Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2011 | 10:00

USGA minnist þess að 100 ár eru liðin frá því að forgjafarkerfið var tekið upp – 1. grein af 4.

Hér birtist í lauslegri íslenskri þýðingu frábær grein Hunki Yun, blaðafulltrúa bandaríska golfsambandins (ens.: USGA = United States Golf Association), en forgjafarreglur sambandsins, sem allur golfheimurinn lýtur eiga einmitt 100 ára afmæli um þessar mundir. Grein Hunki er nokkuð löng og birtist hér á Golf 1 í 4 hlutum. Hér fer 1. hlutinn: „Þráin til að keppa er innbyggð í allri íþróttamannslegri hegðun. En oftast er sanngjörn samkeppni aðeins möguleg milli keppenda, sem hafa sömu hæfni. Í hafnarbolta myndi barn sem á að slá bolta, sem kastað er af atvinnumanni í hafnarbolta, eiga litla möguleika á að hitta boltann. Topp tennisspilari myndi slá högg í uppgjöfum sem meðaltennisgaufari ætti ekkert Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 19 – Archie Simpson

Archibald (Archie) Simpson 1866 – 1955 var sæmilegur kylfingur en aðallega þekktur fyrir golfvallarhönun. Hann var fæddur inn í heldri fjölskyldu í Earlsferry (Fife) í Skotlandi. Eldri bróðir hans var Bob Simpson, frægur kylfusmiður í Carnoustie. Archie, yngri bróðirinn, var svo sannarlega hæfileikaríkur kylfingur; hann var meðal efstu kylfinga nokkrum sinnum í röð á Opna breska á árunum 1880-1890. Hann var arkítekt og aðstoðaði Old Tom Morris (1821-1908) í að endurhanna Carnoustie golfvöllinn og Royal Aberdeen golfvöllinn í Balgownie. Hann hannaði völlinn í Nairn (1887). Árið 1891 varð  hann golfkennari í Royal Isle of Wight, en fór fljótt aftur aftur heim til Skotlands; fyrst Prestwick og síðan Carnoustie.  Hann varð golfkennari í Balgownie Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 18:00

GS: Björgvin og Davíð efstir í 5. móti Ecco-haustmótaraðar GS

Það voru 58 kylfingar, sem luku leik í 5. móti Ecco-haustmótaraðar GS s.l. laugardag 5. nóvember.  Enginn kvenkylfingur var meðal keppenda að þessu sinni. Úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur án forgjafar: 1. sæti Björgvin Sigmundsson, GS, 76 högg. 2. sæti Ögmundur Máni Ögmundsson, GR, 77 högg. 3. sæti Hörður Sigurðsson, GR, 80 högg. 4. sæti Helgi Svanberg Ingason, GKG, 82 högg. 5. sæti Eyþór Ágúst Kristjánsson, GOB, 83 högg. 6. sæti Davíð Hreinsson, GVS, 83 högg.   Punktakeppni með forgjöf: 1. sæti Davíð Hreinsson, GVS, 37 pkt. 2. sæti Helgi Svanberg Ingason, GKG, 36 pkt. 3. sæti Ögmundur Máni Ögmundsson, GR, 36 pkt. 4. sæti Hinrik Stefánsson, GR, 34 pkt. 5. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: David Duval – 9. nóvember 2011

Afmæliskylfingur dagsins er Bandaríkjamaðurinn David Duval, en hann fæddist 9. nóvember 1971 í Jacksonville, Flórída og á því 40 ára stórafmæli í dag. David Robert Duval er fyrrum nr. 1 á heimslistanum og alltaf kallaður DD eða „Double D“ af vinum sínu. Hann hefir sigrað 19 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af 13 sinnum á PGA mótaröðinni. Einn fræknasti sigur hans er að hafa sigrað á Opna breska árið 2001. David býr í Cherry Hills Village, Colorado og er kvæntur Susan Persichitte Duval.  Saman eiga þau börnin Brayden & Sienna Duval, en fyrir átti Susan, Deano, Nick & Shalene Karavites, sem eru stjúpbörn David. David lærði ungur að spila golf af föður Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 12:00

