GHD: Sigurður Ingvi Rögnvaldsson úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík er Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011 – Íslandsmeistarar telpna 15 ára og yngri hlutu viðurkenningu
Á heimasíðu Golfklúbbsins Hamars á Dalvík gefur að finna eftirfarandi frétt: „Sigurður Ingvi Rögnvaldsson úr Golfklúbbnum Hamri á Dalvík var í gærkvöldi kjörinn íþróttamaður ársins í Dalvíkurbyggð. Sigurður Ingvi varð á þessu ári fyrsti landsliðsmaður Golfklúbbsins Hamars. Hann tryggði sér sæti í unglingalandsliðinu og keppti fyrir hönd Íslands á Evrópumóti unglingalandsliða. Þá varð hann í öðru sæti á Íslandsmótinu í höggleik, unglinga 17 til 18 ára. Einnig varð hann Norðurlandsmeistari í 17-18 ára flokki unglinga. Sigurður Ingvi hefur verið í fremstu röð í sínum aldursflokki um árabil og hefur með þrautseigju stundaði æfingar og keppni af miklu kappi og dug. Í kjöri voru eftirtaldir: Anna Kristín Friðriksdóttir Hestamannafélagið Hringur Björgvin Lesa meira
Golfbrandari: Arnie, Nicklaus og Tiger hjá Guði
Af því að það er nú föstudagur og það er ekki seinna að vænna að segja svo sem einn brandara á þessu ári, sem er að líða, og vegna þess að það er afmælisdagur Tigers þá verður hér einn gamall Tigerbrandari látinn fjúka: Arnold Palmer, Jack Nicklaus og Tiger Woods standa við hlið Guðs á himnum. Guð lítur á þá og segir áður en ég hleypi ykkur inn verðið þið að segja mér hvað þið hafið lært af jarðvist ykkar og hvað þið trúið á? Guð spyr Arnie fyrstan: „Á hvað trúir þú?“ Arnie hugsar sig um vel og lengi, lítur á Guð og segir: „Ég trúi á það að Lesa meira
Golfspá fyrir 2012
Golf Digest hefir tekið saman lista með spá í 12 atriðum yfir það sem við getum vænst á árinu 2012 í golfinu. Þessi atriði eru eftirfarandi: 1. Félagsgjöld í klúbbum hækka, sem og vallargjöld. 2. Tiger sigrar á Masters. 3. Meiri áhersla verður lögð á líkamsrækt sem hluta af golfi. 4. Fleiri par-3 golfvellir verða byggðir. 5. Óhefðbundnir golfskór komast í tísku. 6. Heimatilbúnar sveilflur fá meiri hljómgrunn. 7. Kylfingar (sérstaklega á PGA) halda áfram að lengja sig (þ.e. högglengd golfhögga þeirra verður meiri en áður og er þó næg fyrir u.þ.b. 290,9 yardar (u.þ.b. 266 metrar). 8. Golf verður endurskilgreint. Erlendis er farið að byggja golfklúbba, sem bjóða upp Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Tiger Woods – 30. desember 2011
Afmæliskylfingur dagsins í dag er Eldrick Tont „Tiger“ Woods. Tiger fæddist 30. desember 1975, í Cypress, í Kaliforníu og er því 36 ára í dag. Hann hefir spilað golf frá 2 ára aldri og þótti undrabarn, sjá má myndskeið með honum bláungum þar sem hann kom fram í sjónvarpsþættinum „The Michael Douglas Show“ ásamt Bob Hope, með því að smella HÉR: Tiger ólst upp í Kaliforníu þar sem hann sigraði næstum öll mót í sínum aldursflokki og oft krakka sem voru mun eldri en hann. Tiger var aðeins 3 ára þegar hann spilaði 9 holur undir 50 höggum. Fyrsta skiptið sem það gerðist var hann á 48 höggum og spilaði Lesa meira
5 (7) bestu högg ársins 2011
Nú í lok árs keppast golffréttamiðlar að taka saman golfárið sem er að líða og hver miðillinn á fætur öðrum birtir samantekt yfir bestu golfhögg ársins. Í gær birti Golf1 mat Golf Digest á bestu 16 höggum ársins, hér kemur enn eitt matið af góðum golffréttamiðli í New York (smellið á feitletruðu undirstrikuðu línurnar til þess að sjá myndskeið af höggunum): Högg nr. 5 – Tiger Woods á 8. braut á Masters 2011 2. högg Tigers á par-5 8. braut á lokahring Masters á Augusta National golfvellinum var slegið með 3-tré og fór beint inn á flöt, þar sem Tiger setti niður púttið sem sýnt er í myndskeiðinu hér að ofan Lesa meira
Tinna Jóhannsdóttir og Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili tilnefnd til titilsins „Íþróttamaður Hafnarfjarðar 2011”
Axel Bóasson, GK og Tinna Jóhannsdóttir, GK voru tilnefnd sem íþróttamenn Hafnarfjarðar 2011 en útnefning íþróttamanns Hafnarfjarðar fór fram í gær við fjölmenna athöfn í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði, þar sem 21 íþróttamenn hlutu viðurkenningar. Axel er „Sleggja ársins 2011” en keppnin þar um fór fram á undan Íslandsmótinu í höggleik í sumar, þar sem Axel varð Íslandsmeistari. Tinna er nýorðin atvinnumaður í golfi og stefnir á að komast á Evrópumótaröð kvenna. Hún vann 2 mót af 3, sem hún tók þátt í á Eimskipsmótaröðinni í sumar. Hrafnhildur Lúthersdóttir, Sundfélagi Hafnarfjarðar og Eyjólfur Þorsteinsson úr Hestamannafélaginu Sörla hlutu titilinn „Íþróttamaður Hafnarfjarðar 2011” að þessu sinni. Aðrir íþróttamenn, sem hlutu viðurkenningar Lesa meira
Luke Donald útnefndur kylfingur ársins af bandarískum golffréttariturum
Nr. 1 í heiminum Luke Donald bætti einni rós í hnappagatið þegar hann var útnefndur karlkylfingur ársins af sambandi bandarískra golfréttaritara (ens.: Golf Writers Association of America, skammst.: GWWA) í dag, fimmtudag, 29. desember 2011. Nr. 1 í heiminum á Rolex-heimslista kvenna, Yani Tseng, sem vann 12 sinnum á alþjóðlegum mótum 2011 var valin kvenkylfingur ársins af GWWA og Tom Lehman var valinn kylfingur ársins meðal öldunga. Luke Donald, sem vann 4 sinnum á heimsvísu 2011 og varð fyrsti kylfingurinn til þess að verða efstur á peningalista beggja vegna Atlantsála, hlaut 88% af atkvæðum GWAA. Þar með sigraði hann Bandaríkjamennina Keegan Bradley og Webb Simpson léttilega sem og Rory McIlroy Lesa meira
Rachel Uchitel, fyrrum hjákona Tiger, ófrísk
Rachel Uchitel, sú hjákvenna Tigers sem kom fyrst fram síðla árs 2009 og upplýsti um framhjáhald Tiger, með dramatískum afleiðingum fyrir þennan fyrrum nr. 1 á heimslistanum er nú aftur í fréttum. Hún á von á barni í apríl 2012… að vísu ekki með Tiger. Hún er nú gift tryggingasölumanninum Matt Hahn, en þau kynntust í nóvember 2010 og bjuggu saman stuttan tíma í New York áður en þau fluttust til San Francisco og giftu sig. Hér má sjá grein með nánari smáatriðum um Rachel Uchitel:
16 minnisstæðustu höggin frá árinu 2011
Golf Digest hefir tekið saman lista yfir 16 minnisstæðustu höggin á helstu mótaröðum heims PGA og LPGA árið 2011. Það sem vekur nokkra athygli er að Rory McIlroy á 3 af þessum 16 höggum. En mörg gullfalleg önnur högg gefur líka að finna í þessari samantekt, t.d. högg Jhonattan Vegas frá Venezuela í umspilinu við Gary Woodland á Bob Hope Classic. Eða þá högg Tiger Woods undir furutré á 17. braut Augusta. Gaman að sjá að snillingarnir geta líka komið sér í vandræði – munurinn á þeim og meðalkylfingnum er að þeir leysa oftast mun betur úr klúðrinu. Athugið að ekki er bara um lýsingu í máli og myndum að Lesa meira
Darren Clarke: „Tími til kominn að sýna meistaratakta aftur!“
Þessi grein er sérstaklega þýdd fyrir Erling Arthúrsson, formann GHG, sem var í viðtali á Golf1.is hér í gær og alla aðdáendur Darren Clarke hér á landi. Greinina skrifaði James Corrigan og birtist hún á vefsíðu Belfast Telegraph fyrr í dag. Hér fer greinin í lauslegri íslenskri þýðingu: „Vandinn við ævilanga drauma er að þeir uppfyllast oft um miðbik ævinnar og ekki í lok hennar. Hvað á eiginlega að gera á dögunum eftir að þeir uppfyllast, mánuðunum, árunum og áratugunum? Þetta er flækja sem Darren Clarke er enn að fást við næstum 6 mánuðum eftir að hann uppfyllti draum, sem allir eru sam- mála um að hafi verið örlög hans.En hann Lesa meira










