Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2011 | 11:00

Lexi elskar lífið: „Þetta er búið að vera frábært“

Sextán ára, sjö mánaða og átta daga gömul. Í golfinu skiptir aldur bæði hár og lágur máli, þegar kemur að einhverju sérstöku afreki og eftir smá tíma umhugsunar þá er sigur Lexi Thompson á Navistar LPGA Classic, þann 18. september 2011 einmitt sérstakur í ljósi aldurs. Táningurinn frá Flórída (Lexi) bætti fyrra met um meira en 2 ár, þ.e. varð yngst til að sigra fjölhringjamót á LPGA – en það er að þakka stuttri ævilangri erfiðisvinnu hennar (Lexi), íþróttamannslegum hæfileikum og snilldar foreldrum (Scott og Judy), sem stutt hafa hana í golfinu. Lexi mun sem kunnugt er fá fullan þátttökurétt á LPGA 2012 eftir að hafa á árangursríkan hátt fengið undanþágu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2011 | 09:00

Bandaríkjamenn með sterkara lið í Forsetabikarnum að mati Aron Baddeley

Aaron Baddeley hefir sagt Alþjóðaliðið vera veikari aðilann í Forsetabikarskeppninni í keppninni við Bandaríkin, sem hefst á morgun í Ástralíu. Nýliðinn á mótinu (Aron Baddeley) sagði að þrátt fyrir að 5 Ástralíubúar væru í liðinu, sem hefðu staðarþekkingu á Royal Melbourne, þá væri bandaríska liðið sigurstranglegra. Alþjóðaliðið hefir aðeins sigrað 1 sinni þegar mótið var fyrst haldið á Royal Melbourne árið 1998 og eins voru liðin jöfn 2003 í Suður-Afríku. „Ef horft er á söguna hafa Bandaríkin dóminerað Forsetabikarinn og ég held að við komum hingað sem það lið sem ólíklegra er að sigri jafnvel þó við höfum forskot á þá varð varðar þekkingu á golfvellinum,“ sagði Aron Baddley. „Augljóslega erum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2011 | 08:00

Paranirnar í Forsetabikarnum – 6. viðureignin: Choi og Scott spila g. Tiger og Stricker!

Það fór kliður um fjölmiðlaherbergið þegar paranirnar fyrir 1. dag Forsetabikarsins, þar sem leikinn er fjómenningur voru tilkynntar. Þær eru eftirfarandi: USA = lið Bandaríkjanna INT = Alþjóðaliðið 1. viðureign: Ernie Els og Ryo Ishikawa (INT) – Bubba Watson og Webb Simpson (USA) 2. viðureign: Bill Haas og Nick Watney (USA) – Geoff Ogilvy og Charl Schwartzel (INT) 3. viðureign: Aaron Baddeley og Jason Day (INT) – Dustin Johnson og Matt Kuchar (USA) 4. viðureign: Phil Mickelson og Jim Furyk (USA) – Retief Goosen og Robert Allenby (INT) 5. viðureign: K.T. Kim og Y.E. Yang (INT) – Hunter Mahan og David Toms (USA) 6. viðureign: Tiger Woods og Steve Stricker Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2011 | 07:00

Viðtal við Ryo Ishikawa fyrir Forsetabikarskeppnina

Dagana 14.-20. nóvember fer fram í Ástralíu Forsetabikarskeppnin í Royal Melbourne golfklúbbnum. Þar keppa Bandaríkjamenn við Alþjóðaliðið, þ.e. heimsúrval frá öllum ríkjum heims nema Evrópu. Meðal þeirra síðustu til að mæta á æfingu var japanski kylfingurinn Ryo Isikawa, fyrirliða Alþjóðaliðsins, Greg Norman, til lítillar ánægju. Nánast við komuna til Ástralíu var tekið eftirfarandi viðtal við Ryo í Royal Melbourne golfklúbbnum: SP. Ryo, fyrst af öllu hvernig fannst þér golfvöllurinn? Þetta er í fyrsta sinn, sem þú ert hér og  þú ert í fyrsta ráshóp með Ernie (Els) á morgun, hversu spenntur ertu að spila með honum?  RYO ISHIKAWA: Ég spilaði völlinn í fyrsta skipti í gær og mér finnst flatirnar mjög Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 23 – Harold Horsefall Hilton

