Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Opna kvennamót GSS – 2. júlí 2011
Það var í einstakri sumarblíðu sem Opna kvennamót GSS fór fram 2. júlí s.l. sumar. GSS heldur árlega glæsilegasta kvennamót landsins – þar sem engin kona fer tómhent heim í lok dags – Þær sem sigra á mótinu fá að velja fyrstar af glæsilegu verðlaunaborði, sem svignar undan vinningunum, sem kvennanefndin leggur ár hvert mikla vinnu í að afla styrkaraðila fyrir. Þetta er eins og jólahlaðborð um mitt sumar – allar fá gjafir fyrir að taka þátt í skemmtilegu móti Í ár veittu eftirfarandi einstaklingar og fyrirtæki verðlaun: Hlíðarkaup, Landsbankinn, Elsga, Heiða Héraðsskjala-safnið, Sveitarfelagið Skagafjörður, Arion banki, Tískuhúsið, Táin og Strata, Kúnst hársn.st., Blóma- og Gjafabúðin, Sigríður Eygló, Heilbrigðisstofnunin, Iðnsveinafélag Lesa meira
Opna kvennamót GSS – 2. júlí 2011
Viðtalið: Anna Einarsdóttir, GA.
Hér á eftir fer viðtal við Önnu Einarsdóttur, GA, en golfárið er aldeilis búið að vera gott hjá henni. Anna sigraði m.a. á Opna kvennamóti GSS, 2. júlí í sumar, fékk 42 punkta og heilmikla forgjafarlækkun, en myndasería frá mótinu birtist hér á Golf 1 síðar í dag. Eins er Anna móðir fv. Akureyrarmeistara og nýkrýnds holukeppnismeistara GA, Tuma Kúld og er hún búin að vera dugleg að draga fyrir soninn á mótum sumarsins, m.a. á Arionbankamótaröð unglinga. Hér fara spurningar Golf 1 og svör Önnu. Fullt nafn: Anna Einarsdóttir. Klúbbur: Golfklúbbur Akureyrar (GA). Hvar fæddistu? Ég fæddist á Akureyri, 30. september 1964. Hvar ertu alin upp? Á Eyrinni á Akureyri. Fjölskylduaðstæður? Lesa meira
„Strákarnir okkar“ luku leik í 23. sæti í Portúgal
„Strákarnir okkar“ þeir Úlfar, Sigurpáll og Ólafur H. sem spilað hafa á Evrópukeppni PGA landsliða í Vale do Lobo í Portúgal luku leik í gær og lentu í 23. sæti. Úlfar spilaði á 81 höggi, Sigurpáll virðist einungis hafa spilað nokkrar holur og Ólafur H. var á skori, sem maður vildi hafa séð þá alla á, alla keppnisdagana – 71 glæsilegu höggi! Samtalsskor PGA landsliðsins okkar var póstnúmer Dalvíkur, 620 (162 147 159 152), þ.e. samtals +44 yfir pari. Slóvenía og Rússland deildu 24. sætinu og Ungverjar ráku lestina í 26. sæti á 626 höggum samtals. Frakkar sigruðu nokkuð örugglega á samtals -19 undir pari (140 140 138 139) þ.e. Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Alessandro Tadini – 30. nóvember 2011
Það er Alessandro Tadini sem er afmæliskylfingur dagsins, en hann fæddist 30. nóvember Borgomanero á Ítalíu 1973 og er því 38 ára í dag. Tadini gerðist atvinnumaður í golfi 1994. Hann komst á Evróputúrinn 2003, eftir að hafa gert 6 tilraunir til þess að komast í gegn í Q-school. Hann vann sér ekki inn nægilega mikið verðlaunafé á nýliðaári sínu þannig að hann spilaði næsta keppnistímabil á Áskorendamótaröðinni (ens. Challenge Tour). Árið 2004 varð hann í 2. sæti á Challenge Tour þannig að hann komst aftur á Evrópumótaröðina og hélt korti sínu þar til loka árs 2007, þegar hann féll aftur niður í Áskorendamótaröðina. Hann kom sér upp aftur, varð Lesa meira
GD og GÖ: Aðalfundir í dag 30. nóvember 2011
