Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 12:00

Evróputúrinn: Thomas Aiken hefur leik 2012 með látum – er á 64 höggum á Africa Open

Það eru Suður-Afríkumenn sem raða sér í efstu sætin á 1. degi Africa Open, sem hófst á East London golfvellinum í dag. Thomas Aiken frá Suður-Afríku leiðir þegar þetta er ritað (kl. 12:00) kom inn á 64 höggum, þ.e. er á -9 undir pari eftir fyrsta hring, en East London golfvöllurinn er par-73.  Aiken fékk tvo glæsierni á hringnum á 3. og 11. par-5 brautunum og þar að auki 5 fugla. Í 2. sæti eru landar Aiken, þeir Retief Goosen og Jaco Ahlers aðeins höggi á eftir, þ.e. 65 höggum og -8 undir pari. Margir eiga eftir að koma inn þegar þetta er ritað m.a. heimamaðurinn Richard Sterne, sem á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 10:15

Ragnar Már og Særós Eva hlutu viðkenningar við útnefningu á Íþróttafólki Kópavogs

Ragnar Már Garðarsson, GKG og Særós Eva Óskarsdóttir, GKG hlutu viðurkenningar í flokki 13-16 ára við hátíðlega athöfn á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum í Kópavogi síðdegis í gær. Bæði eru í afreksmannahóp GSÍ 2012. Á íþróttahátíðinni var jafnframt lýst yfir kjöri á íþróttakarli og konu Kópavogs fyrir árið 2011.  Að þessu sinni voru það Kári Steinn Karlsson, frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki, og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir,  fimleikakona úr Gerplu, sem voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2011. Fengu þau að launum farandbikar og eignarbikar jafnframt því sem Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, afhenti þeim hvoru um sig 150 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni frá bæjarstjórn Kópavogs Voru Kári Steinn og Kristjana Sæunn voru Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 09:00

GKG: Særós Eva sigraði Jólapúttmót barna- og unglinga á 27 glæsilegum púttum!

Það var Særós Eva Óskarsdóttir, GKG, sem sigraði í jólapúttmóti barna- og unglinga hjá GKG á 27 púttum, sem þýðir 9 einpútt á hring! Særós Eva var nýlega valin í afreksmannahóp GSÍ 2012. Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, skrifaði eftirfarandi á heimasíðu GKG um Jólapúttmótið: (Þann 28. desember 2011) fór fram Jólapúttmót barna og unglinga í GKG. Þátttakan var góð en alls mættu 27 strákar og 7 stelpur og allir voru í jólaskapi. Leiknir voru tveir hringir og taldi betri hringurinn í keppninni. Úrslitin má sjá hér fyrir neðan en einnig er hægt að skoða nokkrar myndir með því að fara í myndasafnið á gkg.is. Í verðlaun voru Titleist golfhúfur og fá verðlaunahafar þær afhentar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 08:00

Evróputúrinn: Africa Open hefst í dag – Richard Sterne snýr aftur eftir langa fjarveru

Í dag hefst 1. mót ársins 2012 á Evrópumótaröðinni – Africa Open. Það fer fram á East London golfvellinum í Suður-Afríku. Meðal keppenda eftir langa fjarveru er fimmfaldur sigurvegari á Evróputúrnum Richard Sterne, frá Suður-Afríku. Hann snýr aftur til keppni eftir þrálát bakmeiðsli sem hafa verið að há honum frá því í febrúar á s.l. ári. Þrátt fyrir að hafa verið fjarverandi og þrátt fyrir æfingaskort getur hinn þrítugi Sterne huggað sig við að hann er með frábæran feril heima við þar sem hann hefir sigrað 3 af 5 titlum sínum á Evrópumótaröðinni þ.á.m. vann hann 2 mót í röð 2009 –  Alfred Dunhill Championship og South African Open Championship. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 07:00

