Evróputúrinn: Alvaro Quiros efstur í Dubai fyrir lokahringinn
Spánverjinn Alvaro Quiros leiðir fyrir lokahringinn á Dubai World Championships, sem spilaður verður á morgun. Quiros er með 2 högga forystu á Skotann Paul Lawrie, sem er í 2. sæti. Quiros er búinn að spila á samtals -14 undir pari, samtals 202 höggum (68 64 70). Paul Lawrie er á samtals -12 undir pari, 204 höggum (65 73 66). Í 3. sæti er Louis Oosthuizen 1 höggi á eftir Lawrie, samtals -11 undir pari þ.e. samtals 205 höggum (72 67 66) og í 4. sæti er nr. 1 í heiminum, Luke Donald, sem virðist búinn að tryggja sér efsta sætið á peningalistum beggja vegna Atlantsála á samtals -10 undir pari, Lesa meira
Hver er kylfingurinn: Camilo Villegas? (I. hluti af III)
Kólombíski kylfingurinn Camilo Villegas er í uppáhaldi hjá mörgum. Hann þykir meðal kynþokkafyllstu kylfinga á túrnum og hefir m.a setið fyrir nakinn í ESPN Body Issue í frægu „köngulóarstöðu” sinni, sem hann fer í þegar hann skoðar púttlínuna. Hann hefir fremur lítið verið í fréttum á árinu, en virðist farinn að láta á sér kræla aftur. Hver er þessi kólombíski kyntröllskylfingur? Hér verður í III. hlutum fræðst nánar um hver kylfingurinn Villegas er: Camilo Villegas fæddist 7. janúar 1982, í Medellin, í Kólombíu. Hann byrjaði að spila golf sem barn. Eftir margra ára keppni á barna- og unglingamótum, í Kólombíu 8-15 ára, varð hann fyrsti kylfingurinn í golfsögu Kólombíu til þess að Lesa meira
Caroline Hedwall í forystu eftir 2. dag Hero Women´s Indian Open
Caroline Hedwall leiðir á Hero Women´s Indian Open fyrir lokadaginn. Hún er á samtals -9 undir pari, samtals 135 höggum (67 68). Það eru hin sænska Linda Wessberg og Pornanong Phatlum frá Thaílandi, sem deila 2. sætinu eftir daginn; Linda kom í hús á 66 höggum í dag og er samtals búin að spila á 136 höggum (70 66) , þ.e. samtals -8 undir pari, sem er sama skor og Phatlum er á, að vísu samtals 136 högg (67 69). Til þess að sjá stöðuna á Hero Women´s Indian Open þegar mótið er hálfnað smellið HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Don Bies – 10. desember 2011
Það er Don Bies, sem er afmæliskylfingur dagsins en hann fæddist í Cottonwood, Idaho 10. desember 1937 og er því 74 ára í dag. Bies gerðist atvinnumaður í golfi árið 1957 og hefir spilað bæði á PGA og Senior PGA Tour, sem nú heitir Champions Tour. Bies sigraði 1 sinni á PGA, en það var árið 1975 þegar hann vann Sammy Davis Jr. – Greater Hartford Open. Jafnframt er hann sjöfaldur ríkismeistari Washington State PGA Championship. Besti árangur hans á risamóti var þegar hann deildi 5. sætinu 1968 á Opna bandaríska. Bies spilaði á PGA til ársins 1980. Eftir að hann varð 50 ára, í lok árs 1987, spilaði hann Lesa meira
Evróputúrinn: Martin Kaymer jafnaði vallarmet í Dubai – Var á 64 höggum í dag!
