Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 16:00

Korpan – Golfvöllur með SÁL því dómnefnd ákvað að nöfnin á lykkjunum skyldu vera Sjórinn, Áin og Landið

Sem kunnugt er verður Korpan fyrst íslenskra golfvalla að 27 holu velli. Efnt var til samkeppni um nöfnin á sérhverjum hinna þriggja  9-holu hluta, eða lykkjum á vellinum. Skipuð var dómnefnd til að velja flottustu nöfnin og var niðurstaða dómnefndar eftirfarandi skv. frétt á heimasíðu GR, grgolf.is: „Tillögurnar sem bárust um nöfn á 9 holu lykkjurnar þrjár á golfvellinum á Korpúlfsstöðum reyndust 21 og komu frá 13 aðilum. Merkilegur samhljómur var í flestum tillagnanna að því leyti að nöfnin voru sótt í staðhætti á Korpúlfsstöðum.  Fyrsta lykkjan, holur 1-9,  liggur líkt og nú meðfram sjónum. Meðal tillagna um nafn voru ströndin, sjórinn, sundin og vogurinn. Önnur lykkjan, holur 10-18, liggur Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 15:00

Justin Rose verður ekki með í Dubai – „Fjölskyldan hefir forgang“

Justin Rose frá Englandi tekur ekki þátt í Dubai World Championship, sem hefst á morgun, vegna þess að von er á fjölgun í fjölskyldunni en kona hans, Kate, er að fara að eignast 2. barn þeirra. Fyrir eiga þau soninn Leo. Á Twitter sagði Justin eftirfarandi: „Flýg heim til Orlando nú.” „Annað barnið fæðist bráðlega. Dapurt að geta ekki verið með í Dubai. Fjölskyldan hefir forgang.” Justin tók þátt í Hong Kong Open nú s.l. helgi til þess að eiga kost á að koma til greina í Ryderbikarslið Evrópu en til þess verður hann að spila í 13 mótum. Eitthvað hefir hann verið annars hugar því hann komst ekki í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 14:00

Kaymer er viss um að verða framar en McIlroy

Martin Kaymer er viss um að ná 2. sætinu af liðsfélaga sínum úr Ryder bikarkeppninni, Rory McIlroy, í Race to Dubai. Hinn hlédrægi, 26 ára Þjóðverji (Kaymer) á skiljanlega góðar minningar frá Earth golfvellinum í the Jumeirah Golf Estates – en það er staðurinn þar sem hann hlaut Harry Vardon Trophy . Það verður ekki endurtekið í ár og Luke Donald og McIlroy munu báðir að reyna að hneppa vinningssætið í mótinu í ár. En Kaymer, sem á titil að verja vonast til að hljóta 2. sætið n.k. sunnudag, hafi hann náð sér nægilega eftir löng flug sem hann hefir lagt að baki frá því að hann sigraði á World Golf Championships (WGC) Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 13:00

Brendon Todd varð í 1. sæti á PGA Q-school

Það var Brendon Todd sem sigraði á La Quinta golfvellinum þar sem 6 erfiðir hringir PGA Q-school voru spilaðir nú s.l. daga. Brendon spilaði hringina 6 á samtals -17 undir pari, samtals 415 höggum (71 68 69 71 68 68). Hann var 1 höggi á undan Stephen Gangluff, sem varð í 2. sæti. Þátttökurétt á PGA á næsta ári hljóta þeir sem urðu jafnir í 27. sæti eða ofar.  Alls fengu eftirfarandi 29 strákar kortið sitt á bandarísku PGA mótaröðina fyrir keppnistímabilið 2012. Þeir eru eftirfarandi: Sæti F.d. Leikmaður Lokad. To Par H1 H2 H3 H4 H5 H6 Samtals 1 T3 Brendon Todd (NT) -4 F -17 71 68 69 71 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Nr. 1- Luke Donald – 7. desember 2011

Það er Luke Donald nr. 1 á heimslistanum og heimsmeistari í holukeppni 2011, sem er afmæliskylfingur dagsins. Luke Campbell Donald fæddist 7. desember 1977 í Hemel Hempstead, Herts í Hertfordshire og er því 34 ára í dag. Pabbi Luke var frá Stranraer í suðvesturhluta Skotlands, en hann varð bráðkvaddur nú nýverið. Vegna þess að rætur Luke liggja í Stranraer hefir hann alltaf talið sig hálfskoskan. Luke á bróður Christian og saman spiluðu þeir golf í Hazlemere og Beaconsfield golfklúbbunum á yngri árum og þegar Luke fór að skara fram úr var bróðir hans m.a.s. kylfuberi hans og lengi vel frameftir eftir þegar Luke fór að spila á öllum helstu mótaröðum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 11:00

