
Afmæliskylfingur dagsins: Ottó Sigurðsson – Lorena Ochoa 30 ára – 15. nóvember 2011
Það er Ottó Sigurðsson, GKG, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ottó fæddist 15. nóvember 1979 og er því 32 ára í dag. Ottó hefir æft golf frá árinu 1993, þ.e. frá 14 ára aldri. Hann var m.a. skráður í PGA á Íslandi og því atvinnumaður í golfi 2007-2009. Hann hefir staðið sig geysivel í fjölmörgum opnum mótum og mætti sem dæmi nefna glæsilegan sigur hans í ZO-ON mótinu 19. júní 2010, þegar hann spilaði Hvaleyrina á -5 undir pari, 66 höggum. Aðeins 3 vikum áður sigraði Ottó höggleikinn á Vormóti Hafnarfjarðar og svo mætti sem dæmi nefna sigur hans á 1. maí móti GHR 2008.
Ottó á fastasæti í karlasveit GKG í sveitakeppnum GSÍ og átti á árum áður fastasæti í golflandsliðinu, enda með betri kylfingum landsins. Hann spilaði á úrtökumóti í von um að komast á Evrópumótaröðina árið 2007, en hafði því miður ekki árangur sem erfiði.
Eftirminnilegt er þegar Ottó varð Íslandsmeistari í holukeppni 2007, en á úrslitahringnum gerði hann sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 13. braut.
Ottó Sigurðsson var valinn íþróttamaður Garðabæjar 2000, en það ár átti hann m.a. 3 vallarmet hérlendis: 67 högg á Jaðarsvelli (GA); 62 högg á Gufudalsvelli (GHG) og 71 högg á gamla vellinum í Leirdalnum (GKG).
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið!
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Lorena Ochoa 15. nóvember 1981 (30 ára); Sóley Kristmundsdóttir, 15. nóvember 1990 (21 árs).
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge
- ágúst. 7. 2022 | 14:50 Íslandsmótið 2022: Perla Sól og Kristján Þór leiða eftir 3. dag
- ágúst. 7. 2022 | 14:30 Íslandsmótið 2022: Lokatilraun til að spila 4. hring verður gerð kl. 16:30
- ágúst. 6. 2022 | 22:00 Íslandsmótið 2022: Hulda Clara og Sigurður Bjarki jöfnuðu vallarmetin á Vestmannaeyjavelli
- ágúst. 6. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (31/2022)
- ágúst. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Doug Ford, Pétur Steinar Jóhannesson og Michel Besancenay – 6. ágúst 2022
- ágúst. 5. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gylfi Rútsson – 5. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Þór Unnarsson – 4. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 14:00 Forsetabikarinn 2022: Davis Love III útnefnir Simpson og Stricker sem varafyrirliða