Nú stendur yfir á Earth golfvellinum í Jumeirah Estates í Dubai 3. hringur á Dubai World Championship. Þjóðverjinn Martin Kaymer, sem er nr. 4 á heimslistanum var að koma í hús á ansi hreint frábæru skori. Hann tók sig til og jafnaði vallarmetið á Earth golfvellinum, spilaði á 64 höggum, líkt og Alvaro Quiros, sem jafnaði vallarmetið í gær. Quiros er enn með forystu í mótinu, en hefir ekki lokið leik. Martin fékk 2 fugla á fyrri 9 og 4 fugla á seinni og lauk hringnum með glæsilegum erni á 18. braut. Glæsilegur skollafrír hringur! Fyrir mótið sagði Kaymer í viðtali að hann ætti alveg roð í Rory (McIlroy) og Lesa meira
Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 1
Í vor, nánar tiltekið fimmtudaginn 28. apríl 2011 tilkynnti hin mexíkanska Lorena Ochoa, besti kvenkylfingur heims um áraskeið, að hún ætti von á fyrsta barni sínu. Fréttirnar bárust, frá henni bæði á ensku og spænsku, þennan apríldag á Twitter, en þar sagði hún: “Ég er mjög ánægð að deila því með öllum að við eigum von á barni!” Með “okkur” átti Lorena við sig og eiginmann sinn, Andres Conesa, yfirmann mexíkanska flugfélagsins Areomexico, en honum giftist hún í desember 2009. Hann á 3 börn með fyrri konu sinni. Lorena hætti mjög skyndilega, öllum á óvörum, á LPGA túrnum, en þar var hún búin að sigra 27 sinnum og tvívegis á Lesa meira
Numa Gulyanamitta sigraði í Q-school LPGA
Nú fyrr í vikunni lauk 5 hringja lokaúrtökumóti LPGA. Það var Numa Gulyanamitta, sem var í sjöunda himni eftir 5. og lokahring sinn í Q-school LPGA. Hún varð í 1. sæti og hlaut að launum kortið sitt og þar með keppnisrétt á LPGA næsta ár og smá vasapening $5,000. Þegar þessi fyrrum nemandi Purdue háskóla var spurð að því hvort hún hefði vitað að hún myndi taka vinningstékkann heim, hristi hún höfuðið. Hún var bara svo ánægð að hafa komist á LPGA og það með fjölskylduna sem áhorfendur. „Þessi vika var skemmtileg og kaddýinn minn var góður – hún á allan heiður skilið,“ sagði Gulyanamitta um systur sína og fyrrum leikmann Lesa meira
Úlfar Jónsson velur 50 kylfinga í afrekshóp GSÍ 2012
Á golf.is, fréttavef Golfsambands Íslands er tilkynnt um val Úlfars Jónssonar, landsliðsþjálfara Íslands í golfi á 50 kylfingum í afrekshóp GSÍ. Þar segir: „Úlfar Jónsson hefir verið ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í golfi, en hann tekur við starfinu af Ragnari Ólafsyni sem starfar áfram fyrir golfsambandið, en nú í starfi liðsstjóra. Úlfar er PGA-golfkennari og íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar en hann mun sinna landsliðsþjálfarastarfinu ásamt því starfi. Á liðnu golfþingi var kynnt ný afreksstefna Golfsambands Íslands og framtíðarsýn hennar. Þar kemur meðal annars fram að innan tíu ára verði íslenskur kylfingur á meðal þátttakenda á sterkustu atvinnumótaröðum í Evrópu og eða Bandaríkjunum. Úlfar hefur nú valið þá 50 kylfinga Lesa meira
Viðtalið: Unnar Geir Einarsson, GS.
Unnar Geir Einarsson starfaði tímabundið í golfskála GS í sumar og tók Golf 1 eftirfarandi viðtal við hann, sem fer hér á eftir: Fullt nafn: Unnar Geir Einarsson. Klúbbur: GS. Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Keflavík, 27. desember 1994. Hvar ertu alinn upp? Í Keflavík. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég bý heima hjá pabba og mömmu og á 2 tvo bræður. Pabbi og litli bróðir minn eru í golfi og mamma er að reyna. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Það eru svona 5-6 ár síðan. Ég byrjaði á því að halda á kylfum og labba með pabba, en hef verið á fullu að æfa Lesa meira
Myndskeið: Högg ársins á PGA nr. 8 – Bubba Watson
Einn af þrumufleygum ársins á PGA Tour 2011 var hleypt af stað þegar á fyrsta móti ársins 2011, Hyundai Tournament of Champions, í Kapalua, á Hawaii. Það var sleggjan Bubba Watson, sem átti skrímsladræv á 18.braut Plantation golfvallarins. Þetta var 2. höggið hans á þessari erfiðu par-5 braut og Bubba náði erni á holuna á þessum 1. hring mótsins. Þess bera að geta að brautin er 606 metra löng. Bubba lauk keppni á mótinu með því að deila 25. sætinu með Hunter Mahan og Charlie Hoffman. Það var síðan Jonathan Byrd sem sigraði í mótinu eftir umspil við Robert Garrigus. Sjá má myndskeið af drævinu með því að smella Lesa meira









