurinn er settur upp þannig að jafnt PGA kylfingar, sem meðalkylfingurinn finna þar eitthvað við sitt hæfi. Nirwana Balí Golf Club er eini klúbburinn á Balí, sem hefir eftirlitsmann, sem ferðast um völlinn og fylgist með leikhraða. Einn hringur ætti ekki að taka meira en 4 klst og 20 mínútur.
Til þess að komast á heimasíðu Nirwana golfvallarins, þar sem m.a. eru gullfallegar myndir af golfvellinum, smellið hér: NIRWANA BALÍ GOLF CLUB
Til þess að sjá myndskeið frá Nirwana golfvellinum á Balí smellið HÉR:
- ágúst. 13. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2022)
- ágúst. 13. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Ben Hogan og Garðar Rafn Halldórsson – 13. ágúst 2022
- ágúst. 13. 2022 | 15:00 Evróputúrinn: Haraldur Franklín á -1 á ISPS Handa World Inv. e. 3. dag
- ágúst. 12. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birgit Henriksen – 12. ágúst 2022
- ágúst. 11. 2022 | 18:00 GSÍ: Fjöldi kylfinga á Íslandi aldrei verið meiri
- ágúst. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Helga Laufey Guðmundsdóttir – 11. ágúst 2022
- ágúst. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Steinsdóttir – 10. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erna Elíasdóttir —– 9. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge