Evróputúrinn: Jiménez á högg októbermánaðar
Aðhögg Spánverjans Miguel Angel Jiménez á frægu 17. brautinni í Valderrama á lokahring Andalucia Masters var valið högg októbermánaðar á Evróputúrnum. Aðdáendur My European Tour kusu höggið með miklum meirihluta eða 70% atkvæða. Þetta var ótrúlegt aðhögg og virtist Jiménez öruggur og óttalus, þrátt fyrir að vera undir pressu og í mikilli baráttu við landa sinn, Sergio Garcia. Jiménez vissi að hann yrði að gera eitthvað sérstakt til þess að ná Garcia og sló aðhöggið í tilraun sinni til þess að ná inn á par-5 flötina í 2 höggum með brautartré og beint að pinna yfir vatnið sem ver flötina. Boltinn lenti á flatarkraganum og rúllaði inn á flöt þar Lesa meira
Aðalfundur GA haldinn 24. nóvember n.k. – Kosið um nýjan formann
Á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar er eftirfarandi fréttatilkynning: „Ágætu félagar Nú liggur það fyrir að formaður og 2 stjórnarmenn munu hætta í stjórn.Halldór hefur verið formaður klúbbsins í um átta ár og telur nú nóg komið. Uppstillingarnefnd hefur hafið störf og er búin að vera að leyta fyrir sér um menn/konur í þessi embætti og í aðrar nefndir innan klúbbsins. Ef það er einhver sem hefur áhuga á að starfa fyrir klúbbinn sinn og taka virkan þátt í rekstri hans þá vinsamlegast setjið ykkur í samband við nefndarmenn Jón Birgir Guðmundsson netfang jon.gudmundsson@sjova.is Halla Sif Svavarsdóttir halla@gagolf.is Halla Berglind Arnarsdóttir hallabegga@gmail.com Aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar verður haldinn golfskálanum að Jaðri fimmtudaginn 24. nóvember nk. kl. 20:00.“
Kylfingar 19. aldar: nr. 27 – Isette Pearson
Isette Pearson fæddist 2. nóvember 1861 og dó 25. maí 1941. Hún er nefnd móðir golfs í Surrey og var stofnandi LGU (Ladies Golf Union), í maí 1893. Hún átti m.a. stóran þátt í að móta forgjafarkerfið, sem var í molum á 19. öld. (Sjá m.a. 3. grein um: USGA minnist þess að 100 ár eru liðin frá því forgjafarkerfið var tekið upp, sem birtist hér á Golf 1 fyrr í dag, en þar er minnist Hunky Yun, á Isette.) Isette fluttist með fjölskyldu sinni til Putney 1879, þá 18 ára og gekk í Barnes golfklúbbinn og hóf þar með þátttöku í golfi í Surrey. Hún flutti sig síðan yfir Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Opna Úrval Útsýn hjá NK – 25. júní 2011
Opna Úrval-Útsýn mótið fór fram laugardaginn 25. júní á Nesvellinum í einu besta veðri sumarsins fram að því. Um 111 voru skráðir í mótið og luku 103 keppni, þar af 11 konur. Bestu tilþrif mótsins átti Baldvin Kristján Baldvinsson, GO, en hann fór holu í höggi í mótinu, á 2. holu Nesvallar. Nesvöllurinn var góður, en heldur þurr, vegna þess að ekkert hafði rignt um skeið þegar mótið fór fram. Sjá má myndaseríu frá mótinu með því að smella hér: OPNA ÚRVAL ÚTSÝN MÓTIÐ Á NESVELLI 2011 Úrslit urðu annars þessi: Höggleikur: 1. sæti – Nökkvi Gunnarsson, NK – 69 högg 2. sæti – Haukur Óskarsson, NK – 72 högg Lesa meira
Opna Úrval Útsýn mótið hjá NK – 25. júní 2011
Hver er kylfingurinn: Jim Furyk? – Seinni grein
Sveifla Jim Furyk Einkennileg einkennissveifla Jim Furyk byrjar á óhefðbundinni stöðu þar sem boltinn er staðsettur við hæl kylfunnar í stað miðju hennar eða jafnvel við tá. Hann hreyfir 1,9 metra 6’2″ líkama sinn svo nálægt að hendur hans snerta næstum því mjaðmirnar. Flestir kylfingar ættu í vandræðum með golfkylfu úr þannig upphafsstöðu. Það er skemmtilegt að bera stöðu Furyk saman við kennslubókarstöðuna sem Tiger Woods hefir, en hann hefir hendur sínar 8 þumlunga ( inches fá cm tölu) frá líkamanum, en þetta er staða sem framkalla högg og lýkur með að kylfan er yfir hægri öxlinni á toppnum og hægri olnbogi hans er eins og límdur við líkamann. Fyrir Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Ralph Guldahl – 22. nóvember 2011
Ralph J. Guldahl f. 22. nóvember 1911 í Dallas Texas –d. 11. júní 1987, Sherman Oaks, Kaliforníu) var bandarískur kylfingur, sem var einn af 10 topp kylfingum 3 ár í röð á seinni hluta 4. áratugar síðustu aldar. Hann útskrifaðist 1930 úr Woodrow Wilson High School og byrjaði að spila sem atvinnumaður í golfi í kringum 1931. Árið 1933, þá 21 árs var hann T-1 ásamt Johnny Goodman á Opna bandaríska. Par hefði nægt honum til þess að knýja fram umspil en hann fékk skolla og lenti í 2. sæti. Sigrar Guldahl á risamótum urðu alls 3: Hann vann Opna bandaríska 1937 og 1938 og varð í 2. sæti á Masters Lesa meira
Tiger er farinn að líkjast „gamla Tiger“ meira
Tiger Woods hefir ekki litið svona vel út á golfvelli tvær vikur í röð frá því hann fór frá Ástralíu með 82. titil sinn og var umdeildur nr. 1 á heimslistanum. Opna ástralska og Forsetabikarinn eru 6. skiptið frá árinu 2009 sem Woods hefir keppt 2 vikur í röð. Hann varð í 3. sæti í Sidney, 2 höggum á eftir forystunni. Hann spilaði eins vel, ef ekki betur á Royal Melbourne, jafnvel þó tölfræðin sýni að framlag hans til sigurs Bandaríkjanna voru aðeins 2 stig. Það á enn eftir að sýna sig hvort s.l. tvær vikur voru bara tilviljun eða sé efnisleg framför og Tiger sé í raun á bakaleið Lesa meira
Myndasería: Costa Ballena keppnisvöllurinn í Cadíz á Spáni
Costa Ballena er einn völlurinn sem 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina fer fram á – og sá völlur sem Birgir Leifur okkar Hafsteinsson, valdi að spila á 2. – 5. desember; en þá er keppt samtímis á 4 völlum Spánar; hinir eru Las Colinas í Alicante, El Valle í Murcia og La Manga í Cartagena. Hinir 3 vellirnir verða kynntir næstu daga. Costa Ballena Ocean Golf Club er við Atlantshafsströnd Cadiz. Í mestu nálægð eru sögulegir bæir á borð við Rota, Sanlucar de Barremeda, Jerez de la Frontera, Cadiz, El Puerto de Santa Maria og Sevilla. Keppnisgolfvöllur Costa Ballena er 27 holu, hannaður af Jose Maria Olazabal og tekinn í notkun Lesa meira