Faðir Christian og Luke Donald varð bráðkvaddur

Faðir nr. 1 í heiminum í golfinu, Luke Donald og Christian Donald, sem er kylfuberi Martin Kaymer, var bráðkvaddur s.l. mánudag. Colin Donald heitni sagði eitt sinn í Chicago Tribune um son sinn Luke: „Luke er strákur í jafnvægi. Hann hefir alltaf verið þannig. Hann líkist pabba sínum, hugsa ég, í því að hann er á  frábæran og rólyndislegan  hátt ákveðinn í að ná árangri. Því erfiðari sem hlutirnir eru, þeim mun meir rís hann undir þeim.” Á heimasíðu PGA Tour sagði í fréttatilkynningu í gær: „Okkar innilegasta samúð er með Luke og Diane Donald og fjölskyldu þeirra, eftir að faðir Luke lést í gær. Þau eru í huga okkar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 11:00

Myndasería og úrslit: Horft til baka yfir íslenska golfsumarið – Taylormade Adidas mótið í Korpunni, 22. maí 2011

Opna TaylorMade/Adidas mótið var haldið á Korpúlfsstaðavelli sunnudaginn 22. maí 2011. Mótið var jafnframt fyrsta opna mót sumarsins hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Skráðir til leiks voru 169, þar af 20 konur. Það voru 164 sem luku keppni, þar af 18 konur. Ræst var út frá kl.8:00. Leikfyrirkomulag mótsins var höggleikur og punktakeppni. Hámarksforgjöf var gefin 18 hjá körlum og 24 hjá konum. Kylfingar sem voru með 4,4 og lægra spiluðu á hvítum teigum í höggleik. Veitt voru glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni í karla- og kvennaflokki. Einnig voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í höggleik og fyrir besta skor kvenna. Nándarverðlaun voru síðan veitt þeim sem var Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 10:30

Caroline og Rory: nr. 1 og nr. 2 í heiminum

Rory McIlroy, 22 ára, frá Norður-Írlandi er nú nr. 2 á lista vikunnar yfir bestu kylfinga heims. Kærasta hans, Caroline Wozniacki er hins vegar nr. 1 í heiminum í kvenna-tennisnum. Rory setti niður afar mikilvægan fugl á 72. holu HSBC Champions, sem reyndist dýrmætt pútt. Það varð til þess að hann deildi 4. sætinu í mótinu ásamt þeim Charl Schwartzel og Paul Casey.  Lee Westwood, hins vegar, endaði í 13. sæti ásamt Ian Poulter og Xin-jun Zhang.  Þessi úrslit urðu til þess að Rory velti Westwood úr 2. sætinu á heimslistanum. Myndina hér að ofan tweetaði G-Mac, (Graeme McDowell), vinur Rory  og landi- en á henni sýna skötuhjúin stöðu sína Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 08:00

Adam Scott neitar því að kynþáttaníð Steve Willams hafi kostað sig sigursæti í Sheshan

Adam Scott hefir borið tilbaka staðhæfingar um að kynþáttaníð kylfubera hans, Steve Williams, hafi kostað hann sigurinn á HSBC Champions mótinu í Sheshan og segir Ný-Sjálendinginn (Williams) hafa haft góð áhrif á leik sinn. Adam var í 3. sæti fyrir lokahringinn á heimsmótinu í Shanghaí (þ.e. HSBC-mótinu) en skilaði hring vonbrigða upp á 73 högg og varð T-11. Varðandi áhrif ummæla Steve Williams á leik sinn sagði Adam Scott: „Ég tel ekki að þau hafi haft áhrif á golfsveiflu mína. Ég myndi segja að það væri bara tilviljun (að lenda í 11. sæti). Hann (Steve Williams) er hluti af liði mínu og það var allt mjög ógæfulegt og mér fannst Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 07:00

Undankeppni Evrópuliðs karlaliða fer fram á Hvaleyrinni í júlí 2012

Á fundi EGA (Europen Golf Association) var samþykkt að Undankeppni Evrópumóts karlaliða í golfi færi fram á Íslandi 12.-14. júlí 2012. Fulltrúi EGA kom til Íslands í september s.l. og tók út nokkra velli hér á landi. Í framhaldi af þeirri heimsókn og ákvörðun mótanefndar EGA, var samþykkt í stjórn GSÍ að fara þess á leit við Golfklúbbinn Keili að mótið færi fram á Hvaleyrarvelli. Stjórn Golfklúbbsins Keilis tók málið fyrir á síðasta stjórnarfundi og var það samþykkt. Lið Íslands keppir á mótinu, en reiknað er með að  12-14 lið skrái sig til leiks. Einungis 13 þjóðir tryggðu sér sæti á Evrópumóti liða í Portúgal s.l. sumar og síðan bætast Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2011 | 06:00

Opna TaylorMade-Adidas mótið á Korpunni – 22. maí 2011