Tiger tímalínan
Við munum alltaf minnast Tiger fyrir risamótssigra hans 14 og fyrir að vera einn besti kylfingur síðustu ára (þ.e.a.s ef síðustu 2 árin eru undanskilin). Kannski er Tiger sá besti. Hins vegar mun hans líka verða minnst fyrir framhjáhöld hans, sem leiddu til lögskilnaðar hans og sænskrar eiginkonu hans Elínar Nordegren. S.l. tvö ár hafa verið hreinasta helvíti fyrir aumingja Tiger; hann hefir orðið af fúlgum fjár í styrktarsamningum, hann missti konuna sína og börn vegna yfirsjóna sinna, hann ávann sér heift fyrrum kylfusveins síns Steve Williams, þegar hann sagði honum upp, sveiflan hefir verið týnd, sem og púttin og hann hefir ekki unnið eitt einasta mót…. ja þar til Lesa meira
Luke Donald:„Rory McIlroy er hæfileikaríkasti kylfingurinn.“
Tiger Woods er besti kylfingur sem Luke Donald hefir nokkru sinni spilað við en Rory McIlroy sá hæfileikaríkasti. Bretinn, sem er nr.1 heimslistanum bar kylfingana tvo saman á miðvikudaginn (í gær) áður en Dubai World Championship hófst, en hann dró ummælin tilbaka í dag þegar hann sagði á Twitter að hann hefði ekki ætlað að vanvirða Woods. „Það er nokkrir sem skilja ekki hvað ég meinti. Orðið „hæfileikar“ og Rory, þýðir í mínum huga frjáls sveifla, þar sem allt virðist auðvelt,“ tweetaði Luke. „TW (Tiger) hefir alltaf verið sá besti til þess að setja boltann niður þegar það skipti mestu máli. Það eru ekki bara hæfileikar það er eitthvað annað Lesa meira
Evróputúrinn: Peter Hanson efstur í Dubai eftir 1. dag – spilaði á 64 höggum!
Það er Svíinn Peter Hanson sem leiðir á Dubai World Championship, kom inn á -8 undir pari, glæsilegum 64 höggum! 8 fuglar litu dagsins ljós hjá Hanson á skollafríum hring. Í 2. sæti er Skotinn Paul Lawrie, 1 höggi á eftir Hanson og vírus eða ekki vírus, undradrengurinn McIlroy er í 3. sæti á -6 undir pari. Alveg undravert úthaldið sem hann hefir eftir allar keppnir sem hann hefir tekið þátt í og þvæling um allan heim. Í 4. sæti er Sergio Garcia á -5 undir pari og 5. sætinu deila 3 kylfingar: Robert Rock, Ross Fisher og Alvaro Quiros á -4 undir pari, 68 höggum. Loks mætti geta þess Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Tiffany Joh – 8. desember 2011
Það er Tiffany Joh sem er afmæliskylfingur dagsins en hún fæddist í Fíladelfíu í Pennsylvaníu, 8. desember 1986 og á því 25 ára afmæli í dag. Hún fluttist ung til San Diego í Kaliforníu, ásamt foreldrum sínum sem eru frá Suður-Kóreu. Frá því hún gerðist atvinnumaður í golfi 2009, hefir hún sigrað á 2 mótum. Í fyrra, þ.e. 2010, hlaut hún þátttökurétt á LPGA vegna þess að hún varð í 8. sæti á peningalista Futures Tour (sjá mynd hér að neðan): Tiffany Joh er margt til lista lagt en fyrir utan að spila á Futures og LPGA hefir hún breytt textum á nokkrum vinsælum lögum og „golfað þá upp,“ og Lesa meira
Heitustu dræverarnir árið 2011
Kylfingar verða oft eins og krakkar í dótabúð þegar kemur að golfútbúnaði og sérstaklega þegar kemur að vali á þeim kylfum, sem að öllu jöfnu eru í mestu uppáhaldi: dræver eða pútter. Á hverju ári setur Golf Digest saman „Hot List“ þ.e. lista yfir „heitustu“ þ.e. vinsælustu dræverana. Hér að neðan er tengill inn á samantekt Golf Digest yfir „heitustu“ 15 drævera ársins 2011. Ef viðkomandi dræver er merktur W þýðir það að hann er einnig fáanlegur fyrir kvenkylfinga. Síðan fá þeir sem þykja bestir gullið en þeir sem þykja aðeins síðri silfur-einkunn. Ýmsar umsagnir á ensku eru um hvern dræver og þýðir H= umsögn háforgjafarkylfings, M= umsögn kylfings með Lesa meira
Evróputúrinn: Paul Lawrie í foyrstu snemma dags á Dubai World Championship
