Afmæliskylfingur dagsins: Bobby Locke – 20. nóvember 2011
Afmæliskylfingur dagsins er Arthur D´Arcy „Bobby“ Locke. Bobby fæddist 20. nóvember 1917 í Germiston Suður-Afríku og hefði orðið 94 ára í dag, hefði hann lifað. Hann er fyrsti kylfingurinn frá Suður-Afríku sem eitthvað kvað að á alþjóðavettangi. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1938. Á löngum ferli sínum vann hann 72 sigra m.a. vann hann Opna breska 4 sinnum: 1949, 1950, 1952 og 1957. Bobby Locke fékk m.a. inngöngu í frægðarhöll kylfinga 1977. Hann lést í Jóhannesarborg, Suður-Afríku 1987. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Íris Ægisdóttir, f. 21. nóvember 1953. Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið Lesa meira
Úrslit í Forsetabikarnum: Bandaríkin 19 – Alþjóðaliðið 15
Tvímenningsleikirnir fóru fram í Forsetabikarnum í nótt Þeir breyttu engu um 4 leikja forystu Bandaríkjanna, sem vann Forsetabikarinn 2011. Lokastaðan var 19-15 fyrir Bandaríkin. Í tvímenningnum unnu bæði lið 6 leiki. Alþjóðaliðið vann eftirfarandi leiki: 1. K.T. Kim vann Webb Simpson 1&o 2. Charl Schwartzel vann Dustin Johnson 2&1 3. Ryo Ishikawa vann Bubba Watson 3&2 4. Geoff Ogilvy vann Bill Haas 2&0 5. Adam Scott vann Phil Mickelson 2&1 6. Retief Goosen vann Matt Kuchar 1&0. Bandaríska liðið vann eftirfarandi leiki: 1. Hunter Mahan vann Jason Day 5&3. 2. Nick Watney vann KJ Choi 3&2. 3. Jim Furyk vann Ernie Els 4&3. 4. David Toms vann Robert Allenby Lesa meira
Evróputúrinn: Joost Luiten vann Iskandar Johor Open
Það var Hollendingurinn Joost Luiten sem sigraði á Iskandar Johor Open. Mótið hefir farið fram undanfarna 4 daga á Horizon Hill G &CC, í Johor í Malasíu. Mótið var stytt vegna veðurs í 54 holu mót. Sigurskor Joost var -15 undir pari, samtals 198 högg (63 70 65). Í 2. sæti varð Svíinn Daníel Chopra, 1 höggi á eftir Luiten þ.e. samtals á -14 undir pari, 199 höggum (64 65 70). Þriðja sætinu deildu 3 góðir: Pádraig Harrington, Rhys Davies og James Morrisson allir á -13 undir pari hver, þ.e. samtals 200 höggum. Til þess að sjá úrslit á Iskandar Johor Open smellið HÉR:
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Opna ZO-ON golfmótið hjá GK – 18. júní 2011
Það voru tæplega 200 manns sem tóku þátt í Opna Zo-On golfmótinu á Hvaleyrarvelli, hjá golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, laugardaginn 18. júní í sumar. 193 luku keppni, 31 kona og 162 karlar. Keppnisfyrirkomulagið var höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Veðurguðirnir brostu við keppendum og var mótið hið skemmtilegasta og vel lukkað í alla staði. Hér má sjá myndaseríu frá mótinu: OPNA ZO-ON 2011 Úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur án forgjafar: 1. sæti Hlynur Geir Hjartarson, GOS, Vallarforgjöf: -4, 69 högg. Hlynur hlaut 45.000 kr. gjafabréf hjá ZO-ON Nýbýlavegi í verðlaun fyrir 1. sætið. 2. sæti Úlfar Jónsson, GKG, Vallarforgjöf: -2, 70 högg. Úlfar hlaut 25.000 kr. gjafabréf hjá Lesa meira
Opna ZO-ON golfmótið hjá GK – 18. júní 2011
GR: Camilla og Snorri Páll sigruðu í 2. Opna Nóvembermóti GR
Opna Nóvembermót GR var haldið í gær, laugardaginn 19.nóvember, í fallegu veðri. Þetta er annað mótið sem GR heldur í nóvember 2011 og voru kylfingar mjög ánægðir með það. Alls voru 97 kylfingar sem tóku þátt, þar af 4 konur. Veitt voru verðlaun fyrir 1.-3. sæti í punktakeppni, besta skor og nándarverðlaun á 6. og 16. braut. Úrslitin voru eftirfarandi: Punktakeppni: 1.sæti: Camilla M. Tvingmark, GKJ, 41 punktur. 2.sæti: Kristján Þór Sveinsson, GR, 37 punktar. 3.sæti: Rúnar Sigurður Guðjónsson, GK, 37 punktar. Besta skor: Snorri Páll Ólafsson 73 högg Nándarverðlaun: 6.braut:Sigurjón Þór Sigurjónsson, GR, 13,7 cm 16.braut: Magnús S Ólafsson, GO, 4,23 m .
