Christina Kim spilar á Ladies Dubai Masters
Christina Kim er nýjasta (golf)stjarnan sem hefir staðfest að hún muni spila á Omega Dubai Ladies Masters, en verndari mótsins er hennar konunglega hátign prinsessan Haya bint Al Hussein, eiginkona hans hátign Sheikh Mohammed bin Rashid Al Maktoum, varaforseta og forsætisráðherra Sameinuðu Furstadæmanna og stjórnanda Dubai. Mótið fer fram í Emirates Golf Club, 14.-17. desember n.k. Þessi vinsæli bandaríski kylfingur (Kim) er hluti mikils stjörnliðs kvenkylfinga þar sem m.a. gefur að finna vinkonu hennar Michelle Wie, sendiherra „Golf in Dubai“ Lauru Davies, Melissu Reid frá Englandi, Sophie Gustafson frá Svíþjóð og Gwladys Nocera, frá Frakklandi m.a. stjarna. Kim, sem er handhafi tveggja sigurtitla á LPGA og 1 á LET, sagðist vera yfir sig Lesa meira
Omega: „Ekki ánægðir“ með Heimsbikarsmótið
Omega Watches, aðalstyrktaraðili Heimsbikarmótsins, sem fram fór á Hainan eyju í Kína hefir opinberlega gagnrýnt mótshaldið í Kína. Omega er samningsbundið til að styrkja mótið til ársins 2025, en í gær sagði forseti Omega, Steve Urquhart að Kína væri „of vanþroska markaður til þess að lyfta mótinu í alþjóðlega samkeppnishæfa stöðu.“ Hann hélt áfram og sagði að ef Heimsbikarinn ætti að verða virt mót, yrði það að spilast víðsvegar um heiminn eins og gert er í öðrum íþróttagreinum s.s. fótbolta, rugby og cricket. Hann skaut einnig á styrkleika þátttakenda þegar hann sagði: „Keppendur eru mun betri á þessu ári, en við erum ekki ánægðir.“ Skipuleggjendur mótsins Kenneth og Tenniel Chu hafa Lesa meira
„Strákarnir okkar“ í 22. sæti í Portúgal
Í Vale do Lobo í Portúgal fer nú fram Evrópukeppni PGA landsliða, þ.e. dagana 26.-29. nóvember. Alls taka 26 lið frá jafnmörgum Evrópulöndum þátt. Strákarnir okkar, þeir Úlfar Jónsson, GKG, sem jafnframt er fyrirliði, Sigurpáll Geir Sveinsson, GK og Ólafur H. Jóhannesson, GSE, hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit, deila 22. sætinu í mótinu ásamt liði Slóveníu. Tvö bestu samanlögðu skor gilda eftir hvern dag og fyrsta dag mótsins var samanlagt skor íslenska liðsins 162. Síðan gekk mun betur í gær þegar strákarnir okkar bættu sig um heil 15 högg, en þá var samanlagða skorið 147. Samtals hefir íslenska liðið því spilað á 309 höggum. Frakkland, Ítalía og Lesa meira
GKG: Aðalfundur fer fram í kvöld kl. 20:00 í Golfskálanum við Vífilstaðaveg
Aðalfundur GKG, næstfjölmennasta golfklúbbs Íslands, verður haldinn í dag, mánudaginn 28. nóvember 2011, í Golfskálanum við Vifilstaðaveg. Fundurinn hefst kl: 20.00. Dagskrá aðalfundar: 1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir. 2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári. 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis. 4. Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt. 5. Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 8. gr. teknar til afgreiðslu. 6. Kosning formanns til eins árs. 7. Kosning þriggja meðstjórnenda til tveggja ára og þriggja varamanna til eins árs. 8. Kosning tveggja endurskoðenda. 9. Önnur mál. Stjórn GKG hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn.
Viðtalið: Sigríður Th. Matthiesen, GR.
