Afmæliskylfingur dagsins: Davíð Gunnlaugsson – 7. nóvember 2011
Það er Davíð Gunnlaugsson, GKJ, sem er afmæliskylfingur dagsins. Davíð er fæddur 7. nóvember 1988 og er því 23 ára í dag. Davíð á 3 systkini, Andra 12 ára, Björgu 20 ára og Eydísi 29 ára, en ekkert af þeim er í golfi. Hins vegar er kærasta Davíðs, Heiða Guðnadóttir, GKJ, landsþekktur kylfingur. Davíð byrjaði 11 ára á golfnámskeiði hjá GKJ. Meðal margra afreka Davíðs í golfíþróttinni er t.d. að verða Íslandsmeistari í sveitakeppni 16-18 ára, árið 2005. Davíð starfar sem aðstoðarþjálfari hjá GKJ, en er í lögfræði í Háskóla Íslands á veturna. Í viðtali við Davíð, sem birtist hér síðar á Golf1 sagði hann aðspurður að markmiðið í lífinu hjá sér væri: „Að halda áfram í golfi, eignast fjöskyldu, verða gamall og hafa gaman af lífinu.”
Golf 1 vonar að öll markmið Davíðs rætist og óskar honum, sem og öðrum afmæliskylfingum innilega til hamingju með afmælið!
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Hallgrímur Friðfinnsson, GK, f. 7. nóvember 1943 (68 ára); Kristín Höskuldsdóttir, 7. nóvember 1960; Felipe Aguilar Schuller, f. 7. nóvember 1974 (37 ára);
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- október. 1. 2023 | 16:16 Ryder Cup 2023: Áhangendur streymdu á Marco Simone eftir sigur liðs Evrópu 16,5-11,5
- október. 1. 2023 | 15:40 Ryder Cup 2023: Fleetwood innsiglar sigur liðs Evrópu!!!
- október. 1. 2023 | 15:10 Ryder Cup 2023: Hovland, Rory og Hatton unnu sínar viðureignir – Rahm hélt jöfnu – Vantar bara 1/2 stig núna!!!
- október. 1. 2023 | 12:00 Ryder Cup 2023: Tvímenningsleikir sunnudagsins
- október. 1. 2023 | 08:00 Ryder Cup 2023: Evrópa 10,5 – Bandaríkin 5,5 e. 2. dag
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023