Birgir Leifur spilaði á 70 höggum 4. dag úrtökumóts fyrir PGA – Komst ekki áfram
Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki áfram á lokaúrtökumót PGA, sem fram fer í Flórída í desember n.k. Hann spilaði 4. og síðasta hring á 2. stigi úrtökumóts PGA á 70 höggum, spilaði skollafrítt og fékk 1 fugl; en það dugði ekki, því aðeins 20 efstu af 73 þátttakendum komust áfram. Birgir Leifur var á samtals 283 höggum (70 67 76 70) og lenti í 44. sæti ásamt 6 öðrum. Sá sem varð í 1. sæti Eric Flores spilaði á samtals 268 höggum og þeir heppnu sem urðu jafnir í 18. sæti spiluðu á 276 höggum. Birgir Leifur hefði því þurft að spila samtals 7 höggum betur til þess að tryggja Lesa meira
LPGA: Sandra Gal og Hee Young Park leiða á CME Group Titleholders eftir 3. dag
Þýska W-7 módelið Sandra Gal og hin suður-kóreanska Hee Young Park leiða eftir 3. dag CME Group Titleholders. Þær eru báðar búnar að spila samtals á -7 undir pari, samtals 209 höggum; Gal (69 69 71) og Park (71 69 69). Á hæla þeirra aðeins 1 höggi á eftir er hin norska Suzann Pettersen, sem vermir 3. sætið. Í 4. sæti er síðan Paula Creamer, 2 höggum á eftir forystunni. Og 6. sætinu deila sú sem búin er að leiða fyrstu tvo dagana Na Yeon Choi og nr. 1 í heiminum Yani Tseng. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag CME Group Titleholders, smellið HÉR:
Kylfingar 19. aldar: nr. 25 – Frederick Guthrie Tait
Frederick Guthrie Tait fæddist 11. janúar 1870 í Edinborg og var sonur virts eðlisfræðings og áhugamanns í golfi Peter Guthrie Tait. Frederick hlaut menntun sína í Edinburgh Academy og Sedbergh School. Hann fór í Royal Military Academy í Sandhurst , þ.e. komst inn í 2. tilraun. Honum er þökkuð kynning á golfi þar. Tait var í 2. framvarðarsveit Leinster regiment (109 foot) og síðan í 2. framvarðasveit Black Watch. Frederick byrjaði að spila golf aðeins 5 eða 7 ára gamall og mátti spila á St. Andrews, sem var heimavöllur hans um stutta en góða ævi. Hann var einstaklega kraftmikill og högglangur kylfingur. Á Royal and Ancient Golf Club á St. Lesa meira
GS: Halldór X. og Sigurður Ómar sigruðu á Hólmsvelli
Í dag fór fram á Hólmsvelli í Leiru Vetrarmót GS. Þátttakendur voru 99, þar af 3 konur. Allir voru ræstir út samtímis kl. 10:30 og var fólk almennt ánægt með að geta spilað golf um miðjan nóvember. Veitt voru verðlaun fyrir efstu 3 sæti í punktakeppni með forgjöf og efsta sætið í höggleik án forgjafar þ.e. fyrir besta skor. Úrslit dagsins urðu eftirfarandi: Punktakeppni: 1 Sigurður Ómar Ólafsson GKG 17 F 23 19 42 42 42 2 Einar Vignir Hansson GKG 19 F 19 22 41 41 41 3 Snorri Jónas Snorrason GVS 12 F 19 21 40 40 40 4 Halldór X Halldórsson GKB 2 F 21 19 Lesa meira








