Viðtalið: Unnur Halldórsdóttir, GB.
Það er Unnur Halldórsdóttir, sem er viðmælandi Golf 1 að þessu sinni. Unnur er í kvennanefnd GB og um hana sögðu fleiri en ein kona á kvennamótinu Gullhamrinum, sem haldið var að Hamarsvelli í Borgarnesi, 25. júní s.l. sumar að Unnur væri „alger gersemi“, „gæðakona“ og að „ein Unnur þyrfti að vera til í öllum golfklúbbum landsins.“ Það er augljóst að Unnur er í miklum metum. Unnur rekur ásamt eiginmanni sínum Hótel Hamar í Borgarnesi. Hér fyrr í dag voru á Golf 1 taldar upp nokkrar jólagjafahugmyndir. Hér er ein enn: Helgardekur á Hótel Hamri! Hægt er að gefa gjafabréf á Hótel Hamar og hlakka svo til það sem eftir Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Santiago Luna 29. nóvember 2011
Það er spænski kylfingurinn Santiago Luna sem er afmæliskylfingur dagsins. Santiago fæddist 29. nóvember 1962 í Madríd á Spáni og er því 49 ára í dag. Pabbi Luna var starfsmaður í Puerta de Hierro Golf Club í Madríd og þar steig Santiago sín fyrstu spor í golfíþróttinni. Hann gerðist atvinnumaður árið 1982 og var meira en 20 ár á Evrópumótaröðinni, þar sem hann spilaði í meir en 500 mótum. Hann var meðal efstu 100 á lista þeirra bestu í Evrópu (Order of Merit) oftar en 12 sinnum, en besti árangur hans var 31. sætið árið 1998. Eini sigur hans á Evrópumótaröðinni er Madeira Island Open, 1995, en hann er með 10 sigra Lesa meira
Martin Kaymer spilar ekki á PGA – verður á Evróputúrnum 2012
Martin Kaymer staðhæfir að hann sé með engin plön um að fylgja fordæmi Rory McIlroy og Lee Westwood með það að skuldbinda sig til að spila á bandaríska PGA. Í síðustu viku staðfestu bæði Westwood og McIlroy að þeir ætluðu að spila á bandaríska PGA keppnistímabilið 2012. Þetta hefir í för með sér að þeir verða nú að skipta tíma sínum milli móta beggja vegna Atlantsála, þar sem þeir verða að spila á minnst 15 mótum í Bandaríkjunum. „Ég veit bara ekki af hverju Rory og Lee fara fram og aftur, í mínum augum er það svolítið skrítið. Eitt árið eru þeir á PGA Tour það næsta eru þeir það ekki. Lesa meira
Hugmyndir að jólagjöfum handa kylfingum
S.l. sunnudag var 1. í aðventu. Ekki á morgun heldur hinn er mikil gleði hjá yngri kynslóðinni þegar hún fær að opna 1. gluggann á jóladagatölunum eða 1. pakkann eins og er venjan á pakkadagatölum. Svo fara jólasveinarnir að koma til byggða einn af öðrum, þó sumir hafi þegar villst til að koma s.s. var í fréttum nýlega. Já, jólin nálgast óðum og margir eru farnir að huga að jólagjöfum. Ein skemmtileg hugmynd að jólagjöf er á heimasíðu Hissa.is (sjá m.a. tengil á forsíðu Golf 1 – sjá hægra megin á forsíðu á eftir veðri á golfvöllum)… en það er golfderhúfa með ljósi, sem er góð við ýmsar aðstæður; t.d. golfleik Lesa meira
„Strákarnir okkar“ í 23. sæti á Evrópukeppni PGA landsliða
Svona er golfið – líkt og lífið – stundum gengur vel stundum illa. Strákunum okkar, þeim Úlfari, Sigurpáli og Ólafi H. hefir bara ekki gengið að óskum í Evrópukeppni PGA landsliða. Eftir 3. dag eru þeir í 23. sæti af 26 liðum og spila lokahringinn í dag. Nú reynir á að sýna öllum golfnemunum, sem þeir hafa kennt heima á Íslandi, hvernig spila á undir pressu og fara alltaf með jákvætt hugarfar inn í mót, sama hvernig gengið dagana á undan hefir verið! Ná því besta fram í vondri stöðu – einkenni þeirra sem bestir eru. Og það eru þeir svo sannarlega þótt þeir hafi ekki náð að sýna sitt Lesa meira
