Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2011 | 14:00

Garth Mulroy sigraði á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku

Í Leopard Creek CC, Malelane, Suður-Afríku fór nú um helgina fram mót, sem er samstarfsverkefni Evrópumótaraðarinnar og Sólskinstúrsins: Alfred Dunhill Championship. (Til þess að sjá grein greinarhöfundar um Leopard Creek,þar sem Alfred Dunhill mótið fór fram um helgina smellið HÉR: )

Fyrir lokahringinn, s.l. laugardag átti hinn 33 ára Garth Mulroy frá Suður-Afríku 2 högg á Jbe Kruger, en fékk skolla á 2. holu á lokahringnum, þannig að Jbe náði að jafna, en Jbe missti síðan aftur niður tækifærið til að komast í forystu með skramba, 6 höggum á par-4, 9. brautinni, þegar hann sló boltann í vatn.

Garth Mulroy fékk síðan 4 fugla á 6.-13. holu og virtist hafa tryggt sér sigur, sem aftur varð tvísýnt um hann þegar hann missti högg á 14. braut og Skotinn George Murray átti frábært högg á löngu 15. brautinni og fékk örn.

 

George Murray

En síðan paraði Murray afgang hringsins og náði besta árangri sínum á ferlinum 2. sæti í mótinu; en Garth Mulroy fékk fugl á 15. og 16. brautum þann síðarnefnda með 20 metra pútti niður í móti og lauk hringnum með skor upp á 68 högg þ.e. samtals -19 undir pari; samtals 269 höggum (69 68 64 68).

„Ég reyndi bara að spila skynsamlega og slá á réttu staðina,” sagði Mulroy, sem heftir tvo sigra á Sólskinstúrnum í beltinu og á nú möguleika á að verða í efsta sæti á Order of Merit í South African Open í næstu viku.

„Ég vissi það um miðbik lokahringsins að ég ætti möguleika á að sigra,” bætti Mulroy við og vísaði þar með til monster pútts síns á 16. braut.

Sigurlaunin fyrir 1. sætið upp á €158,500 opna dyr Garth Mulroy fyrir Evróputúrnum aðeins mánuði eftir að hann tryggði sér kortið sitt á PGA mótaröðinni bandarísku árið 2012 í gegnum Nationwide Tour.

George Murray hins vegar náði besta árangri sínum 7 vikum eftir að hann varð í 3. sæti á Alfred Dunhill Links Championship á St. Andrews, þar sem náði m.a. betra skori en nr. 1 í heiminum, Luke Donald, á lokahringnum.

Skorið á lokahringnum -5 undir pari, 67 högg tryggði honum 2. sætið, með samtals skor upp á -17 undir pari, samtals 271 högg (66 69 69 67). Skotinn George Murray átti því 4 högg á þá sem deildu 3. sæti:  Peter Whiteford, landa sinn; George Coetzee og Jaco van Zyl frá Suður-Afríku og Felipe Aguilar, frá Chile, sem allir voru á -13 undir pari, samtals 275 höggum.

Murray var í 183. sæti í The Race to Dubai í október og var í mikilli hættu að verða að fara í 6. skiptið í Q-school.

Nú er þessi 28 ára meistari áhugamanna í Skotlandi 2004, innan topp 80 með verðlaunafé upp á meira en €380,000 á þessu keppnistímabili.

Sigur Garth Mulroy í mótinu var 100. sigur Suður-Afríkana á Evrópumótaröðinni og sagði að sigurinn fengi honum nokkur spennandi tækifæri.

„Ég á mörg tækifæri núna og það er frábært að fá þetta val. Ég vil vera efstur á lista þeirra bestu á Sólskinstúrnum (ens. the Sunshine Tour Order of Merit). Ég á forskot núna en ég slappa ekki af fyrr en vikan er liðin.”

Til þess að sjá úrslit á Alfred Dunhill í Suður-Afríku smellið HÉR:

Heimild: europeantour.com