
Ángel Cabrera leiðir eftir 1. hring á VISA Opna argentínska styrktu af Peugeot
Í gær hófst á El Pilar Golf í Buenos Aires í 106. sinn VISA Open de Argentina, en þetta er næstsíðasta móta á TLA (Tour de Las Americas). Mótið er skipulagt af Asociación Argentina de Golf (þ.e. golfsambandi Argentínu) og IMG í Argentínu. Verðlaunafé er US $ 115,000 dollarar.
Það er heimamaðurinn, hinn tvöfaldi sigurvegari risamóta Ángel Cabrera sem leiðir eftir frábæran opnunarhring upp á -4 undir pari, þ.e. 67 högg.
„Sannleikur er sá að þetta var ekki þægileg byrjun en frá holu 15, sem var 6. holan mín, átti ég nokkur góð högg og sjálfstraustið jókst,“ sagði þessi 42 ára kylfingur sem kallaður er „El Pato“ (ísl.: öndin) í heimalandinu, Argentínu. „Að ná þessu skori á Opna argentínska er alltaf erfitt sérstaklega í þessum aðstæðum, þegar það er vindasamt og flatirnar eru þurrar,“ sagði Cabrera m.a.
Aðrir þátttakendur í mótinu er m.a. Roberto Díaz frá Mexíkó, heimamennirnir Sebastián Saavedra, Luciano Giometti, Paulo Pinto, Daniel Altamirano, Ricardo González og David Ferreyra.; Santiago Russi frá Chile og Kólombíubúinn Santiago Rivas.
Sjá má myndskeið af bænum Pilar í Argentínu, þar sem golfvellinum bregður fyrir með því að smella HÉR:
Ángel Cabrera
Heimild: Byggt á grein eftir Gregory Villalobos, ritstjóra TLA.
gvillalobos@tourdelasamericas.com
Twitter: @gregcrc
- júní. 7. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía M. Jónsdóttir – 7. júní 2023
- maí. 19. 2023 | 19:00 GKS: GA tekur við rekstri Siglo Golf
- maí. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingjaldur Valdimarsson – 19. maí 2023
- apríl. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórey Petra ——– 18. apríl 2023
- apríl. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ragna Björk Ólafsdóttir – 17. apríl 2023
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1