Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2012 | 16:00

Viðtalið: Julien Bacqués, frá Frakklandi

Í blálok síðasta árs var hér á Golf 1 sagt frá Cádiz Cup, sem fram fór í Arcos Gardens, 5. maí 2011.  Mótið er boðsmót, þar sem boðið er golffréttamönnum og fulltrúum golfferðaskrifstofa. Af hálfu Íslands var Heimsferðum og Golf1.is boðið að þessu sinni. Golf 1 tók viðtöl við 7 þátttakendur í Cadiz Cup, sem komu víðsvegar að frá Evrópu. Tvö þessara viðtala hafa þegar birtst, þ.e. við Krizstinu Batta, tvöfaldan meistara áhugamanna í Ungverjalandi og Mauricio Veloccia, golfkennara á Ítalíu. Hér birtist 3. viðtalið við Frakkann Julien Bacqués, sem búsettur er í Austurríki. Fullt nafn: Julien Bacqués. Hvar fæddistu?  Í Nantes, Frakklandi, 14. nóvember 1976. Hvar ertu alinn upp?  Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Tinna Ósk Óskarsdóttir – 4. janúar 2012

Það er Tinna Ósk Óskarsdóttir, GO,  sem er afmæliskylfingur dagsins, en hún er fædd 4. janúar 1984. Fjölskylda Tinnu Ósk er þekktari í golfinu en frá þurfi að segja, foreldrar hennar báðir í golfi, sem og systur hennar tvær. Tinna Ósk byrjaði að spila golf 6 ára í Blommenslyst Golf Club í Óðinsvéum, meðan hún bjó enn með fjölskyldu sinni í Danmörku. Tinna Ósk hefir á golfferli sínum m.a. orðið  klúbbmeistari GKG, 2002 og í 2. sæti með kvennasveit GO, í sveitakeppni kvenna, árið 2007 og þá er aðeins fátt eitt talið.  Eins hefir hún verið golffararstjóri  hjá Golfleikjaskólanum, sem er í eigu móður hennar, í ferð til Himmerland Golf Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2012 | 12:00

Spá í 18 liðum fyrir árið 2012

Golffréttamiðlar keppast nú við að koma með misgóðar golfspár fyrir árið 2012. Hvert af eftirfarandi atriðum er líklegast til að rætast? 1. Arnold Palmer verður næsti forseti Bandaríkjanna. Kylfingar standa saman gegn árásum Mitt Romney á Obama forseta og kjósa Arnold Palmer, sem 3. forsetaframbjóðandann. 26 milljónir kylfinga mæta á kjörstað til þess að kjósa  Arnie, sem vinnur kosningarnar í bráðabana í beinni á besta sýningartíma sjónvarpsstöðva í Dade County, Miami. Það kemur í ljós að allt sem kjósendur vildu var maður, sem gæti horfst í augu við þau, tekið í höndina á þeim og sagt: „Það verður allt í lagi.“ 2. Caroline dömpar Rory… og tekur saman við Justin Timberlake. Caroline Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2012 | 09:00

Nýi humarskeljagolfboltinn

Við erum alltaf að leita að leiðum til þess að fara betur með umhverfið okkar. Hefðbundnir golfboltar eru ekki sérlega umhverfisvænir, sbr. eftirfarandi þýðingu greinarhöfundar á frétt CNN, sem birtist á iGolf, 8. nóvember 2010: „Golfboltaúrgangur er að verða að umhverfislegu áhyggjuefni á þessari plánetu. Þannig segir í frétt frá CNN: „Rannsóknarteymi danska golfsambandsins komst að því að það tekur golfbolta milli 100 til 1000 ár að brotna niður með náttúrulegum hætti. Þetta eru hræðilegar staðreyndir þegar haft er í huga að talið er að um 300 milljónir golfbolta týnist eða sé hent í Bandaríkjunum einum saman… á hverju ári. Umfang vandans hlaut staðfestingu nú nýlega í Skotlandi þar sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2012 | 20:00

Viðtalið: Dagur Ebenezersson, GK.

Annar sigurvegara í Gamlársdagspúttmóti Golfklúbbsins Keilis, Dagur Ebenenezersson, GK, situr fyrir svörum í dag. Þátttakendur í mótinu voru um 120 og luku 113 keppni.  Dagur varð í 1.-2. sæti, með 27 pútt, en var fljótur að leiðrétta þá er þetta ritar, sagðist hafa orðið í 2. sæti, því seinni 9 hefði hann spilað á 15 púttum, en Hinrik A. Hansen, GK, sem var á sama púttafjölda, vann, fór seinni 9, á 12 púttum. Dagur sagðist hafa byrjað á 10. holu og þrípúttað strax á 11. holu þegar hann missti 40 cm pútt. Hann einpúttaði hins vegar eftir það 10 sinnum á hringnum góða og sagði það skelfilegt að missa púttið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: María Guðrún Nolan – 3. janúar 2012

Íslenskir afmæliskylfingar dagsins eru eftirfarandi: María Gudrún Nolan, GL. F. 3. janúar 1979 Kolbrún Stefánsdóttir Jóhannes William Grétarsson F. 3. janúar 1979 Simmi Vill Golf 1 óskar afmæliskylfingunum innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Francis Clement Newton, f. 3. janúar 1874 – d, 3. ágúst 1946;  Fred Haas, 3. janúar 1916-d. 26. janúar 2004;  Ashley Chinner, f. 3. janúar 1963 (49 ára); Trudi Jeffrey, 3. janúar 1970 (42 ára), Richard Finch 3. janúar 1974 (38 ára). Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2012 | 11:00

Hvaða 9 kylfingar fóru fram úr björtustu vonum á árinu 2011?

Nú þegar áramótin eru að baki er enn verið að gera upp golfárið 2011. M.a. veltir einn golffréttamiðillinn því fyrir sér hverjir hafi sprottið fram á sjónarsviðið og spilað fram úr björtustu vonum á árinu 2011. Það er nefnilega nokkuð merkilegt hversu margir góðir nýliðar og nýjir kylfingar, sem fram að því hafði ekki mikið borið á komu fram árið 2011. Hér eru 5 þessara kylfinga: Nr. 1 Keegan Bradley Nýliðinn Keegan Bradley sigraði Byron Nelson mótið í maí 2011, sem veitti honum þátttökurétt á PGA Championship. Lokaholurnar á lokahring hans á PGA Championship eru skráðar skýrt í sögubækur, því eftir að hafa fengið þrefaldan skolla á 15. braut náði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2012 | 09:00

PGA: Hyundai Tournament of Champions hefst n.k. föstudag á Hawaii

Nú á Þrettándanum n.k., 6. janúar 2012 hefst á Plantation Course í Kapalua, á Maui eyju á Hawaii, Hyundai Tournament of Champions – þar sem allir sigurvegarar PGA Tour á keppnistímabilinu 2011 keppa sín á milli. Þetta er opnunarmót PGA Tour keppnistímabilið 2012 og augljóslega það mót sem erfiðast er að hljóta þátttökurétt í.  Nokkrum fyrrum sigurvegurum á þessu móti er einnig boðið og í ár voru 39, sem áttu þátttökurétt á mótinu – 28 eru sigurvegarar á PGA Tour s.l. ár og af þeim eru 12, sem eru að spila á Tournament of Champions í fyrsta sinn. Alls eru 32 sem taka þátt. Þetta er í 14. sinn sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2012 | 08:30

Jim Huber golffréttaskýrandi hjá Turner Sports látinn – 67 ára

Jim Huber, golffréttaskýrandi hjá Turner Sports, lést í gær, mánudaginn 2. janúar 2012,  í Atlanta, Georgíu. Hann var 67 ára. Kapalsjónvarpsfréttastöðin sagði að ekkert hefði verið gefið upp um dánarorsök. Í fréttatilkynningu frá  Turner Broadcasting System, Inc., sagði að Jim Huber hefði unnið til Emmy verðlauna fyrir ritgerðir sínar og hefði komið í fullt starf hjá  Turner Sports árið 2000 og verið golffréttaskýrandi, sem lýsti mörgu móti atvinnukylfinga, sem og NBA leikjum. Jim Huber vann áður sem þulur og fréttamaður hjá CNN/Sports Illustrated og þáttastjórnandi í Pro Golf Weekly hjá CNN og Sporting Life with Jim Huber. David Levy, forseti sölu, dreifingar og íþróttamála hjá Turner sagði í fréttatilkynningu að alls Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2012 | 07:00

GHG skrifar undir samning við Hveragerðisbæ – viðurkenningar afhentar íþróttamönnum í Hveragerði

Föstudaginn 30 desember var athöfn í Listasafni Árnesinga þar sem afhentar voru viðurkenningar frá Hveragerðisbæ fyrir góðan árangur á ýmsum sviðum íþrótta. Gunnar Marel Einarsson og Þuríður Gísladóttir fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur í golfi. Úr hópi þeirra sem fengu viðurkenningar voru valdir íþróttamenn Hveragerðis. Fyrir valinu urðu Íris Ásgeirsdóttir, körfuknattleikskona og Úlfar Jón Andrésson, íshokkímaður. Nýr þjónustusamningur milli GHG og Hveragerðisbæjar var undirritaður við afhendingu viðurkenninga til íþróttamanna í Hveragerði. Samningurinn gildir út árið 2014 og tekur til þjónustu sem GHG veitir Hveragerðisbæ á sviði barna og unglingastarfs ásamt þjónustu við knattspyrnuvelli og fleira. Það voru Erlingur Arthúrsson formaður GHG og Helga Kristjánsdóttir staðgengill bæjarstjóra sem skrifuðu undir samninginn. Heimild: Lesa meira