Aðalfundur golfklúbbsins Dalbúa fer fram miðvikudaginn 30. nóvember 2011 og verður haldinn í Sal Rafiðnaðarsambandsins að Stórhöfða 31 og hefst kl. 17:15. Dagskrá fundarins er skv. 16. gr. laga félagsins: 1. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári. 2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins. 3. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning og hann borinn upp til samþykktar. 4. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga. 5. Tillögur sem borist hafa teknar til umræður og afgreiðslu. 6. Ákveðið árgjald fyrir næsta starfsár. 7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn. 8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara. 9. Lögð fram fjárhagsáætlun næsta starfsárs til samþykktar. 10. Önnur mál. Á fundinum verða einnig Lesa meira
Dustin Johnson í hnéaðgerð í gær – verður frá keppni næstu vikur
Nr. 5 á heimslistanum og sá Bandaríkjamanna, sem efstur er á heimslistanum, Dustin Johnson gekkst í gær undir brjóskaðgerð í hægra hné. Hann verður frá keppni í óákveðinn tíma og er ekki búist við honum fyrr en einhvern tímann aftur í janúar 2012. Johnson vann The Barclays í ágúst s.l. og varð þar með 1. kylfingurinn til þess að sigra á hverju hinna 4 ára sem hann er búinn að vera á túrnum frá útskrift úr háskóla. Sá sem síðast afrekaði það síðast var Tiger Woods árið 1999. Alls hefir Dustin Johnson sigrað 5 sinnum á atvinnumannsferli sínum. Umboðsmaður Dustin, David Winkle hjá Hambric Sports, sagði að Dustin hefði fundið fyrir Lesa meira
Kylfingar 19. aldar: nr. 28 – John Fredrick Abercrombie
John Fredrick Abercromby fæddist árið 1861 í Felixstowe og dó 1935 í Addington, Surrey. Hann var breskur golfvallar- arkitekt, uppi á gullöld golfvallararkítektúrsins. John var læknasonur og fékk frá unga aldri að leika sér í golfi. Hann varð fljótt „scratch-kylfingur“ (þ.e. með fgj. 0) og tók með góðum árangri þátt í mótum í kringum London. „Aber“, en svo var uppnefni hans, tilheyrði hópi áhugakylfinga sem tókst að fá Willie Park yngri, sem meðlim í golfklúbb þeirra, Huntercombe, en staðurinn var mikilvægt upphaf í þróun byggingarlistar í golfi. Um aldamótin 1900 var John Fredrick ráðinn ritri af fjárfesti sem bað hann nokkrum árum síðar að hanna og byggja golfvellina Sunningdale, Walton Lesa meira
PGA kylfingar og uppáhaldstónlistarmenn þeirra
Þegar viðtöl eru tekin við kylfinga eru oftast lagðar fyrir þá spurningar, sem í fyrsta bragði virðast hafa lítið með golf að gera. Eða hvað? Mér því að spyrja kylfinga, sem aðra menn, að því hver sé uppáhaldsmatur þeirra, drykkur, uppáhaldskvikmynd, bók og tónlist, þá er dregin upp ákveðin mynd af viðkomandi. Á golf.com eru nokkrir kylfingar sem eru meðal þeirra efstu á heimslistanum spurðir um uppáhaldstónlistarmenn sína. Veit nokkur hver er uppáhaldshljómsveit Luke Donald? Hvaða kylfingur skyldi nú „feel-a“ Kid Rock? Og vissi nokkur um vinsældir Eminem meðal toppkylfinga. Eminem er m.a. í uppáhaldi hjá tveimur toppkylfingum. Veit nokkur hver þeir eru? Til þess að sjá uppáhaldstónlistarmenn nokkurra toppkylfinga Lesa meira
Intramuros golfvöllurinn á Filippseyjum
Hér fyrr í dag var viðtal við Unni Halldórsdóttur, GB, sem rekur Icelandair Hótel Hamar í Borgarnesi, ásamt eiginmanni sínum Hirti Árnasyni. Í viðtalinu kom m.a. fram að sérstæðasti golfvöllur sem Unnur hefði spilað væri Intramuros á Filippseyjum. Hér verður golfvöllur Unnar kynntur stuttlega. Intramuros er elsti golfvöllur á Fillipseyjum. Hann var byggður 1907 af Bandaríkjamönnum innan bæjarmúra bæjarins Intramuros. Þetta er 18 holu par-66 golfvöllur, sem þýðir að hann er ekki mjög langur og aðallega reynir á stutta spilið sem og nákvæmni. Hann er gríðarlega vinsæll meðal ferðamanna, sem heimsækja Filippseyjar og ef einhver er á leið þangað ætti hann ekki að sleppa að spila þessa perlu. Intramuros golfvöllurinn Lesa meira








