
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Listagolf GS-kvenna, 26. júní 2011
Sunnudaginn 26. júní í sumar fór fram í þriðja sinn listagolf GS-kvenna í alveg ágætis “Leiru-logni” á Hólmsvelli í Keflavík. Það var frekar skýjað, sólin gægðist fram af og til og það var ekkert allt of hvasst, en þátttakendum í mótinu fannst að e.t.v. hefði mátt vera aðeins hlýrra. Hólmsvöllur var þurr, svo þurr að sums staðar var erfitt að reka tíin niður og völlurinn því í þörf fyrir vökvun. Flatirnar voru ekki orðnar eins hraðar og maður er vanur í Leirunni, en því var bara fremur köldu árferði um að kenna. Leiran var í eins góðu standi og mögulegt var miðað við hvernig veðráttan var búin að vera.
Nokkuð merkilegur atburður átti sér stað í upphafi móts, sem Golf1 varð vitni að í beinni. Þegar einn þátttakandinn í mótinu var að taka golfkerru, poka og annan nauðsynlegan útbúnað úr farangursrými bíls síns, kom máfur aðvífandi og stal brauðsneið sem konan var búin að smyrja sér í nesti. Mynd náðist af sökudólgnum og birtist hún hér fyrir neðan, þar sem hann er að gæða sér á ránsfeng sínum!
Listagolf GS-kvenna er eitt alflottasta kvennagolfmót á Íslandi og þótt víða sé leitað. Mótið er þríflokkaskipt; keppt er í þremur forgjafarflokkum 0-14; 14,1-25 og 25,1-36, en keppnisfyrirkomulag er punktakeppni með forgjöf. Verðlaun eru veitt fyrir 3 efstu sætin í hverjum forgjafarflokki. Í verðlaun í hverju listagolfmóti eru verk eftir listakonur á Suðurnesjum. Listakonur sem styrktu listagolfið í ár með verkum sínum voru m.a. Bagga, Sigurbjörg Gunnarsdóttir (f. 1946) frá Keflavík (en skoða má verk hennar á vefslóðinni www.bagga.is);
Til þess að sjá myndaseríu úr mótinu smellið hér: LISTAGOLF GS-KVENNA 2011
Helstu úrslit í Listagolfi GS-kvenna 2011 voru eftirfarandi:
Forgjafarflokkur 0-14
1. sæti Íris Dögg Steinsdóttir, GS, 33 pkt.
2. sæti Erna Valdís Ívarsdóttir, GKG, 31 pkt.
3. sæti Erla Þorsteinsdóttir, GS, 30 pkt.
Forgjafarflokkur 14,1-25
1. sæti Ragnheiður Jónsdóttir, GK, 39 pkt.
2. sæti Þóranna Andrésdóttir, GS, 37 pkS
3. sæti Sigurbjörg Jóna Gunnarsdóttir, GS, 35 pkt.
Forgjafarflokkur 25,1-36
1. sæti Sjöfn Olgeirsdóttir, GS, 41 pkt.
2. sæti Þorgerður Aradóttir, GS, 40 pkt.
3. sæti Sigurfríð Rögnvaldsdóttir, GS, 35 pkt.
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open
- mars. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hrafn Arnarson –—- 15. mars 2023