Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2011 | 06:00

Birgir Leifur spilar á 2. úrtökumóti Evrópumótaraðarinnar á Costa Ballena

Birgir Leifur Hafsteinsson, GKG, spilar á 2. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina, dagana 2. – 5. desember. Spilað er samtímis á 4 völlum á Spáni: 1. Costa Ballena, Cadiz. 2. Las Colinas, Alicante. 3. El Valle, Murcia. 4. La Manga, Cartagena. Birgir Leifur valdi að spila á Costa Ballena keppnisvellinum, sem mörgum Íslendingnum er að  góðu kunnur, m.a. vegna Golfskóla Magnúsar og Harðar, sem starfræktur hefir verið þar um árabil. Golf 1 mun vera með kynningu á öllum golfvöllum 2. stigs úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina og verður að sjálfsögðu byrjað hér á eftir á vellinum sem Birgir Leifur valdi sér: Costa Ballena. Birgir Leifur slapp við að spila á 1. stigi úrtökumótsins, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2011 | 18:00

Hverjir töpuðu og hverjir unnu í Forsetabikarskeppninni?

Golf Digest er með skemmtilega samantekt í máli og myndum um hverjir töpuðu og hverjir unnu í keppninni um Forsetabikarinn, sem fram fór á Royal Melbourne í Ástralíu þessa helgi.  Sjá má myndskeið Golf Digest með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2011 | 16:00

Hver er kylfingurinn: Jim Furyk? – Fyrri grein –

Jim Furyk vann alla leiki sína fyrir bandaríska liðið í Forsetabikarnum og er sá kylfingur, sem allir fyrirliðar myndu vilja hafa í liði sínu. „Frábær!“ í einu orði. En hver er kylfingurinn Jim Furyk? James Michael (alltaf kallaður Jim) Furyk fæddist 12. maí 1970 í West Chester, Pennsylvaníu. Á þeim tíma var pabbi hans aðstoðargolfkennari í Edgmont Country Club og seinna einnig í  Chester Golf and Country Club og Hidden Springs golfklúbbnum í Horsham. Furyk ólst upp í úthverfum Pittsburgh og lærði að spila golf af pabba sínum, sem þá var orðinn yfirgolfkennari í Uniontown Country Club nálægt Pittsburgh. Jim Furyk útskrifaðist frá Manheim Township Highschool í Lancaster County, Pennsylvaníu, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2011 | 14:00

Garth Mulroy sigraði á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku

Í Leopard Creek CC, Malelane, Suður-Afríku fór nú um helgina fram mót, sem er samstarfsverkefni Evrópumótaraðarinnar og Sólskinstúrsins: Alfred Dunhill Championship. (Til þess að sjá grein greinarhöfundar um Leopard Creek,þar sem Alfred Dunhill mótið fór fram um helgina smellið HÉR: ) Fyrir lokahringinn, s.l. laugardag átti hinn 33 ára Garth Mulroy frá Suður-Afríku 2 högg á Jbe Kruger, en fékk skolla á 2. holu á lokahringnum, þannig að Jbe náði að jafna, en Jbe missti síðan aftur niður tækifærið til að komast í forystu með skramba, 6 höggum á par-4, 9. brautinni, þegar hann sló boltann í vatn. Garth Mulroy fékk síðan 4 fugla á 6.-13. holu og virtist hafa tryggt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rebecca Flood – 21. nóvember 2011

Rebecca Flood frá Ástralíu er afmæliskylfingur dagsins. Rebecca fæddist 21. nóvember 1988 í Coonabarabran New South Wales í Ástralíu og er því 23 ára í dag. Rebecca byrjaði að spila golf 10 ára eftir að hún fylgdist með pabba sínum, sem er eigandi bakarís, spila golf. Rebecca þakkar fjölskyldu sinni og þjálfara, Gary Edwin fyrir góðan árangur sinn í golfinu, en hún hefir spilað á Evrópumótaröð kvenna (LET) frá árinu 2010. Rebecca stundaði nám við NSW Institute of Sport. Hún kemur frá litla bænum  Coonabarabran í New South Wales (NSW) og þegar hún var að vaxa úr grasi varð hún að keyra í 10  tíma til Sydney a.m.k. 6 sinnum á ári til Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2011 | 08:00

Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Hatta-og pilsamót GK – 24. júní 2011

Hatta- og pilsamót GK fór fram 24. júní nú í sumar. Konur fjölmenntu í skemmtilegum pilsum og í fjölbreytilegum höfuðfötum.  Veðrið var eins og það gerist best, en mótið féll nokkuð í skuggann á Símamóti Eimskipsmótaraðarinnar, sem fram fór á sama tíma á Hvaleyrinni. Í Hatta-og pilsamótinu voru spilaðar 9 holur á Sveinkotsvelli og er óhætt að segja að hvað verðlaun varðar, að engin hafi farið tómhent úr mótinu.  Hulda Hermannsdóttir vann höggleikinn. Með því að smella hér má sjá myndaseríu úr mótinu: HATTA- OG PILSAMÓT GK 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2011 | 06:30

Hatta- og pilsamót GK, 24. júní 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2011 | 06:15

LPGA: Hee Young Park sigraði CME Group Titleholders

Það var Hee Young Park sem sigraði á CME Group Titleholders mótinu, sem fór fram nú um helgina í Grand Cypress Resort í Flórída. Hee Young spilaði á samtals -9 undir pari. þ.e. 279 höggum (71 69 69 70). Þar með hlaut hún $ 500.000,- sigurtékka. Í 2. sæti, tveimur höggum á eftir Hee Young voru þýska W-7 módelið Sandra Gal og „bleiki Pardusinn“ alías Paula Creamer, báðar á -7 undir pari samtals hvor. Fjórða sætinu deildu Suzann Pettersen frá Noregi og hin kóreanska Na Yeon Choi á samtals -6 undir pari hvor. Til þess að sjá úrslitin á CME Group Titleholders mótinu, smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2011 | 20:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 26 – James Braid

James Braid (f. 6 febrúar 1870 – d. 27. nóvember 1950) var skoskur atvinnukylfingur og ein af 3 golfgoðsögnum síns tíma; hinir voru Harry Vardon og John Henry Taylor. James Braid vann Opna breska risamótið 5 sinnum. Hann var líka golfvallararkítekt og golfbókarhöfundar. James Braid fæddist í Earlsferry, Fife í Skotlandi og spilaði golf frá unga aldri. Hann starfaði sem kylfiusmiður áður en hann gerðist atvinnumaður í golfi 1896. Leikur hans var í vandræðum vegna púttanna, en þau yfirvann hann þegar hann byrjaði að nota nýjan pútter úr áli, 1900. James Braid sigraði á Opna breska árin 1901, 1905, 1906, 1908 og 1910. Auk þess sigraði Braid í fjórgang á British PGA Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2011 | 16:00

Hver er kylfingurinn Catriona Matthew?

Fyrir viku síðan vann skoskur kylfingur, sem sjaldnast hlýtur mikla umfjöllun fyrir golfleik sinn, 4. sigur sinn á LPGA á Lorena Ochoa Invitational í Guadalajara, Mexikó. Hver er kylfingurinn Catriona? Catriona Isobel Matthew (fædd Lambert), MBE, fæddist 25. ágúst 1969 í Edinborg í Skotlandi en ólst upp í North Berwick, þaðan sem margir af fremstu kylfingum Skotlands hafa komið í gegnum tíðina. Catriona lærði að spila golfi á barnavellinum á North Berwick West Links. Hún var frábær kylfingur strax á unglings aldri og átti glæsilegan áhugamannaferil, sigraði m.a Scottish Girls champion árið 1986, varð skoskur meistari undir 21 árs í höggleik 1988 og 1989.  Hún varð skoskur meistari 1991, 1993 og Lesa meira