Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2012 | 21:00

Viðtalið: Stefán Teitur Þórðarson, GL.

Fyrsta viðtal ársins 2012 er við Stefán Teit Þórðarson, 13 ára, í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Stefán Teitur spilaði á Arionbankamótaröð unglinga  s.l. sumar, 2011, með góðum árangri og komst m.a. í fréttirnar þegar hann fór holu í höggi á 16. braut á Hamarsvelli í Borgarnesi á einu mótanna á mótaröðinni.  Þá var hann 12 ára. Stefán Teitur er ekki bara í golfi, heldur æfir líka fótbolta með ÍA. Ráðið, sem Stefán Teitur gefur öðrum kylfingum í lok viðtalsins er eftirminnilegt og gott; reyndar var allt viðtalið við Stefán Teit gott,  því hér er greinilega á ferðinni flottur framtíðaríþróttamaður. Hér fer viðtalið við Stefán Teit: Fullt nafn: Stefán Teitur Þórðarson. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2012 | 15:00

GK: Myndasería og úrslit frá Gamlársdagspúttmóti Golfklúbbsins Keilis – Hinrik og Dagur sigruðu!

Það er löngu orðin hefð hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði að halda Gamlársdagspúttmót.  Þátttaka að þessu sinni var með besta móti, um 120 voru skráðir og 117 reyndu mér sér og notuðu síðasta dag ársins til þess að æfa púttstrokuna og 113 luku keppni. Helstu úrslit urðu þau að Hinrik A. Hansen, GK og Dagur Ebenezersson, GK, sigruðu, þeir deildu 1. sætinu, voru báðir voru á glæsiskori 27 púttum, sem þýðir einpútt á 9 holum.   Efst Keiliskvenna varð Bryndís María Ragnarsdóttir, á glæsilegum 29 púttum!  Langflestir, eða tæp 18,7% þátttakenda voru á 34 púttum. Á sama tíma fór fram  púttþraut til styrktar unglingunum í Keili. Sigurvegarar þar urðu: Ingvi Rúnar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2012 | 14:59

GK: Gamlársdagspúttmót Golfklúbbsins Keilis – 31. desember 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingar gamlársdags 2011, nýársdags 2012 og 2. janúar 2012

Eftirfarandi kylfingar áttu afmæli gamlársdag 31. desember 2011: Dagný Davíðsdóttir f. 31. desember 1964 Kristinn Nikulásson f. 31. desember 1954 Ólafur Árnason f. 31. desember 1962 Valtþór Óla 50 ára stórafmæli! Auk þeirra áttu eftirfarandi erlendir kylfingar afmæli:  Michael Francis Bonallack, 31. desember 1934 (77 ára);  David Ogrin, 31. desember 1957 (54 ára).     Eftirfarandi kylfingar áttu afmæli nýársdag, 1. janúar 2012: Gestur Már Sigurðsson f. 1. janúar 1963. Auk Gests áttu eftirfarandi erlendir kylfingar afmæli:  Mike Sullivan, 1. janúar 1955 (56 ára);  Paul Lawrie, 1. janúar 1969 (42 ára).     Eftirfarandi kylfingar eiga afmæli í dag, 2. janúar 2012: Börkur Gunnarsson f. 2. janúar 1970. Marólína Erlendsdóttir og Björgvin Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2012 | 09:00

Drottningin heiðrar Darren Clarke og Rory McIlroy

Norður-írsku golfstjörnurnar Darren Clarke og Rory McIlroy voru meðal þeirra íþróttastjarna, sem voru heiðraðir af Elizabethu II á nýárslista hennar, en báðir unnu þeir risamótstitla á árinu 2011 – Darren vann Opna breska og Rory Opna bandaríska. Darren, 43 ára, hlaut heiðurstitilinn „Officer of the Order of the British Empire“ fyrir sigurinn, eftir 20 ára bið sína og tilraunir við að vinna, á Opna breska, sem að þessu sinni fór fram á Royal St. George’s. „Þetta er mikill heiður og frábær endir á frábæru ári. Ég og fjölskylda mín erum mjög stolt,“ sagði Darren. „Þessi sigurstund breytti öllu í lífinu og á margan hátt hafa fætur mínar ekki snert jörðina Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2012 | 08:00

