Hr. Golf Ítalíu – Mario Camicia – er látinn 70 ára að aldri
Mario Camicia, sem margir álitu vera Hr. Golf Ítalíu, lést eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Hann varð 70 ára. Camicia var mótsstjóri Opna ítalska í mörg ár til ársins 1992 og hann var einnig fyrsti golfíþróttafréttamaður Ítalíu í sjónvarpi og gaf frá sér álit sitt á leiknum til ítalskra áhorfenda í 20 ár og jók þar með ekki aðeins skilning á leiknum í heimalandi sínu heldur einnig áhuga. Hann kom fyrst fram í hlutverki golffréttamanns árið 1981 í Mediaset og vann síðan á kapalsjónvarpinu Telepiu, sem nú heitir Sky Italia. Ástríða hans á golfinu kom fram í gegnum fréttaflutning hans og tilfinningaþrungin orð hans þegar Costantino Rocca setti niður Lesa meira
Viðtalið: Maurizio Veloccia frá Ítalíu – Spilar golf við Dino Zoff, fyrrum landsliðsmarkvörð Ítala í fótbolta
Maurizio Veloccia, golfkennari og flugmaður frá Róm á Ítalíu var einn þeirra sem vann til verðlauna á Cadiz Cup 2011 golfmótinu, sem fram fór 5. maí 2011, í Arcos Gardens, á Spáni. Hann m.a. þrætti fyrir að besta lasagne í heimi væri búið til af þeirri, sem viðtalið tók og væri aðeins fáanlegt á Íslandi – mama hans í Róm byggi til besta lasagne-ið… en fannst hins vegar spennandi að uppskriftin ætti rætur að rekja til Rómar… Hugsanlega að um sömu uppskrift sé að ræða? Hér fer viðtalið við Mauricio: Nafn: Maurizio Veloccia. Fæðingardagur: Ég kom í heiminn 4 dögum á eftir þér, í Róm, Valentínusardaginn 14. febrúar 1968. Hverjar eru Lesa meira
Rory McIlroy:„Ég ætla ekki að spila golf um fertugt“
Rory McIlroy er nú búinn að jafna sig af Dengue hitasóttinni, þreytunni og þróttleysinu, sem var að hrjá hann í Dubai fyrr í mánuðinum. Hann er nú á Írlandi og var í viðtali við Independent. Aðspurður hvort hann ætlaði að verja vinningsfé sínu í kaup á flugvél vegna tíðra ferða hans um heiminn og vegna þess að það væri hastæðara vegna þess langa ferils, sem framundan væri hjá honum sagði hann að ekkert slíkt væri á dagskrá hjá sér. Fljúga þyrfti þær 300 stundir á ári til þess að þær borguðu sig. Þegar blaðamenn héldu áfram og sögðu Pádraig Harrington hafa keypt sér flugvél sagði Rory: „Ég ætla ekki að Lesa meira
Viðtalið: Guðmundur og Guðjón – Golfklúbbur Öndverðarness
Viðtalið í dag er við tvo í stjórn Golfklúbbs Öndverðarness (GÖ), þá Guðmund, formann og Guðjón, ritara klúbbsins. Hér fer viðtalið: Fullt nöfn: Guðjón Sigurður Snæbjörnsson og Guðmundur Ebenezer Hallsteinsson. Klúbbur: GÖ. Hvar og hvenær fæddust þið? Guðjón: Ég fæddist á Raufarhöfn 27. apríl 1955. Guðmundur: Ég er fæddur á Akranesi, 3. janúar 1956. Hvar eruð þið aldir upp? Guðjón: Ég ólst upp á Raufarhöfn til 17 ára aldurs, fluttist síðan til Reykjavíkur og svo í Hafnarfjörðinn. Guðmundur: Ég var á Akranesi til 7 ára aldurs og ólst svo upp í Laugarnesinu; Bugðulæk nánar tiltekið. Hverjar eru fjölskylduaðstæður – er einhver í fjölskyldunni, sem spilar golf? Guðjón: Ég er Lesa meira
Þrjár góðar golfbækur