Þeir golffélagar sem eru mest pirrandi

Hvað er það sem fer mest í taugarnar á ykkur varðandi spilafélaga ykkar? Stundum er það. svo að spilað er við ókunnuga og það er eitthvað sem fer óheyrilega í pirrurnar á ykkur. T.d ef viðkomandi talar í símann, neitar að taka upp boltann, þó hann sé búinn að koma honum í ómögulega legu, eða viðkomandi veitir óumbeðið sveifluráð og svo mætti lengi telja. Hún er skemmtileg samantekt Golf Digest  í máli og myndum yfir mest pirrandi golffélagana. Það er aðeins eitt verra en að spila við slíka kylfinga og það er að vera svona sjálfur. Sjá má samantekt Golf Digest yfir mest pirrandi golffélagana með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 10:00

Aaron Baddeley ekki í eins góðu formi og ástralskir ruðningsboltakappar

Aaron Baddeley stærir sig af því að vera vera í góðu formi. En það er einfaldlega ekki hægt að bera saman gott form í ruðningi og golfi, eins og tvöfaldur meistari Australian Open komst að fyrr í dag (Ástralir á undan okkar tíma). Þar sem Aaron hefir alla ævi verið mikill aðdáandi  Geelong Football Club, sem er í efsta sæti í AFL, fékk Baddeley að taka þátt í æfingu með starfsmönnum „Cats“ í Simonds Stadium. Þetta leit allt vel út í fyrstu fyrir hinn 30 ára (Baddeley) þegar hann tók þátt í handbolta og sparkæfingum ásamt ruðningsboltahetjunum Steve Johnson, Tom Hawkins og Shannon Byrnes. Líkt og með löngu járnunum þá var Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 09:00

Aðalfundur GL í golfskálanum kl. 18:00 í dag – Samningur um nýja vélaskemmu undirritaður 5. des

Á heimasíðu GL er eftirfarandi fundarboð: „Aðalfundur er boðaður miðvikudaginn 7. des.kl. 18.00 í golfskála félagsins. Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 8. lagagrein félagsins og lagabreytingar á 3. gr. í lögum Golfklúbbsins Leynis.“ Helstu fréttir úr klúbbnum eru þær að í fyrradag var undirritaður samningur við Akranesskaupstað um byggingu nýrrar 500 fermetra vélaskemmu fyrir GL. Á heimasíðu GL segir að Akraneskaupstaður styðji vel við bakið á GL í þessum framkvæmdum og að vonast sé til að framkvæmdir geti hafist fljótlega.

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 08:00

Ásgeir Sverrisson áfram formaður GKJ – rekstrarhagnaður GKJ 7,7 milljónir árið 2011

Aðalfundur Golfklúbbsins Kjalar 2011 var haldinn fimmtudaginn 1. desember í Hlégarði.  56 félagar í klúbbnum sátu fundinn. Lögð var fram skýrsla stjórnar og reikningar sem voru samþykktir samhljóða.  Þá var lögð fram áætlun og verkáætlun ársins sem var einnig samþykkt samhljóða. Tillaga stjórnar að félagsgjöldum var samþykkt og að því undanskildu að ný stjórn ætlar að skoða með opnum hug félagsgjald 67 ára og eldri. Úr stjórn gengu Guðrún Leósdóttir og áður hafði Gunnar Páll Pálsson hætt sem formaður og um leið í stjórn.  Var þeim þakkað fyrir þeirra framlag til klúbbsins í gegnum tíðina. Ásgeir Sverrisson var kjörinn formaður áfram en hann tók við sem formaður í febrúar þegar Gunnar hætti.  Nýtt fólk í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2011 | 07:00

Jón Pétur Jónsson endurkjörinn formaður GR – hagnaður GR var 12 milljónir árið 2011

Á heimasíðu stærsta golfklúbbs Íslands, GR, er eftirfarandi frétt: „Jón Pétur Jónsson var endurkjörinn formaður Golfklúbbs Reykjavíkur á aðalfundi klúbbsins sem fram fór í  golfskálanum í Grafarholti mánudaginn 5.desember. Jón Pétur er að hefja sitt fimmta ár sem formaður Golfklúbbs Reykjavíkur. Nýkjörinn formaður vill koma á framfæri þökkum til félagsmanna með það traust sem honum var sýnt með endurkjöri. Aðrir stjórnarmeðlimir gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Eins og fyrr segir var aðalfundur GR haldinn 5. desember þar sem félagsmönnum var kynnt starfsárið sem var að líða. Hagnaður á rekstri klúbbsins á starfsárinu var um 12 milljónir króna, en til samanburðar var hagnaður síðasta árs rúmar 3 milljónir króna. Lesa meira