Það besta úr „Inside the PGA Tour“ þáttunum
Í myndskeiðinu hér að neðan er klippt saman eitthvað af því besta frá þessu ári, 2011, úr bandaríska sjónvarpsþættinum „Inside the PGA Tour.“ Þar má sjá Nationwide kylfinginn og tvöfalda hjartaþegann Erik Compton, sem nýlega hlaut kortið sitt á PGA Tour. Eins má sjá Matt Kuchar og Brandt Snedeker í föðurhlutverkum. Brandt og eiginkona hans Mandy eignuðust litla dóttur og segir Brandt að dóttirin sé það besta í lífi sínu. Eins eru Matt Kuchar og fjölskylda hrifin af allskyns leikjum með ungum börnum sínum, en Matt segist í raun aldrei hafa langað til þess að verða fullorðinn … og eins og er, er hann enn að leika sér í golfi! Lesa meira
Kylfingar 19. aldar: nr. 18 – Andrew Kirkaldy
Andrew Kirkaldy (1860–1934) var skoskur atvinnukylfingur. Í fyrsta Opna breska, sem hann tók þátt í 1879 varð Andrew í 2. sæti á eftir Jamie Anderson á Old Course í St. Andrews. Í Opna breska 1889 á Musselburgh Links tapaði Andrew í bráðabana gegn Willie Park yngri. Og loks í Opna breska 1891 bar bróðir hans Hugh (Golf 1 fjallaði um hann í gær) sigurorð af honum og hann varð í 2. sæti ásamt Willie Fernie. Allt í allt varð Andrew Kirkaldy 14 sinnum á topp 10 og sex sinnum meðal topp-3 á Opna breska. Heimild: Wikipedia
Afmæliskylfingur dagsins: – Heiðar Davíð Bragason – 8. nóvember 2011
Afmæliskylfingur dagsins er Heiðar Davíð Bragason, GHD, en hann fæddist 8. nóvember 1977 og er því 34 ára í dag. Heiðar Davíð er þjálfari hins frábæra liðs telpna á Dalvík, 15 ára og yngri, sem urðu Íslandsmeistarar 2011 í sveitakeppni GSÍ – en þær eru einu Íslandsmeistarar, sem GHD hefir átt í sveitakeppni. Heiðar Davíð þjálfar þær ásamt Árna Jónssyni. Heiðar Davíð hefir gert ýmislegt og unnið marga sigra í golfíþróttinni. Sem dæmi mætti nefna að hann keppti á danska Scanplan túrnum 2007 og EDP-mótaröðinni 2008. Hann sigraði í Einvíginu á Nesinu 2008. Eins er eftirminnilegt þegar Heiðar Davíð setti glæsilegt vallarmet á Vatnahverfisvelli á 25 ára afmælismóti Golfklúbbsins Óss Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft til baka yfir íslenska golfsumarið 2011: Opna Icelandair Golfers mótið hjá GK, 14. maí 2011
Góð mæting var á fyrsta opna mót ársins hjá Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði, Open Icelandair Golfers, sem fram fór laugardaginn 14. maí nú í ár. Um 170 manns spiluðu í blíðskaparveðri á Hvaleyrarvelli, við góðar aðstæður. Þórdís Geirsdóttir sigraði höggleikinn á 71 höggi. Glæsilegt!!! Úrslit í punktakeppni voru eftirfarandi: 1. sæti Þorvaldur Heiðarsson GKG 42 pkt. 2. sæti Jón Kristján Ólason GR 41 pkt. 3. sæti Erna Kristjánsdóttir GK 40 pkt. 4. sæti Guðmundur Jónsson GKJ 39 pkt. 5. sæti Ari Már Arason GKS 39 pkt. 6. sæti Orri Bergmann Valtýsson GK 39 pkt. Næstur holu: 4. hola Þorleifur Sigurbörnsson, 0,82 m 6. hola Kjartan Einarsson GK 1,25 m 10. Lesa meira
Opna Icelandair Golfers – 14. maí 2011
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið 2011 – Opna Galvin Green mótið hjá GR 19. júní 2011
Opna Galvin Green kvennamótið fór fram á Grafarholtsvelli, hjá Golfklúbbi Reykjavíkur á kvenfrelsisdaginn, sunnudaginn 19. júní í sumar. Veðrið var frábært, sólin skein og hitinn náði allt upp undir 20°C. Þetta var einn fyrsti, alvörusólskinsdagur sumarsins 2011 og konur léttar í lund eftir því. Eftir sem áður kom upp kærumál, en kært var vegna þess að verið var að slá brautir meðan mótið fór fram. Málið fór í nefnd og var settlað. Alls tóku 97 konur þátt í mótinu og 93 luku keppni. Veitt voru verðlaun fyrir 6 efstu sætin í punktakeppni og besta skor. Auk þess voru veitt nándarverðlaun á 6. og 17. braut, verðlaun fyrir að vera næst Lesa meira
Annika spilaði í ADT Skills Challenge
Annika Sörenstam vann keppni með stuttum kylfum á ADT Skills Challenge, í gær mánudaginn 7. nóvember 2011, sem er fyrsta atvinnumannskeppnin í golfi, sem hún tekur þátt í í 3 ár. Annika og félagi hennar Morgan Pressel unnu sér inn $161,000 fyrir 4. sætið í þessum fjórmenningi, en sigurvegarar urðu Zach Johnson og Jerry Kelly. Annika og Morgan eru fyrstu kvenkylfingarnir sem taka þátt í mótinu. „Ég er með mikið keppnisskap þannig að það er frábært að koma í svona umhverfi aftur,“ sagði Annika, en bæði börnin hennar og foreldrar voru meðal áhorfenda. „Það er meiri nálægð og persónulegheit í svona móti meðal kylfinga, sem mér líkar.“ Annika sem á 93 alþjóðlega Lesa meira
Tiger: „Steve er ekki kynþáttahatari“
Tiger Woods segist hafa fengið afsökunarbeiðni frá fyrrum kylfusveini sínum, Steve Williams vegna kynþáttaníðs hans og að þeir tveir hafi hittst og tekist í hendur fyrr í dag (þriðjudaginn 8. nóvember) í The Lakes Golf Club fyrir Australian Open. Óviðeigandi ummæli Williams féllu í kaddýpartýi s.l. föstudag, í Shanghaí. Í ljósi 12 ára frábærrar samvinnu Tiger Woods og Steve William sagði Tiger að ummæli Steve hefðu verið „særandi… rangt hefði verið að hafa þau uppi og þau væru nokkuð sem (Steve) hefði gengist við. Steve er ekki kynþáttahatari.“ Tiger sagðist ekki ætla að krefjast þess að Steve yrði refsað. Talsmenn PGA Tour og Evróputúrsins hafa þegar sagst ekki ætla að Lesa meira
Kylfingar 19 aldar: nr. 17 – Hugh Kirkaldy –
Hugh Kirkaldy (1865–1895) var skoskur kylfingur sem fæddur var í „vöggu golfíþróttarinnar”, St. Andrews. Hann vann Opna breska árið 1891, þegar það var spilað á Old Course á St Andrews. Mótið fór fram í október í slæmu veðri og sigurskorið var 166 högg á 36 holum. Hann bar sigurorð af bróður sínum, Andrew og Willie Fernie frá Troon og átti 2 högg á þá báða. Þetta var síðasta Opna breska, þar sem aðeins voru spilaðar 36 holur. Hugh Kirkaldy dó aðeins 3 árum eftir sigur sinn, úr lungnasjúkdómi, 29 ára að aldri. Heimild: Wikipedia







