
Intramuros golfvöllurinn á Filippseyjum
Hér fyrr í dag var viðtal við Unni Halldórsdóttur, GB, sem rekur Icelandair Hótel Hamar í Borgarnesi, ásamt eiginmanni sínum Hirti Árnasyni. Í viðtalinu kom m.a. fram að sérstæðasti golfvöllur sem Unnur hefði spilað væri Intramuros á Filippseyjum.
Hér verður golfvöllur Unnar kynntur stuttlega.
Intramuros er elsti golfvöllur á Fillipseyjum. Hann var byggður 1907 af Bandaríkjamönnum innan bæjarmúra bæjarins Intramuros. Þetta er 18 holu par-66 golfvöllur, sem þýðir að hann er ekki mjög langur og aðallega reynir á stutta spilið sem og nákvæmni. Hann er gríðarlega vinsæll meðal ferðamanna, sem heimsækja Filippseyjar og ef einhver er á leið þangað ætti hann ekki að sleppa að spila þessa perlu.
Intramuros golfvöllurinn er vin friðsemdar umkringdur ys og þys stórborgarinnar Manilla. Eitt af sérkennum vallarins er að komist er í snertingu við stórborgina þegar fara verður yfir umferðargötur til þess að geta haldið spilinu áfram, s.s. Unnur minntist á í viðtalinu. Sem betur fer tekur aðeins innan við mínútu að fara yfir götuna áður en friðsemd golfvallarins og leiksins tekur við að nýju.
Að spila golf í Club Intramuros Golf er ekkert fyrir sleggjur – maður þarfnast varla trékylfa. Það er bar 1 par-5 braut sem er 428 yarda (391 metra) löng. Allur völlurinn er um 4326 yarda (3956 metra) langur.
Þörf er fínlegs golfleiks, golf spilað af tilfinningu, því þó völlurinn sé ekki langur er mikið af hindrunum um allan völl, allt frá sandglompa og vatnshindrana til veggja eins og sést á myndinni hér að ofan.
Ekki skyldi vanmeta Intramuros golfvöllinn – maður tínir helming af boltum sínum ef slegið er of langt og of fast, það sem þarf til að spila Club Intramuros golfvöllinn er stilling og hárfín kænska.
Oh, langar ekki öllum í golf til Filippseyja núna?
Heimild: philippines-travel-guide.com
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)