Harold Horsfall Hilton fæddist þann 12. janúar 1869 í West Kirby. Árið 1892 vann hann Opna breska í Muirfield og varð 2. áhugamaðurinn til þess að sigra mótið. Hann vann aftur árið 1897 á heimavelli, Royal Liverpool Golf Club í Hoylake. Aðrir áhugamenn sem sigrað hafa Opna breska eru John Ball og Bobby Jones. Hilton vann líka The Amateur Championship 4 sinnum, þ.m.t. 1911 þegar hann var eini breski kylfingurinn til þess að sigra bresku og bandarísku áhugamannakeppnirnar (ens.: British and US Amateurs) sama árið. Hilton dró sig úr golfíþróttinni með 99-29 rekorð (77,3%) á Amateur Championship. Árið 1912 átti hann stóran þátt í að hanna Ferndown golfklúbbinn í Dorset, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2011 | 19:00

Mickey Wright gefur bandaríska golfsambandinu golfminjagripi

Mickey Wright gaf bandaríska golfsambandinu (USGA=United States Golf Association) í gær veglega gjöf: alla silfurverðlaunabikarara sína úr Opnu bandarísku kvenmótunum (US Women´s Open), sem hún vann; fræga Bulls-Eye pútteinn sinn, sem hún púttaði með í öll skipti nema eitt í þeim 82 sigrum sem hún vann; sjaldgæfa upptöku af golfsveiflu sinni, sem sjálfir Ben Hogan og Byron Nelson sögðu vera bestu golfsveiflu, sem þeir hefðu nokkru sinni séð. Mickey Wright hefir geymt þessa sögulegu gripi á heimili sínu í næstum 40 ár, sumt á borðum og hillum og sumt í skápum og undir rúmi sínu. Hún hefir aldrei hugsað mikið um þá. Mickey Wright er af mörgum álitin besti kvenkylfingur í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2011 | 16:00

Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Nurse Open, 3. júní 2011

Árlegt golfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra fór fram á Strandarvelli á Hellu, hjá GHR,  föstudaginn 3. júní 2011 í sumar.  Aðalstyrktaraðili mótsins var Actavis. Alls voru 48 skráðir til leiks og lauk 47 keppni í ágætis en samt fremur köldu veðri. Allir voru ræstir út kl. 13 og komið í skálann í nýbakaðar kökur og verðlaunaafhendingu á eftir. Keppnisfyrirkomulagið var punktakeppni með forgjöf. Helstu úrslit urðu eftirfarandi: 1. sæti Kristín Ingibjörg Gunnarsdóttir, GO, 33 pkt. 2. sæti Ingrid María Svensson, GR,  32 pkt. 3. sæti Jóhanna Sigtryggsdóttir, GKG, 31 pkt. 4. sæti Kristín Gunnarsdóttir, GKJ, 31 pkt. 5. sæti Auður Elísabet Jóhannsdóttir, GR, 31. pkt. 6. sæti Kristján Gunnarsson, GO, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ottó Sigurðsson – Lorena Ochoa 30 ára – 15. nóvember 2011

Það er Ottó Sigurðsson, GKG, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ottó fæddist 15. nóvember 1979 og er því 32 ára í dag. Ottó hefir æft golf frá árinu 1993, þ.e. frá 14 ára aldri.  Hann var m.a. skráður í PGA á Íslandi  og því atvinnumaður í golfi 2007-2009. Hann hefir staðið sig geysivel í fjölmörgum opnum mótum og mætti sem dæmi nefna glæsilegan sigur hans í ZO-ON mótinu 19. júní 2010, þegar hann spilaði Hvaleyrina á -5 undir pari, 66 höggum. Aðeins 3 vikum áður sigraði Ottó höggleikinn á Vormóti Hafnarfjarðar og svo mætti sem dæmi nefna sigur hans á 1. maí móti GHR 2008. Ottó á fastasæti í karlasveit GKG Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2011 | 11:45

Nurse Open hjá GHR, 3. júní 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2011 | 11:00

Listi yfir 50 bestu golfkennara í Bandaríkjunum – Butch Harmon nr. 1

Á Golf Digest fer árlega fram val á besta golfkennara í Bandaríkjunum. Gerð er könnun meðal 1500 golfkennara í öllum ríkjum Bandaríkjanna og þeir síðan látnir velja þann, sem þeim finnst bestur. Í 6 af 7 þessara kannanna hefir Butch Harmon fyrrum sveifluþjálfi Tiger Woods og fleiri fyrirmanna verið valinn besti golfkennari Bandaríkjanna.  Í ár vann Butch jafnframt með stærsta mun, sem nokkurn tímann hefir verið í þessari könnun, 75 atkvæðum. Nokkra athygli vekur að efsti kvenkyns golfkennari er ekki fyrr en í 19. sæti, en það er hin sænska Pia Nilsson. Eins er nokkur verðmunur á hvað tíminn hjá bestu golfkennurunum kostar. Butch tekur þannig $ 1.000,- fyrir tímann (U.þ.b. Lesa meira