Nú þegar það allraheilagasta af jólahátíðinni er liðið og flestir sitja heima með stafla af golfbolum, sem hefðu ekki passað fyrir 6 jólahátíðum síðan, nýjum ipodum og Guð má vita hverju öðru, sem þið hafið fengið í jólagjöf, þá er ekki úr vegi að benda á góða grein Ron Whitten í Golf Digest, þar sem hann stingur upp á enn 3 golfbókum, sem bæta má við restina af jólabókarstaflanum. Þetta eru golfbækur, sem allar fjalla um golfvallararkítektur, fyrir þau ykkar sem hafið áhuga á slíkum bókum og reyndar líka þá sem halda að þeir hafi það ekki. Þær eru nefnilega alveg ótrúlega skemmtilegar margar hverjar og þessar líta út fyrir Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Unnar Geir Einarsson – 27. desember 2011
Afmæliskylfingur dagsins er Unnar Geir Einarsson, GS, en hann er fæddur í Keflavík 27. desember 1994 og er því 17 ára í dag. Unnar Geir byrjaði í golfi fyrir 5-6 árum en er þegar komin niður í 9,9 í forgjöf. Það var pabbi hans, sem kynnti hann fyrir golfi. Meginmarkmið Unnars Geirs í lífinu er að verða góður golfari og hamingjusamur í framtíðinni. Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Unnar Geir með því að smella HÉR: Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Connie Chillemi, 27. desember 1957 (54 ára); Steven Glen Jones, 27. desember 1958 (53 Lesa meira
Phil Mickelson – kylfingur, sem vert er að fylgjast með árið 2012
Phil Mickelson er uppáhaldskylfingur margra… ekki bara hér á landi heldur um allan heim. Sagt er að enginn sé spámaður í eiginn heimalandi en það virðist ekki eiga við um Phil, hann og Bones, kylfuberinn hans, eru gífurlega vinsælir í Bandaríkjunum. Á heimasíðu PGA Tour er greinarröð þar sem sagt er frá „100 kylfingum, sem vert er að fylgjast með árið 2012.“ Auðvitað er Phil einn af kylfingunum, sem þar eru taldir…. það er alltaf gaman að fylgjast með honum. Phil, sem er örvhentur og oft uppnefndur „Lefty“ fæddist 16. júní 1970 og verður því 42 ára á næsta ári. Næsta ár, 2012, kemur til með að verða Phil eftirminnilegt Lesa meira
Viðtalið: Krysztina Batta tvöfaldur meistari áhugamanna í golfi frá Ungverjalandi
Crysztina Batta frá Ungverjalandi sigraði Cadiz Cup 2011, sem fram fór á Arcos Gardens golfvellinum 5. maí í vor. Hún er tvöfaldur ungverskur meistari í golfi. Hún byrjaði að skrifa um golf á golfvefsíðu en er nú eigandi ferðskrifstofu, sem sérhæfir sig í golfferðum bæði til Ungverjalands og frá Ungverjalandi. Hún er jafngóð og yndisleg og hún er falleg… og svo er hún góð í golfi að auki. Hér fer viðtalið við Crysztinu: Nafn: Crysztina Batta. Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Búdapest 31. október 1968. Hvar ertu alin upp? Ég er fædd og alin upp í Ungverjalandi en hef búið á mörgum stöðum m.a. á Ítalíu, í Kanada og í Lesa meira
Myndasería: Cadiz Cup 2011 í Arcos Gardens á Spáni
Nú í ár bauð Ferðamálaráð Cadiz á Spáni, golfferðaskrifstofum, sem bjóða upp á golfferðir á vellina í kringum Cadiz, sem og golffréttamönnum á Cadiz Cup. Þetta mót, Cadiz Cup hefir verið haldið óslitið allar götur frá árinu 2005. Cadiz Cup er boðsmót, og að þessu sinni var það haldið á Arcos Gardens golfvellinum, 5. maí 2011. Ferðaskrifstofan Heimsferðir og Golf1.is voru fulltrúar Íslands, þ.e. var boðin þátttaka í 3 daga ferð, þar sem m.a. var boðið upp á Flamenco dans, sem er stór þáttur í menningu Cadiz og reyndar alls Andaluciuhéraðs, sem og spil á nokkrum helstu golfvöllum Cadiz alla 3 dagana. Hápunktur ferðarinnar var síðan Cadiz Cup boðsmótið, sem Lesa meira








