GL: Þórður Emil Ólafsson kjörinn formaður – 14,7 milljóna rekstrarhagnaður 2011
Aðalfundur GL var haldinn í 7. desember 2011. Á heimasíðu GL segir eftirfarandi um aðalfundinn: „Um 40 félagsmenn mættu á fundinn. Formaður GL fór yfir liðið ár og las skýrslu stjórnar, fráfarandi gjaldkeri fór yfir reikninga GL. Rekstur og efnahagur klúbbsins var jákvæður á síðasta ári og er rekstrarhagnaður um 14,7 milljónir króna. Efnahagur klúbbsins lítur vel út um þessar mundir. Eftir endurreikning og afborganir þá stendur lán félagsins í 23,1 milljón eftir leiðréttingu höfuðstóls upp á 27,5 milljónir og á sama tíma stendur handbært fé klúbbsins í 18,5 milljónum. Skýrslu stjórnar og reikninga er að finna hér eða undir gl/skjöl/Aðalfundur GL á golf.is. Félagsfundur samþykkti hækkun á árgjaldi GL um 4,6 Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Tom Kite – 9. desember 2011
Afmæliskylfingur dagsins er Oliver Tom Kite, en hann fæddist 9. desember 1949 í McKinney, Texas og er því 62 ára í dag. Á árunum 1989-1994 var hann í 175 vikur á topp-10 á heimslistanum. Tom gerðist atvinnumaður í golfi 1972 og á ferli sínum hefir hann sigrað alls 38 sinnum, þ.á.m. 19 sinnum á PGA (þar af 1 sinni á risamóti Opna bandaríska 1992) 2 sinnum á Evróputúrnum og 10 sinnum á Champions Tour. Andlegur þjálfari Kite í golfinu var Bob Rotella, sem t.d. notar Kite mikið í dæmisögum sínum í hinni gríðarvinsælu bók sinni: Golf is not a game of perfect. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag Lesa meira
Evróputúrinn: Alvaro Quiros leiðir í Dubai eftir 2. dag
Það er Spánverjinn, Alvaro Quiros, sem leiðir eftir 2. dag Dubai World Championship. Hann átti glæsihring upp á 64 högg í dag, þ.e. -8 undir pari. Sleggjan Quiros fékk 6 fugla og svo æðislegan örn á par-5, 18. brautina á Jumeirah Estate golfvellinum, á annars skollafríum hring. Glæsilegra gerist það varla! Samtals er Alvaro Quiros því búinn að spila á -12 undir pari (68 64). Í 2. sæti er Svíinn Peter Hanson, sem leiddi í gær, 4 höggum á eftir Quiros, á samtals -8 undir pari. Þriðja sætinu deila þeir Robert Rock frá Englandi og Norður-Írinn Rory McIlroy, en sá síðarnefndi verður að sigra á mótinu til þess að varna Lesa meira
Lorena léttari – Pedro Conesa leit dagsins ljós
Lorena Ochoa bætti við enn öðrum verðlaunum við safnið sitt heima og þessi eru dýrmætari en öll hin til samans. Lorena tilkynnti í gær að hún hefði fætt frumburðinn, strák sem hlotið hefir nafnið Pedro. „Við erum ánægð að geta tilkynnt að sonur okkar Pedro fæddist í dag (í gær) kl. 8:58 og okkur líðum báðum vel. Pedro er 2,8 kg og 48 cm langur, þakka ykkur öllum fyrir stuðninginn,“ skrifaði Lorena á Twitter. Lorena Ochoa er 30 ára og var nr. 1 í kvennagolfinu frá árinu 2007, þar til hún tilkynnti í maí í fyrra að hún hyggðist draga sig í hlé eftir 27 sigra á LPGA, þar af Lesa meira
Lindberg og Srisawang leiða á Hero Women´s Indian Open
Í dag hófst á „Páfuglavellinum“ í Nýju Dehli á Indlandi Hero Women´s Indian Open. Það eru tvær sem leiða eftir fyrsta daginn; sænska stúlkan Pernilla Lindberg, fyrrum skólafélagi Eyglóar Myrru Óskarsdóttur, í Oklahoma State, sem er búin að gera það gott á Evrópumótaröð kvenna í ár og thailenska stúlkan Nontaya Srisawang. Báðar spiluðu þær undurfagran Páfuglavöllinn á -6 undir pari, þ.e. 66 höggum. Þriðja sætinu deilir annar fyrrum skólafélagi Eyglóar Myrru, Caroline Hedwall, ásamt enn einni thaílenskri Pornanong Phatlum og ensku stúlkunni Florentynu Parker. Þær spiluðu allar á -5 undir pari, 67 höggum og eru því aðeins 1 höggi á eftir forystukonunum. Til þess að sjá stöðuna á Hero Women´s Lesa meira
