GK: Skötuveisla á Þorláksmessu í Golfskála Keilis!
Skötuveisla !! Á Þorláksmessu verður skötuveisla haldin í golfskála Keilis. Boðið verður upp á hádegismat frá kl. 12.00 og kvöldmat frá kl. 19.00. Á boðstólum er kæst skata fyrir byrjendur og lengra komna, saltfiskur, og allt annað sem þarf til að koma sér í jólaskap. Húsið er öllum opið á meðan borðrúm leyfir. Miðaverð er aðeins 2500 kr. Vinsamlegast bókið ykkur í matinn, í síma 565-3360 eða hjá pga@keilir.is
Ai Miyazato hlýtur peningatitil LET á skrítinn hátt!
Ai Miyazato fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum tók aðeins þátt í 2 mótum á Evrópumótaröð kvenna á þessu ári, en engu að síður varð hún í 1. sæti á peningalista LET. Mótin sem hún tók þátt í voru Evian Masters og Women’s British Open. Ai sigraði í Evian en náði ekki niðurskurði í Opna breska. Peningatitilinn hlýtur hún því eftir skrítinni leið – fyrir sigur á einu móti, þar sem verðlaunaféð er langhæst af öllum mótum kvennagolfsins eða $487,500. Bara með sigri á þessu 1 móti náði hún auðveldlega að hrifsa til sín 1. sæti peningalistans á undan þeim Melissu Reid, sem varð í 2. sæti og nýliðanum Caroline Hedwall, sem Lesa meira
GKG tilnefnir kylfinga í vali á íþróttakarli- og konu Kópavogs og Garðabæjar.
Á heimasíðu GKG ritar landsliðsþjálfarinn í golfi Úlfar Jónsson eftirfarandi: „Í kringum áramót er hefð fyrir því að heiðra fremsta íþróttafólk í viðkomandi bæjarfélögum. Íþróttafélögin tilnefna sitt fremsta afreksfólk til íþróttakarls og íþróttakonu ársins. Einnig fær efnilegasta íþróttafólkið viðurkenningar, sem og Íslandsmeistarar og bikarmeistarar. GKG tilnefnir eftirfarandi kylfinga í kjöri um íþróttakarl og konu í Kópavogi: 17 ára og eldri: Birgir Leifur Hafþórsson og Ingunn Gunnarsdóttir 13-16 ára: Særós Eva Óskarsdóttir og Ragnar Már Garðarsson Í Garðabæ: Guðjón Henning Hilmarsson og Ingunn Gunnarsdóttir Efnilegust: Gunnhildur Kristjánsdóttir og Óðinn Þór Ríkharðsson Tveir Íslandsmeistaratitlar hlotnuðust GKG kylfingum, en Ragnar Már sigraði í flokki 15-16 ára á Íslandsmótinu í höggleik, og sveit GKG Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Gísli Sváfnisson – 21. desember 2011
Það er Gísli Sváfnisson, GKG, sem er afmæliskylfingur dagsins. Gísli er fæddur 21. desember 1952 og er því 59 ára í dag. Gísli hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum í sumar með góðum árangri. T.d. varð hann í 1. sæti í punktakeppni á Spanish Open, styrktarmóti þeirra Ólafs Más Sigurðssonar og Þórðar Rafns Gissurarsonar, þ. 28. ágúst s.l. Þar fékk hann 42 punkta og varð sem segir efstur af 195 keppendum mótsins, sem luku leik. Gísli er kvæntur Guðrúnu Björgu Guðmundsdóttur og eiga þau tvö börn Sváfni og Emiliíu Benediktu. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Lesa meira
Viðtalið: Nökkvi Gunnarsson, NK
Nökkvi Gunnarsson, golfkennari í NK, vann í gær, 20. desember 2011, glæsilegan sigur á Open Golf America (OGA) Tour, sem er mótaröð í Flórída. Hann er nú staddur í Flórída til þess að bæta við sig námi í golfkennaranum auk þess sem hann tekur þátt í OGA Tour og Florida Professional Golf Tour, en mót á þeim mótaröðum eru aðallega haldin á svæðinu milli Tampa og Orlando. Í viðtali við Nökkva kom fram að hann hefði lítinn tíma til golfleiks á sumrin vegna þess að þá væri háannatími hjá sér í að kenna golf. Engu að síður tók Nökkvi þátt í nokkrum mótum með góðum árangri í sumar og er þar Lesa meira
Nökkvi Gunnarsson, NK, sigraði í 4. móti OGA í Flórída
