Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2011 | 08:00

Paranirnar í Forsetabikarnum – 6. viðureignin: Choi og Scott spila g. Tiger og Stricker!

Það fór kliður um fjölmiðlaherbergið þegar paranirnar fyrir 1. dag Forsetabikarsins, þar sem leikinn er fjómenningur voru tilkynntar. Þær eru eftirfarandi:

USA = lið Bandaríkjanna

INT = Alþjóðaliðið

1. viðureign: Ernie Els og Ryo Ishikawa (INT) – Bubba Watson og Webb Simpson (USA)
2. viðureign: Bill Haas og Nick Watney (USA) – Geoff Ogilvy og Charl Schwartzel (INT)
3. viðureign: Aaron Baddeley og Jason Day (INT) – Dustin Johnson og Matt Kuchar (USA)
4. viðureign: Phil Mickelson og Jim Furyk (USA) – Retief Goosen og Robert Allenby (INT)
5. viðureign: K.T. Kim og Y.E. Yang (INT) – Hunter Mahan og David Toms (USA)
6. viðureign: Tiger Woods og Steve Stricker (USA) – Adam Scott og K.J. Choi (INT)

Ljóst er því að Tiger Woods og fyrrum kylfusveinn hans, Steve Williams, sem nýlega komst í fréttirnar vegna kynþáttaníðs hans um Tiger í kaddýveislu munu mætast. En einnig mætir Tiger vini sínum til langs tíma KJ Choi og spilar með öðrum kylfingi, sem mikið hefir verið í fréttum að undanförnu, en fyrir utan að vera hæst metni kylfingur á heimslistanum, sem þátt tekur í mótinu (5. sæti) er hann umdeildur vegna þess að margir meina að Keegan Bradley hefði fremur átt skilið sæti í liðinu, þar sem Stricker hefir þjáðst af meiðslum í hálsvöðva.

En mestu athygli vekur þó að návígi Woods og Williams. Aðspurður um viðureign 6 notaði Jim Furyk orðið: „Áhugavert“ tvisvar.

Um viðureignina hafði Greg Norman, fyrirliði Alþjóðaliðsins eftirfarandi að segja: „Ég hef ekki talað við Steve Williams. Hans djobb er að bera poka Adam Scott og það skiptir engu máli hvort þeir spila gegn Tiger Woods eða ekki.“