Ángel Cabrera leiðir eftir 1. hring á VISA Opna argentínska styrktu af Peugeot
Í gær hófst á El Pilar Golf í Buenos Aires í 106. sinn VISA Open de Argentina, en þetta er næstsíðasta móta á TLA (Tour de Las Americas). Mótið er skipulagt af Asociación Argentina de Golf (þ.e. golfsambandi Argentínu) og IMG í Argentínu. Verðlaunafé er US $ 115,000 dollarar. Það er heimamaðurinn, hinn tvöfaldi sigurvegari risamóta Ángel Cabrera sem leiðir eftir frábæran opnunarhring upp á -4 undir pari, þ.e. 67 högg. „Sannleikur er sá að þetta var ekki þægileg byrjun en frá holu 15, sem var 6. holan mín, átti ég nokkur góð högg og sjálfstraustið jókst,“ sagði þessi 42 ára kylfingur sem kallaður er „El Pato“ (ísl.: öndin) í heimalandinu, Lesa meira
Jóhann Friðbjörnsson endurkjörinn formaður GKB – Rekstrarhagnaður GKB 800 þús, 2011
Aðalfundur Golfklúbbs Kiðjabergs (GKB) var haldinn nú nýverið og á heimasíðu GKB er nánar fjallað um fundinn. Þar segir eftirfarandi: „Aðalfundur GKB var haldinn að Skipholti 70 þann 7. desember. Þar kom fram að hagnaður var af rekstri klúbbsins upp á tæpar 800 þúsund krónur. Reikningar og skýrsla stjórnar voru samþykktar samhljóða á fundinum, en velta klúbbsins nam tæpum 35 milljónum króna. Jóhann Friðbjörnsson var endurkjörinn sem formaður GKB sjöunda árið í röð. Tvær breytingar voru á stjórninni. Úr stjórn gengu þeir Einar Örn Einarsson og Gissur Jóhannsson. Var þeim þökkuð góð störf fyrir klúbbinn á liðnum árum. Einar hafði verið í stjórn allt frá stofnun klúbbsins, eða í samtals Lesa meira
Nýtt mót Perth International í Ástralíu
Lake Karrinyup í Perth, Ástralíu, er sá völlur þar sem það golfmót, þar sem er mest verðlaunafé í Ástralíu fer fram. Búið er að bæta nýja mótinu Perth International Golf Championship við á mótaskránna – og fer það fram í október á næsta ári. Verðlaunaféð eru $ 2 milljónir bandaríkjadala og vonast mótshaldarar til þess að laða að mótinu einhverjar stærstu stjörnurnar í golfheiminum. Robbie Henchman fulltrúi IMG þegir um það hverjar stjörnurnar eru en sagði eftirfarandi nú nýlega í kynningu á mótinu: „Við höfum átt frábært samstarf við yfirvöld í Vestur-Ástralíu s.l. 10 ár við skipulagningu nokkurs fjölda frábærra móta og við hlökkum til að þróa hinn árlega viðburð Lesa meira
Viðtalið: Guðmundur Einarsson, GSG.
Það kannast allir kylfingar, sem á annað borð spila á Kirkjubólsvelli í Sandgerði við Guðmund Einarsson, framkvæmdastjóra klúbbsins. GSG fagnaði einmitt 25 ára afmæli sínu í ár, en klúbburinn var stofnaður 1986. Það er alltaf jafnhuggulegt að koma á Kirkjubólsvöll, sérstaklega á haust- og vetrarmótunum þegar heitar vöfflur og sælkersúpur bíða að leik loknum hjá þeim Guðmundi og Öldu. Nú á laugardaginn, 10. desember 2011, fer fram „Skötumótið“ sem er orðinn árviss viðburður hjá klúbbnum, en þar er göldruð fram einhver sú kæstasta skata sunnan Vestfjarða. Hér fer viðtalið við Guðmund: Fullt nafn: Guðmundur Einarsson. Klúbbur: GSG. Hvar og hvernær fæddistu? Í Reykjavík, 16. júlí 1951. Hvar ertu alinn upp? Lesa meira
Myndskeið: Högg ársins á PGA nr. 9 – Jarrod Lyle á Waste Management
Það er bandaríski kylfingurinn Jarrod Lyle, sem komst í gegnum Q-school nú nýverið sem á högg nr. 9 yfir fallegustu högg PGA mótaraðarinnar 2011. Höggið góða sló Jarrod á 2. hring Waste Mangement mótsins á par-3, 16. braut TPC Scottsdale golfvallarins. Áhorfendur eru sem í rómversku hringleikahúsi allt í kringum kylfingana, sem slá og ekki amalegt að halda einbeitingu og slá jafnglæsilegt högg og högg Jarrod var. Högg Jarrod var hátt og fallegt og flaug beint inn á flöt og ofan í holu. Glæsilegur ás! Til þess að sjá draumahögg Jarrod Lyle smellið HÉR:









