Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 07:30

LPGA: Juli Inkster og Suzann Pettersen leiða í Mexíkó eftir 1. dag

Lorena Ochoa Invitational hófst í gær í Mexíkó. Það eru Juli Inkster frá Bandaríkjunum og Suzann Pettersen, frá Noregi, sem leiða eftir 1. dag – báðar komu inn á 67 höggum. Juli spilaði skollafrítt, fékk 5 fugla en Suzann fékk 6 fugla og skolla á 8. braut. Suzann hafði m.a. eftirfarandi að segja: „ Ég byrjaði vel. Það var gaman að fá fugla snemma á hringnum (Suzann setti niður 4 fugla á fyrstu 5 holunum) Mér leið strax vel þegar ég hitaði upp og var ákveðin að vera bara þolinmóð og halda boltanum í góðum stöðum af teig og svo setti ég niður nokkur góð pútt. Þannig að þetta er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 07:00

Blaðamannafundur með Lorenu Ochoa, Michelle Wie og IK Kim

Í gær hófst í Guadalajara í Mexíkó Lorena Ochoa Invitational.  Sú sem á titil að verja er In Kyung Kim (alltaf kölluð IK Kim) frá Suður-Kóreu, en árið á undan henni sigraði Michelle Wie.  Í tilefni af mótinu komu hin 8 mánaða ófríska Lorena Ochoa, IK Kim og Michelle Wie saman á blaðamannafundi. Á mynd hér fyrir neðan má sjá Michelle Wie finna spörkin í ófæddu barni Lorenu og IK Kim, káta þ.e. skellihlæjandi, en hún situr milli þeirra.   Hér fer lausleg þýðing blaðamannafundarins: Fundarstjóri: Buenos Dias allir saman. Við bjóðum velkomna gestgjafa mótsins Lorenu Ochoa og tvo af fyrrum sigurvegurum okkar hér, Michelle Wie, sem sigraði árið 2009 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 20 – Lady Margaret Scott

Lady Margaret Rachel Scott er fædd 5. apríl 1874 um það leyti sem Kristján konungur IX. afhenti Íslendingum fyrstu stjórnarskránna um hin sérlegu málefni Íslands. Lady Margaret var dóttir John Scott, 3. jarlsins af Eldon og sú 4. af 7 börnum hans. Í skjóli forréttindastöðu sinnar var hún ein af fáum konum, sem fékk að leika sér í golfi, en hún þótti yfirburðakvenkylfingur á sínum tíma, sigraði m.a. fyrstu þrjú bresku kvenmeistaramótin í golfi (British Ladies Championships) árin 1893, 1894 og 1895. Margir bræðra hennar voru líka í golfi: Michael Scott sigraði The Amateur Championship árið 1933, annar bróðir Osmund Scott var í 2. sæti á sama móti 1905 og bróðir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 18:00

Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Vormót Hafnarfjarðar 2011, 28. maí 2011

Vormót Hafnafjarðar fór fram laugardaginn 28. maí á þessu ári í frekar „bland í poka “ veðri.  Það var ágætt veður framan af, þ.e. hann hékk þurr, en það fór að rigna eftir hádegið. Spilaður var höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf.  Veitt voru verðlaun bæði í karla- og kvennaflokki í höggleiknum og fyrir efstu 5 sætin í punktakeppninni. Eins voru veitt nándarverðlaun á par-3 brautum og dregið úr fjölda skorkorta í mótslok. Þátttakendur voru 130 þar af 11 konur. Til þess að sjá myndir frá Vormóti Hafnarfjarðar smellið hér: MYNDASERÍA ÚR VORMÓTI HAFNARFJARÐAR Helstu úrslit í Vormóti Hafnarfjarðar urðu eftirfarandi: Höggleikur án forgjafar í kvennaflokki: Anna Sólveig Snorradóttir, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 16:30

Vormót Hafnarfjarðar – 28. maí 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andri Þór Björnsson – 10. nóvember 2011

Afmæliskylfingur dagsins er klúbbmeistari karla í GR árið 2011, Andri Þór Björnsson. Andri Þór fæddist 10. nóvember 1991 og á því 20 ára stórafmæli í dag! Afrek Andra Þór eru þó nokkur á golfsviðinu t.a.m. sigraði hann á 5. stigamóti GSÍ mótaraðarinnar á Leirdalsvelli 2009. Andri Þór tók þátt í Harder German Junior Masters 2010. Svo er Andri Þór ekki bara góður í golfi heldur kennir hann yngri flokkum GR golf og er vinsæll kennari. Foreldrar Andra Þór eru Björn Ólafur Bragason og Guðný Brynhildur Þórðardóttir og Andri Þór á 2 systur: Evu Karen og Eydísi Önnu. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með stórafmælið! Aðrir frægir kylfingar sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 13:30

Evróputúrinn: Morrison og Molinari efstir eftir 1. dag Barclays mótsins

Það eru Bretinn James Morrison og Ítalinn Edoardo Molinari sem leiða eftir 1. dag á Barclays Singapore Open, en mótið hófst í dag. Báðir komu inn á hörkuskori, 62 höggum þ.e. -9 undir pari. Morrisson fékk 10 fugla og 1 skolla á 16. braut (par-3)  og Molinari spilaði nákvæmlega eins, nema fékk skollann á par-4 9. holunni. Í 3. sæti er Y.E. Yang aðeins höggi á eftir Morrison og Molinari. Til þess að skoða stöðuna eftir 1. dag Barclays Singapore Open, smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 13:00

Sólskinstúrinn: Warren Abery sigraði á Nedbank Affinity Cup

Á Sólskinstúrnum fór nú í vikunni, þ.e. dagana 8.-10. nóvember  fram Nedbank Affinity Cup og lauk nú í dag á hinum glæsilega golfvelli Lost City Golf Club í Sun City. Það var Warren Abery sem sigraði á mótinu. Sigurskor hans var upp á samtals 205 högg (70 65 70) þ.e. samtals -11 undir pari. Warren Abery er fæddur 28. júní 1973 og er því 38 ára. Þetta er 8. sigur hans á Sólskinstúrnum. Í 2. sæti urðu Andrew Curlewis og Prinavin Nelson á samtals 207 höggum hvor, samtals -9 undir pari, þ.e. 2 höggum á eftir sigurvegaranum, Warren Abery. Til þess að sjá úrslit í Nedbank Affinity Cup, smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 12:30

Jarrod Lyle í 1. sæti eftir 1. dag Opna ástralska – Tiger spilaði á 68 höggum!

Það er heimamaðurinn Jarrod Lyle, sem er í 1. sæti eftir 1. dag Opna ástralska. Hann kom í hús á glæsilegum 65 höggum, -7 undir pari. Lyle spilaði skollafrítt, fékk 5 fugla og örn á par-5 14. brautinni. Höggi á eftir eru Bandaríkjamennirnir Nick Watney og Dustin Johnson og deila þeir því 2. sætinu. Í 4. sæti er Fred Couples ásamt 2 öðrum, en þeir komu í hús á -5 undir pari, 67 höggum hver.   Og þá er komið að fréttum dagsins: Tiger Woods var að spila frábært golf í dag! Hann kom inn á 68 höggum og deilir 8. sætinu eftir 1. dag með 5 öðrum kylfingum, þ.á.m. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 12:00

Opna ástralska: John Daly farinn heim eftir að hann sló 6 bolta í vatn á 11. braut á The Lakes

Bandaríski kylfingurinn John Daly hefir með sneypulegum hætti hætt keppni á Opna ástralska. Hann gekk af vellinum eftir að hafa spilað litlu meira en 1/2 hring. Tvöfaldur rismótsvinningshafi hætti bara eftir að hann sló 6 bolta í vatnið af 11. teig á The Lakes Golf Club. Bandaríkjamaðurinn (John Daly) tók í höndina á spilafélaga sínum Craig Parry áður en hann yfirgaf völlinn.   „Þetta er í síðasta sinn sem við sjáum John Daly í þessu móti,“ sagði framkvæmdastjóri mótsins, Trevor Herden. Brian Thorburn aðalframkvæmdastjóri Australian PGA sagði: „Ég er ákaflega bitur og hef orðið fyrir vonbrigðum. Þetta er að verða að vana (hjá Daly).“ John Daly, 45 ára, gekk líka Lesa meira