Lexi og Stacy Lewis hafa staðfest þátttöku í Australian Masters

Lexi Thompson, sem nú nýverið sigraði á Omega Dubai Ladies Masters og risamótstitilhafinn bandaríski, Stacy Lewis, hafa staðfest þátttöku sína í Gold Coast RACV Australian Ladies Masters. sem er fyrsta mót á Evrópumótaröð kvenna (ens.: Ladies European Tour) og mun fara fram í Royal Pines Resort í Queensland, dagana 2.-5. febrúar 2012. Framkvæmdastjóri mótsins Bob Tuohy var að vonum ánægður þegar hann gat staðfest þátttöku beggja stjarnanna: „Meðal þátttakenda verður enn á ný breitt svið hæfileikafóks ekki aðeins stjörnur dagsins í dag, s.s. Lewis heldur einnig framtíðarinnar. Mótið okkar hefir sannað sig að vera frábær uppeldisstöð (stjarna) – Stacy átti frábært ár 2011 og Lexi, nú, við höfum í langan tíma vitað Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2012 | 07:00

GG: Páll Erlingsson endurkjörinn formaður á aðalfundi 29. desember s.l.

Á heimasíðu Golfklúbbs Grindavíkur er eftirfarandi frétt af aðalfundi klúbbsins, sem fram fór 29. desember s.l.: „Ágætis rekstrarár er að baki hjá Golfklúbbi Grindavíkur og nemur hagnaður ársins um 2 milljónum króna. Rekstrartekjur ársins voru um 28 milljónir en rekstrargjöld um 26 milljónir sem er hækkun um 4 milljónir frá árinu 2010.  Aðalfundur klúbbsins fóru fram á Salthúsinu 29. des síðastliðinn og var hann vel sóttur. Sjá skýrslu gjaldkera fyrir árið 2011 Um 209 meðlimir eru nú í GG og hefur þeim fækkað frá í fyrra.  En það má finna í því að skráningarkerfi sem GG notast við var yfirfarið og þeir sem ekki greiddu ársgjöld voru teknir af félagalistanum Klúbburinn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2012 | 06:00

Aðalfundur Golfklúbbs Ásatúns verður haldinn 21. janúar n.k.

Í tilkynningu á heimasíðu Golfklúbbs Ásatúns segir: „Aðalfundur Golfklúbbs Ásatúns verður haldinn laugardaginn 21, janúar 2012,  kl.14.00 í golfskálanum Snússu, Ásatúni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundastörf.“

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 31. 2011 | 11:50

Gleðilegt nýtt ár 2012!

Golf 1 óskar lesendum sínum svo og öllum kylfingum nær og fjær gleðilegs nýs árs 2012,  með mörgum gleðistundum í golfi á komandi ári. Á því stutta 3 mánaða skeiði, þessum 98 dögum sem Golf 1.is hefir verið starfandi hafa birtst 850 fréttir, þ.á.m. 30 myndaseríur og hátt  á 4. tug viðtala við innlenda sem erlenda kylfinga og mikill fjöldi sem bíður birtingar. Kylfingar innanlands, sem og vaxandi fjöldi erlendra kylfinga hafa tekið þessum yngsta golffréttavef Íslands framúrskarandi vel og umferð um vefinn ekkert nema aukist frá því hann hóf starfsemi 25. september 2011. Bryddað hefir verið upp á þeirri nýbreytni að birta kynningarefni um íslenskt golf og annað golftengt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 30. 2011 | 22:30

Viðtalið: Þórdís Geirs, GK.

Þórdísi Geirsdóttur þarf ekki að kynna fyrir nokkrum kylfingi á Íslandi – ef einhver á skilið titilinn golfdrottning Íslands þá er það Þórdís. Hún á að baki fjölda Íslandsmeistaratitla, m.a. á þessu ári þegar hún varð Íslandsmeistari 35+ í 8. sinn, nú í Öndverðarnesinu, oftar en nokkur önnur. Eins hefir henni gengið framúrskarandi á ýmsum opnum mótum m.a. Opna Icelandair Golfers mótinu, sem fram fór 14. maí í ár á Hvaleyrinni. Þátttakendur voru um 170 og vann Þórdís höggleikinn á 71 höggi, og var efst hvort heldur var meðal karl-eða kvenkylfinga. Hún varð í 1. sæti í höggleik af konunum í  Opna Heimsferðamóti hjá GHG og GOS, 5. júní 2011 Lesa meira