Nökkvi Gunnarsson, NK, tekur nú þátt í Open Golf America (skammst.: OGA) mótaröðinni í Flórída, þar sem m.a. taka þátt núverandi og fyrrverandi kylfingar á sterkustu mótaröð heims, bandaríska PGA. Í gær sigraði Nökkvi á 4. mótinu, sem hann tók þátt í, en spilað var á Metro West golfvellinum hjá Orlando. Sjá má myndir af gullfallegum (en jafnframt erfiðum) golfvellinum á heimasíðu Metro West með því að smella HÉR: Einvígismeistarinn á Nesinu 2011 (Nökkvi Gunnarsson) kom inn á frábæru 69 högga skori. Fyrir gærdaginn hafði Nökkvi spilað á 3 mótum OGA og gengið vel – varð í 3., 6. og 4. sæti. Eftir sigurinn skrifaði Nökkvi m.a. á Facebook síðu sína: Lesa meira
Viðtalið: Sigurjón Harðarson, GÁS
Viðtalið í dag er við Sigurjón Harðarson, formann Golfklúbbs Ásatúns og eiganda bifreiðaverkstæðisins Topps í Kópavogi. Hér fara spurningar Golf 1 og svör Sigurjóns: Fullt nafn: Sigurjón Harðarson. Klúbbur: GÁS. Hvar og hvenær fæddistu? Í Reykjavík 28. september 1952. Hvar ertu alinn upp? Ég er alinn upp í Hraunteig í Lauganeshverfinu milli þess að ég var í sveit í Vattanesi í Reyðarfirði . Þegar ég var 9 ára var ég í Kalmanstungu í Borgarnesi. Þar var ég í sveit í mörg ár. Ég er sveitamaður – byrjaði snemma að vinna 12 ára var ég í frystihúsi – síðan var ég að sendast fyrir Reykjavíkurapótek 10-13 ára – en ég hef alla Lesa meira
Luke Donald valinn kylfingur ársins af blaðamönnum
Nr. 1 í heimi golfsins, Luke Donald, hefir nú hlotið enn eina rósina í hnappagatið. Honum var veittur Golf Writers Trophy 2011, þ.e. hann var valinn kylfingur ársins af blaðamönnum. Darren Clarke sigurvegari Opna breska og Rory McIlroy sigurvegari Opna bandaríska deildu 2. sætinu í kjörinu, meðan evrópska Solheim Cup liðið undir forystu Alison Nicholas varð í 4. sæti og Walker Cup liðið í því 5. „Sérhver verðlaun sem maður hlýtur veita manni mikla ánægju og að blaðamenn skuli velja mig sem kylfing ársins hefir mikla þýðingu fyrir mig, virkilega,” sagði Luke. „Þetta er fólkið sem virkilega skilur golf og kann að meta þann árangur sem ég hef náð í Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Jennifer Song – 20. desember 2011
Það er Jennifer Song sem er afmæliskylfingur dagins. Hún fæddist 20. desember 1989 í Ann Arbor, í Michigan og er því 22 ára í dag. Hún komst á LPGA í gegnum góðan árangur sinn á Futures Tour í fyrra og er 2011 því fyrsta árið hennar á túrnum. Árið 2009 sigraði hún bæði í US Women´s Amateur Public Links og US Women´s Amateur. Hún er 4. kylfingurinn í sögunni til þess að sigra bæði mótin og aðeins önnur af 2 kylfingum til þess að sigra bæði mót sama árið. Song ólst upp í Suður-Kóreu en fluttist með foreldrum sínum til Bandaríkjanna og er í dag með tvöfaldan ríkisborgararétt. Í Kóreu Lesa meira
Yani Tseng valin kveníþróttamaður ársins af US Sports Academy
Nr. 1 í heiminum í kvennagolfinu, Yani Tseng var valin íþróttamaður ársins 2011 af United States Sports Academy. Þessi einstaki kylfingur sem bar höfuð og herðar yfir félaga sína s.l. keppnistímabil var valin af hundruðum þúsunda íþróttaaðdáendum víðs vegar um heim í netkosningu. Þetta er 27. skiptið í röð sem Academían velur íþróttamann ársins í samstarfi við USA Today og NBC Sports. Taíwanski kylfingurinn Yani Tseng hefir átt sögulegt ár. Hún krækti sér í 5. risamótstitil sinn á þessu ári, 22 ára og varð við það sú yngsta sem sigrað hefir í 5 risamótum, hvort heldur er í kvenna- eða karlagolfinu. Tseng skráði sig í sögubækur þegar hún sigraði á Women’s British Lesa meira





