Adam Scott hermir eftir Tiger aftur… og aftur!
Charles Caleb Colton skrifaði eitt sinn: „Að herma/stæla er einlægasta form skjalls.” (Ens.: „Imitation is the sincerest form of flattery.“) Ef svo er þá hlýtur Tiger að finnast Adam Scott hreint og beint elska sig. Það er kunnara en frá þurfi að segja að Adam Scott var algerlega heillaður af golfsveiflu Tigers og reyndi að stæla hana eins og hann gat. Og hann gerði það svo vel að sveifla hans lítur út eins og kópía af sveiflu Tiger, þar til Tiger fór að rugla hana til fyrir u.þ.b. 10 árum. En ef þið lítið á sveiflu Adams nú er það enn sama sveiflan. Hann er eins og mannleg tímavel sem Lesa meira
Góðar minningar fyrir Luke Donald – myndi vilja spila í Melbourne aftur
Nr. 1 á listanum yfir bestu kylfinga heims myndi langa til að spila meira golf í Ástralíu. Það varð enginn ævintýraendir á keppnistímabilinu 2011 á JBWere Australian Masters,ári sem þó er búið að vera Luke Donald svo gott. En engu að síður segist hann fara frá Ástralíu með góðar minningar. Luke byrjaði lokadaginn í Victoria Golf Club í Melbourne -5 undir pari og á 8 höggum meira en forystan, en Luke lauk leik á +1 yfir pari, 73 höggum í mjög svo hvössum veðurskilyrðum og deildi 12. sætinu með öðrum (s.s. greint var frá hér á Golf 1 í gær). Þetta var ekki sú tegund golfs sem hefir leitt Luke Donald Lesa meira
Shirley Spork hver er það í golfinu?
Shirley Spork er einn af 13 frumkvöðlum að stofnun LPGA (Ladies Professional Golf Association). Hún er kannski ekki eins þekkt og hinir frumkvöðlarnir t.d. Patty Berg, sem Golf 1 hefir fjallað um (smellið á PATTY BERG) eða Louise Suggs eða Babe Zaharias. En hún er ekki minna merkileg fyrir það. Spork, sem í dag er 84 ára, var fyrsta konan sem var boðið að stíga fæti inn í klúbbhús Royal and Ancient, í vöggu golfsins, á Skotlandi. Það var fyrir 60 árum síðan, árið 1951, en Spork var með golfnámskeið í Bretlandi á þeim tíma. Í fundarsal inni í klúbbhúsinu voru nokkrir félagar sem voru hrifnir af wedge-spili hennar og báðu Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Art Deco Opið kvennamót hjá GVS – 6. ágúst 2011
Laugardaginn 6. ágúst í sumar var haldið eitt glæsilegasta kvennagolfmót, sem GVS stendur fyrir Artdeco mótið. (Allar nánari upplýsingar um Artdeco snyrtivörurnar er hægt að finna á heimasíðu Artdeco: www.artdeco.de en þ.á.m. eru margar skemmtilegar jólagjafahugmyndir!) Með því að smella hér má sjá myndaseríu úr mótinu: ARTDECO OPIÐ KVENNAMÓT 2011 Í mótinu í sumar voru þátttakendur 86 og 82 konur luku keppni. Leikfyrirkomulag var punktakeppni og höggleikur og var hámarks leikforgjöf 28 og ekki hægt að vinna til verðlauna í báðum flokkum. Helstu úrslit urðu eftirfarandi: Punktakeppni: 1. sæti Margrét Berg Theódórsdóttir, GK, 37 pkt. Hún hlaut í verðlaun Artdeco snyrtivörur að verðmæti kr. 30.000,- 2 sæti Kristín Sigurbergsdóttir, GK, Lesa meira
Artdeco mótið hjá GVS – 6. ágúst 2011
Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 8