Dubai World Championship hófst í dag á Jumeirah Estates í Dubai. Nokkrir góðir hafa þegar lokið við að spila 18 holur og hefir Skotinn Paul Lawrie tekið forystuna, en hann kom inn í dag á glæsilegum 65 höggum, þ.e. -7 undir pari vallar. Aðrir sem lokið hafa leik eru t.a.m. Englendingurinn Ross Fisher, en hann kom í hús á 68 höggum og er sem stendur í 2. sæti. Öðrum sem lokið hafa leik hefir gengið síður t.a.m. Ernie Els, sem spilaði á +2 yfir pari, þ.e. 74 höggum og er í einu af neðstu sætunum. Luke Donald er farinn út en eftir 1 spilaða holu er hann kominn með 1 Lesa meira
Dagbjartur Harðarson kjörinn nýr formaður GVG – rekstrarhagnaður tæp 2.2 milljónir
Aðalfundur Golfklúbbsins Vestarr á Grundarfirði var haldinn 29. nóvember s.l. Á heimasíðu klúbbsins www.vestarr.123.is er er eftirfarandi fundargerð aðalfundar: „Þórður Magg var kosinn fundarstjóri. Fundarritari var kosin Anna María Reynisdóttir. Pétur las skýrslu stjórnar, fór yfir verkefni síðasta árs. Skýrsla stjórnar var samþykkt með lófaklappi. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. Þar var það helsta að klúbburinn er skuldlaus og hagnaður ársins var 2.191.621 kr. Hér er ársreikningurinn. Lögð var fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Voru reikningar og fjárhagsáætlanir samþykktar samhljóða. Lögð var fram breytingartillaga á reglum félagsins vegna kvennanefndar sem féll á jöfnu. Dagbjartur Harðarson var kjörinn nýr formaður klúbbsins. Ritari var kjörin Anna María Reynisdóttir. Gjaldkeri, Þórður Magnússon, á enn Lesa meira
Viðtalið: Hlynur Geir Hjartarson, GOS.
Hér á eftir fer viðtal Golf 1 við framkvæmdastjóra GOS, Hlyn Geir Hjartarson, en Golfklúbbur Selfoss fagnaði einmitt 40 ára afmæli í ár: Fullt nafn: Hlynur Geir Hjartarson Klúbbur: GOS Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík 31. október 1976. Hvar ertu alinn upp? Ég er alinn upp í sveit, er sveitastrákur úr Ölfusinu. Ég fluttist þangað að Akurgerði, 4 ára. Hverjar eru fjölskylduaðstæður? – Spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég á 3 börn Alexander Mána, 1 árs, Katrínu Emblu, 3 ára og Heiðrúnu Önnu 10 ára. Eldri dóttir mín er mjög góð í golfi og Katrín er farin að biðja um að fara í golf á hverjum degi. Gunnhildur Lesa meira
Sigurður Garðarsson endurkjörinn formaður GS – Örn Ævar Hjartarson varamaður í stjórn
Í gær var haldinn aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja. Á heimasíðu GS segir eftirfarandi um fundinn: „Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja var haldinn 6. desember s.l. Um 40 manns mættu á fundinn. Sigurður Garðarsson var endurkjörinn formaður. Björn Víkingur Skúlason, Helga Sveinsdóttir, Snæbjörn Guðni Valtýrsson og Einar Einarsson (varamaður) gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn. Í stjórn fyrir þau komu ný inn, Davíð Viðarsson, Hafdís Ævarsdóttir og Heimir Lárus Hjartarson og Örn Ævar Hjartarson sem varamaður. Starfsskýrslu og reikninga Golfklúbbs Suðurnesja má sækja hér að neðan: Ársskýrsla GS 2011 Ársreikningur GS 2011 „
GK: Bergsteinn Hjörleifsson endurkjörinn formaður – Rekstrarhagnaður upp á 25,5 milljónir árið 2011
Aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði fór fram í gær, 6. desember 2011. Á heimasíðu GK, keilir.is segir eftirfarandi um fundinn: „Aðalfundur Keilis var haldin í gærkveldi, 60 manns mættu á fundinn. Bergsteinn Hjörleifsson var endurkjörinn formaður til næsta árs. Hagnaður var af rekstri klúbbsins uppá 25.525.176 kr. Þá voru einsog árlega veitt verðlaun til yngstu kynslóðarinnar fyrir mestar framfarir á árinu. Guðbjörg Sigurðardóttir sem starfað hefur á skrifstofu félagsins var einnig kvödd , enn hún hefur látið af störfum vegna aldurs. Þakkar stjórnin henni kærlega fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Sjá ársskýrslu og reikninga félagsins hér að neðan. Ársskýrsla stjórnar Keilis 2011 Eftirtaldnir fengu viðurkenningar: Bjartasta vonin Lesa meira









