Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Arinbjörn Kúld, GA og Helga Rut Svanbergsdóttir, GKJ – 29. desember 2011

Helga Rut Svanbergsdóttir, GKJ og Arinbjörn Kúld, GA, eru afmæliskylfingar dagsins á Golf 1. Arninbjörn fæddist 29. desember 1960 og er því 51 árs í dag. Hann er í Golfklúbbi Akureyrar og hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum í sumar,  m.a. með eiginkonu sinni Önnu Einarsdóttur. (Sjá má viðtal Golf 1 við Önnu HÉR:) Meðal móta sem þau hjónin tóku þátt í,árið 2011 var: Hjóna-og paramót GA, Lostætis og Hótel Akureyrar, en þau lentu í 5. sæti af 77 pörum, sem þátt tóku og hlutu í verðlaun hótelgistingu. Það má alveg koma fram hér að afmæliskylfingurinn okkar er með skemmtilegri golfspilafélögum, sem nokkur getur átt. Fyrir utan öll skemmtilegheitin Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2011 | 10:00

Ólafía Þórunn tilnefnd til titilsins „Íþróttamaður Reykjavíkur 2011″

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest, Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni kvenna árið 2011, sem og Íslandsmeistari með kvennasveit GR í sveitakeppni GSÍ hefir hlotið enn eina vegtylluna á árinu 2011.  Hún er ein af 11 íþróttamönnum, sem tilnefndir hafa verið til titilsins „Íþróttamaður Reykjavíkur 2011.“ Miðvikudaginn 4. janúar verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Reykjavíkur 2011. Þetta er í 33. sinn sem hann er kjörinn. Veittar verða viðurkenningar til ellefu íþróttamanna í reykvískum félögum fyrir frábæran árangur og mun einn þeirra hljóta útnefninguna. Þeir íþróttamenn sem tilnefndir eru: Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari frá Ármanni Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður frá SR Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona frá Ægi Hafþór Harðarson, keilari frá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2011 | 08:00

Japanska goðsögnin Teruo Sugihara látinn – 74 ára að aldri

Japanska golfgoðsögnin Teruo Sugihara, einnig kallaður „Don japanska golfsins“ eða bara „Sugi“ lést í gær eftir langa baráttu við krabbamein í blöðruhálskirtli. Sugi vann 63 alþjóðleg mót á ferli sem spannaði meira en 50 ár. Hann varð 74 ára. Sugi spilaði sem atvinnumaður, jafnvel eftir að hann var greindur með hinn erfiða sjúkdóm sinn 1997. Árið 2006, þá 68 ára varð hann elsti kylfingur til þess að komast í gegnum niðurskurð á topp-móti atvinnumanna í Japan. Síðasta mót sem hann spilaði á var árið 2010 á Mizuno Open. „Hr. Sugihara hefir verið lærifaðir minn í golfi allt frá unga aldri,“ sagði Isao Aoki, skv. The Times of India. „Það er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2011 | 07:00

GK: Púttmót og fjáröflun krakkanna úr Keili á gamlársdag – Vegleg verðlaun!

Hið árlega áramótapúttmót Hraunkots verður haldið á gamlársdag frá kl. 11-16. Spilaðir verða 2 hringir og gildir betra skor, – en verð fyrir báða hringina er aðeins 500 krónur. Í verðlaun verða flugeldapakkar frá björgunarsveitunum. Síðan verða krakkar úr Keili með fjáröflun á sama tíma í Kotinu. Settar verða upp tvær púttþrautir og getur fólk spreytt sig gegn vægu gjaldi. Nöfn allra sem ná að setja niður pútt verða sett í pott. Dregið verður um glæsilega vinninga, m.a. eftirréttaveislu sælkerans fyrir 8 manns, dúsin af Callaway Tour boltum, lúffur, alfræðiorðabók golfarans, rósabúnt o.fl. Heimild: Heimasíða Keilis www.keilir.is

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2011 | 21:30

Viðtalið: Erlingur Arthúrsson, formaður GHG.

Það er Erlingur Arthúrsson, formaður Golfklúbbs Hveragerðis sem situr fyrir svörum í dag. Hér fer viðtalið við Erling: Fullt nafn: Erlingur Arthúrsson. Klúbbur: GHG. Hvar og hvenær fæddistu?    Ég fæddist á Ísafirði, 20. febrúar 1961. Hvar ertu alinn upp? Ég fór frá Ísafirði 25 ára gamall til Þýskalands; var fyrst í Hannover og síðan 9 ár í München. Hverjar eru fjölskylduaðstæður – er einhver í fjölskyldunni í golfi?  Ég er fráskilinn og á 2 stráka, en þeir eru ekki í golfi. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég var eitthvað í kringum 20 ára þegar ég byrjaði að slá aðeins. Svo var ég 1 ár í Golfklúbbi Ísafjarðar (GÍ) árið 1985 , en Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2011 | 14:00