GVG: Aðalfundur verður haldinn í kvöld í Sögumiðstöðinni kl. 18:00
Aðalfundur golfklúbbsins Vestarr á Grundarfirði verður haldinn 29.nóv 2011 kl:18.00 í Sögumiðstöðinni. Dagskrá aðalfundar. 1. Kosning fundarstjóra. 2. Kosning fundarritara. 3. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári. 4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 5. Umræður og atkvæðagreiðslur um skýrslu stjórnar og ársreikninga. 6. Framkomnar tillögur og fjárhagsáætlun. 7. Kosning formanns 8 Kosning ritara / gjaldkera 9. Kosning og /eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8.grein. 10. Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara. 11. Önnur mál. Reglugerðabreyting lögð fyrir aðalfund. Breyting á 6.grein. 6.grein Stjórn klúbbsins skipa: Formaður, ritari, gjaldkeri og formenn nefnda annarra en skemmtinefndar og kvennanefndar samanber grein 8 Skulu formaður, ritari og gjaldkeri kosnir skriflega á aðalfundi. Formaður til Lesa meira
Myndasería: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Opna Guiness mótið á írskum dögum hjá GL – 2. júlí 2011
Í tengslum við írska daga á Akranesi í sumar fór fram Opna Guiness mótið, sem margir landsþekktir kylfingar tóku þátt í. Má þar fremsta í flokki nefna Stefán Má Stefánsson, GR, og Pétur Frey Pétursson, GR, sem voru eitt 48 liða sem háðu keppni. Veðrið var einstaklega gott og gaman að vera á Akranesi þennan laugardagsmorgun. Mótið þótti vel heppnað í alla staði. Sjá má myndir frá Texas mótinu og Akranesbæ, sem var fagurlega skreyttur írskum litum og fánum í tilefni írsku daganna með því að smella hér: ÍRSKIR DAGAR Á AKRANESI – 2. JÚLÍ 2011
Myndasería: Opna Guiness mótið hjá GL – 2. júlí 2011
Viðtalið: Finnbogi Haukur Axelsson, GOB.
Hér á eftir fer viðtal við Finnboga Hauk Axelsson, sem starfaði í golfskála GOB s.l. sumar: Fullt nafn: Finnbogi Haukur Axelsson. Klúbbur: GOB. Hvar fæddistu? Í Reykjavík 15. apríl 1983. Hvar ertu alinn upp? Á Seltjarnarnesinu. Fjölskylduaðstæður – er einhver í fjölskyldunni sem spilar golf? Ég er einhleypur – foreldrar mínir, Axel Þórir Friðriksson og Kristín Finnbogadóttir eru í golfi en svo á ég 3 systkini sem spila ekki golf. Yngsti bróðir min byrjar kannski, er sem stendur í hand-og fótbolta, hin nenna þessu ekki. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Fyrir 10 árum síðan, en ég hef aldrei tekið af neinni alvöru þátt fyrr en núna. Fiktaði kannski hér áður fyrr Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Sæmundsdóttir – 28. nóvember 2011
Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Sæmundsdóttir, GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi í flokki 50+ 2010 og nú í ár sem og og Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ 2011. Steinunn fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1960. Hún byrjaði í golfi 14 ára og gekk í GR 1974. Aðaldriffjöðurin í golfleiknum var bróðir Steinunnar, Óskar en hún dró oft fyrir hann. Jafnhliða fjölda Íslandsmeistaratitla í golfi og klúbbmeistaratitla hjá GR er afmæliskylfingurinn okkar 12-faldur Íslandsmeistari á skíðum. Í dag er Steinunn með 5,5 í forgjöf. Steinunn er 4 barna móðir þeirra Sæunnar Ágústu 29 ára; Hlyns Heiðars, 28 ára; Söndru Rós, 16 ára og Sigrúnar Ásu 12 ára. Eins á Steinunn 4 barnabörn: þá Lesa meira