Hér er komið að 8. og síðustu grein eins golffréttamanna Golf Digest þar sem rifjuð eru upp kynni af kylfingnum Lorenu Ochoa, sem varð móðir í fyrsta sinn fyrir 10 dögum síðan – fæddi son sinn, Pedro Conesa – 8. desember 2011. Hér fer eftirfarandi grein: Hinn upptekni atvinnukylfingur eftir Topsy Siderowf Í janúar 2008 fór ég til heimalands Lorenu, Mexíkó til þess að taka upp kynningu á henni í Guadalajara Country Club. Á þeim tíma var hún LPGA kylfingur ársins og kannski á toppi ferils síns. Hvernig sem það var, þá var hún nánast með ekkert egó. Bara yndisleg og góð. Það sló mig með hversu miklu jafnaðargeði hún stóð Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Shin Ae Ahn – 18. desember 2011
Það er Shin Ae Ahn, frá Suður-Kóreu, sem er afmæliskylfingur dagsins. Shin fæddist 18. desember 1990 og er því 21 árs í dag. Hún vakti verðskuldaða athygli á Evían Masters mótinu, í Évian-Les-Bains, í Frakklandi í sumar. Þessi geðþekka, unga stúlka frá Suður-Kóreu deildi efsta sætinu þar með sér reyndari og þekktari kvenkylfingum, flesta dagana, sem mótið fór fram (m.a. Karen Stupples og Mariu Hjorth) og gekk mun betur en heimsþekktum kvenkylfingum, (s.s. Paulu Creamer, Cristie Kerr og Yani Tseng.) Shin Ae Ahn spilaði fyrsta tímabilið sitt á KLPGA árið 2009 og átti mjög gott ár sem nýliði. Hún var 4 sinnum meðal 10 efstu og var í 21. sæti á Lesa meira
TaylorMade kynnir til sögunnar RocketBallz og RocketBallz Tour drævera
TaylorMade Golf Company kynnti fyrir nokkrum dögum, nánar tiltekið 13. desember 2011, nýja byltingarkennda dræveralínu, sem hlotið hefir nafnið RocketBallz (RBZ) en hún sameinar hraða, aðlaganleika (ens.: adjustability) og val um tvö mismunandi kylfuhöfuð— RocketBallz og RocketBallz Tour — sem eru hönnuð til þess að höfða til breiðs hóps kylfinga. Það er eftirtektarvert, að PGA Tour stjörnurnar Camilo Villegas, sem Golf 1 hefir verið með kynningar á (smellið hér: Camilo I, Camilo II og Camilo III) og Jason Day, munu spila með nýju RBZ dræverunum, á næsta keppnistímabili, en gripurinn kostar „aðeins“ $299 (u.þ.b. kr. 36.000,-) út úr golfbúð í Bandaríkjunum. „Við erum að setja nýjan standard í dræver kategoríunni, Lesa meira
Lee Westwood sigraði á Thaíland Golf Championship
Lee Westwood stóð uppi sem sigurvegari á Thaíland Golf Championship eftir hring upp á 69 högg í dag. Samtals sigurskor Lee var (60 64 74 69) eða samtals 266 högg, – 22 undir pari. Í 2. sæti var sá sem gerði atlöguna miklu að Lee í gær Masters-risamótasigurvegarinn 2011 frá Suður-Afríku, Charl Schwartzel. Hann var á samtals – 15 undir pari, 273 höggum (69 66 66 72). í 3. sæti varð síðan Bandaríkjamaðurinn Michael Thompson (69 66 69 70) samtals á -14 undir pari og 4. sætinu deildu Chawalit Plaphol og Simon Dyson á -12 undir pari eða 10 höggum á eftir Westy. Til þess að sjá úrslit á Thaíland Golf Lesa meira
Ian Poulter sigraði á JBWere Australian Masters
Margir höfðu beðið spenntir eftir einvígi heimamannsins Geoff Ogilvy, sem að sögn hefir spilað Victoria golfvöllinn í Melbourne oftar en nokkurn annan völl í heiminum og Englendingsins Ian Poulter. Ljóst varð þó á 1. holu að ekkert yrði af einvíginu því strax þar missti Ogilvy 2 högga forystu sína þegar Poulter fékk örn og má segja að Ian Poulter hafi síðan verið yfir það sem eftir var hringsins. Ian Poulter spilaði á 67 höggum í dag á hring þar sem hann fékk m.a. örn á 1. braut, 3 fugla og 1 skolla. Samtals var sigurskorið upp á – 15 undir pari, 269 högg (65 68 69 67). Ian var með Lesa meira