Frægir kylfingar: Ryan Gosling

Ryan Gosling er leikari, sem margir myndu vilja hafa í draumagolfhollinu sínu. Ryan fæddist 12. nóvember 1980 í London, Ontario í Kanada og er því nýorðinn 31 árs. Hann er kanadísk barnastjarna, kom fram í „The Mickey Mouse Club“ (1993-1995) ásamt miklum vini sínum og öðrum stórkylfingi, stjörnunni Justin Timberlake.  Justin sagði m.a. í þætti Ellen Degeneres fyrr í haust í að hann og Ryan hefðu gert sér leik að því að stela golfbílum og rúnta um á tökusvæði MGM á Mickey Mouse dögum sínum. Hér má sjá myndskeið með Justin í þætti Ellen: JUSTIN TIMBERLAKE TALAR UM ÞAÐ ÞEGAR HANN OG RYAN GOSLING STÁLU GOLFBÍLUM HJÁ MGM Ryan er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Martin Kaymer – 28. desember 2011

Það er nr. 4 á heimslistanum, þýski PGA risamótstitilshafinn Martin Kaymer, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kaymer fæddist 28. desember 1984 í Düsseldorf í Þýskalandi og er því 27 ára í dag. Hann heldur heimili bæði í Mettmann í Þýskalandi og í Scottsdale, Arizona og æfir í eyðimörkinni þar – en við þannig aðstæður virðist hann kunna vel við sig  s.s. 3 sigrar hans á Evrópumótaröðinni í Abu Dhabi bera vitni um.  Kaymer gerðist atvinnumaður 2005 og hefir á þeim tíma sigrað 18 sinnum, þar af 10 sinnum á Evrópumótaröðinni. Fræknasti sigur hans til þessa  er þó á PGA Championship risamótinu, árið 2010 og eins var hann í sigursælu Ryder Cup Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2011 | 11:00

Tveir góðir golfbolir frá Tommy Hilfiger og Antigua

Það virðist vera einhver lenska meðal golfara í Bandaríkjunum að gefa golfboli í jólagjöf – kannski líkt og það er hefð hjá bókaþjóðinni á Íslandi að gefa bækur um jól.  Í þessari grein Ron Mon á Golf Channel virðist sem honum langi í tvo golfboli annan frá Tommy Hilfiger og hinn frá golfvöruframleiðandanum Antigua. Eitthvað sem herrarnir meðal kylfinga hér á landi kynnu að vilja athuga betur.  Tommy Hilfiger bolurinn kemur í tveimur gerðum : TH Tech and TH Comfort Tech. Fyrri bolurinn er  úr polyester, þar sem sérstaklega virðist hafa verið lagt upp út bakteríuvörn sem á að vera í efninu ásamt einhverju sem eyðir svitalykt. Seinni leggur áherslu á þægindi. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2011 | 09:00

Ungar golfstjörnur

Golf er íþrótt, sem gott þykir að byrja að stunda sem barn. Flestir segja að börn séu svo mjúk og liðug og þeir sem byrji ungir að stunda íþróttina nái sveiflu og tilfinningu, sem þeir sem síðar byrja nái aldrei. Það heyrir líka til undantekninga að þeir sem byrja eldri að árum nái að skipa sér meðal hinna fremstu. En svo eru líka þeir kylfingar til sem urðu golfstjörnur þegar á unga aldri. Golf Digest hefir gert samantekt í máli og myndum yfir ungar golfstjörnur sem sjá má með því að smella hér: UNGAR GOLFSTJÖRNUR Meðal þeirra golfstjarna sem slógu í gegn á unga aldri eru Bobby Jones, sem m.a. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2011 | 08:00

Hvað er í uppáhaldi hjá Melissu Reid?

Það hefir ekki farið mikið fyrir enska kylfingnum Melissu Reid í golfpressunni hér á landi. Þó er hún meðal betri kylfinga á Evrópumótaröð kvenna (ens.: Ladies European Tour, skammst.: LET). Hún var m.a. í evrópska Solheim Cup liðinu sigursæla í Killeen Castle nú í haust og svo sigraði hún tvívegis á LET í ár, sem skilaði henni 2. sætinu á Henderson peningalista LET  2011. Hér sýnir Mel á sér hina hliðina þ.e. segir okkur hvað er í uppáhaldi hjá henni, en smekkur hennar er „very British“: Uppáhaldsfatahönnuður: Alexander McQueen. Uppáhaldssnyrtivörur: Bobbi Brown. Uppáhaldsverslun: The one and only Jack Wills – Fabulously British. Uppáhaldsmatur: Ítalskur. Uppáhaldsdrykkur: Evían vatn. Uppáhaldsdesert: Súkkulaðikaka með súkkulaðikremi. Lesa meira