Viðtal dagsins er við kylfing, fjórfaldan Íslandsmeistara í íþróttinni, sem mörgum kylfingnum er að góðu kunn – Sigríði Th. Matthíesen. Í sumar hefir hún starfað sem ræsir uppi á Akranesi hjá GL. Hér á eftir fara spurningar Golf 1 og svör Sigríðar: Nafn: Sigríður Th. Matthíesen. Klúbbur: GR. Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Hafnarfirði, 17. mars 1946. Hvar ertu alin upp? Í Hafnarfirði til 12 ára aldurs en síðan fluttist ég til Reykjavíkur og var 30 ár í Mosfellsbæ. Fjölskylduaðstæður? Ég er gift Viktor Inga Sturlaugssyni og við eigum dótturina Júlíönu og soninn Viktor Rafn og 4 barnabörn. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég var orðin 43 ára þegar ég Lesa meira
Hennie Otto vann South African Open
Suður-Afríkaninn Hennie Otto sigraði á South African Open með 1 höggi á Austurríkismanninn Bernd Wiesberger. Hennie átti fremur slakan lokahring upp á 72 högg en það dugði til að knýja fram nauman sigur. Hennie var á samtals -14 undir pari, samtals 274 höggum (70 67 65 72). Í 2. sæti var Bernd Wiesberger s.s. áður segir á 275 höggum (69 68 70 68). Þrír kylfingar deildu 3. sætinu: Englendingurinn Richard McEvoy og Suður-Afríkanarnir Ockie Strydom og Thomas Aiken. „Stóru nöfnin“ í mótinu Retief Goosen og Ernie Els lentu í 6. og 69. sætinu. Óvanalegt að sjá Els svo neðarlega en skorið hjá honum var upp á 79 í dag og Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Hisayuki Sasaki – 27. nóvember 2011
Hisayuki Sasaki fæddist 27. nóvember 1964 í Tokyo og er því 47 ára í dag. Hann hefir unnið þrívegis á japanska PGA og eins var hann meðal topp 100 á heimslistanum eitt sinn. Hann spilaði á bandaríska PGA 1996 en árangur hans þar var slakur hann náði aðeins þrívegis að vera meðal efstu 25 í mótum. Besta árangri sínum á PGA náði hann árið 1997 þegar hann varð í 3. sæti á Andersen Consulting World Championship of Golf. Með því að smella hér má sjá sveiflu afmæliskylfingsins okkar: HISAYUKI SASAKI Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Þráinn Farestveit, GK, 27. nóvember 1964 (47 ára); Danielle Ammaccapane, 27. nóvember Lesa meira
Frægir kylfingar: Edward Windsor – prinsinn sem afsalaði sér bresku krúnunni fyrir ástina
Edward Windsor, Bretaprins, sem afsalaði sér breska konungsdæminu vegna ástar sinnar á Wallis Simpson var forfallinn kylfingur. Meðan hann lifði og eftir að hafa afsalað sér bresku krúnunni bar hann tignartitilinn Duke of Windsor. Edward prins og Duke of Windsor byrjaði að spila golf 13 ára. Hann var fljótt kominn niður í 1 stafs forgjöf og gegndi formannsstöðu í mörgum golfklúbbum í Bretlandi þ.á.m. R&A 1922 (eins og afi hans Eðvarð konungur VII. hafði áður gegnt og bróðir hans George VI, sem varð konungur gerði). Eftir allan skandalinn kringum afsal krúnunnar hellti Edward sér í golf m.a. á Bahama eyjum, þar sem hann og Wallis bjuggu um skeið, meðan hann Lesa meira
Greg Chalmers stóð uppi sem sigurvegari Australian PGA Championship
Það var sigurvegari s.l. helgi á Australian Open, í The Lakes í Sydney, Ástralinn Greg Chalmers, sem sigraði á Australian PGA Championship á Hyatt Regency golfstaðnum, í Coolum, í Ástralíu í nótt. Greg Chalmers lauk lokahringnum í nótt á -5 undir pari, þ.e. 67 höggum og voru hann ásamt Robert Allenby (68) og Marcus Fraser (69) á samtals -12 undir pari þ.e. samtals 276 höggum að liðnum venjulegum leiktíma. Því þurfti að koma til umspils. Þar vann Chalmers landa sína, Allenby og Fraser á 1. holu með pari, eftir að þeir tveir síðarnefndu lentu í vandræðum með teighögg sín. „Það kom mér á óvart að par skyldi duga til að Lesa meira
Bandaríkjamennirnir Kuchar og Woodland sigruðu á Omega Mission Hills World Cup
Það var bandaríska liðstvenndin Matt Kuchar og Gary Woodland sem bar sigurorð á Omega Mission Hills Heimsbikarsmótinu í Hainan í Kína í nótt. Sigurhringur þeirra Kuchar, sem var hluti sigurliðs Bandaríkjanna í Forsetabikarnum í síðustu viku og Woodland var upp á -5 undir pari, 67 högg. en þeir fengu 6 fugla og 1 skolla. Samtals voru þeir á -24 í mótinu, þ.e. samtals 264 höggum (64 70 63 67). „Við smullum saman. Það er æðislegt að sigra fyrir Bandaríkin,“ sagði hinn högglangi Gary Woodland. Kuch bætti við:„Það eru án efa höggin á 12. og 13. braut sem voru lykillinn (að sigrinum). Þetta var frábært andartak að fá par þegar maður Lesa meira