Sophie Gustafsson hlýtur GWAA Ben Hogan verðlaunin

LPGA stjarnan sænska Sophie Gustafson var í gær útnefnd til Ben Hogan verðlaunanna, sem veitt eru af bandarískum golffréttariturum (GWAA = Golf Writers Association of America). Sophie er búin að spila í 13 ár á LPGA og hefir á þeim tíma 5 sinnum sigrað á mótaröðinni og átt stjörnuleiki með liði Evrópu í Solheim Cup.  Hún hefir alltaf haldið sig frá því að halda sigurtölur og hefir jafnvel forðast viðtöl vegna mikils stama, sem hefir háð henni allan hennar feril. „Þetta er bömmer sérstaklega á Solheim Cup vegna þess að allar hinar eru í viðtölum eða á blaðamannafundum, en enginn hefir lengur áhuga biðja mig um viðtal,“ sagði Sophie í viðtali Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 06:00

GS: Inniæfingaraðstaða opnar að Hafnargötu 2, mánudaginn 9. janúar n.k. – púttmót verða á mánudögum í vetur

Á heimasíðu GS er eftirfarandi fréttatilkynning: Inni æfingaraðstaða Golfklúbbs Suðurnesja í HF húsinu að Hafnargötu 2 opnar mánudaginn 9.janúar næstkomandi. Þar geta meðlimir Golfklúbbs Suðurnesja nýtt sér þessa inni aðstöðu án endurgjalds til að slá í net og til að æfa pútt á góðum 18 holu púttvelli. Auk þess er stefnt að því að taka í notkun golfhermi, sem GS félagar geta fengið aðgang að gegn sanngjörnu gjaldi. Viðgerð stendur yfir á herminum en tilkynning mun berast þegar þeirri viðgerð er lokið. Opnunartíma í Inni æfingaraðstöðu GS í HF húsinu að Hafnargötu 2 í vetur verður eftirfarandi; Mánudagar         19:00 – 21:00      (Púttmót) Þriðjudagar         19:00 – 21:00 Miðvikudagar    19:00 – 21:00 Fimtudagar         Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2012 | 20:20

GA: Víðir Steinar sigraði í Gamlársdagspúttmóti Golfklúbbs Akureyrar

Á Gamlársdag fór fram púttmót hjá GA á vegum Unglingaráðs. Það var ungur GA-ingur, sem fór með sigur af hólmi á glæsilegum 27 púttum. Úrslit urðu annars eftirfarandi: Unglingaflokkur:  Víðir  Steinar Tómasson 27 högg Ævarr Freyr Birgisson 30 högg Stefán Einar Sigmundsson 31 högg  Karlaflokkur:  Anton Ingi Þorsteinsson 29 högg Sigurður Samúelsson 31 högg Sigmundur Ófeigsson formaður 31 högg  Kvennaflokkur:  Anna Einarsdóttir 29 högg Unnur Hallsdóttir 33 högg Auður Dúadóttir 33 högg Halla Sif Svavarsdóttir 33 högg Bryndís Friðriksdóttir 33 högg  Víðir Steinar var með flesta ása 9 stk  Margir voru jafnir – þegar búið var að fara yfir kortin, seinni hringur taldi fyrst og svo talið afturábak og þá fengust Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2012 | 20:10

GHÓ: Jólamarkaður á Skeljavíkurvelli

Það er ekki á hverjum degi, sem fréttir berast frá Golfklúbbi Hólmavíkur. Reyndar er þetta fyrsta frétt, sem undirrituð skrifar um eitthvað tengt golfi á Hólmavík, á tveggja ára ferli sínum sem golffréttaritari. Málið er að nú fer fram jólamarkaður í golfskála Hólmavíkur og ættu allir, sem þar eiga leið um að líta við – enda margt eigulegra muna, sem þar fást svo sem sjá má með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2012 | 19:45

GSS: Aldís Ósk og Hlynur Freyr hlutu viðurkenningar – Jóhann Örn var tilnefndur sem „Íþróttamaður Skagafjarðar“

Á heimasíðu GSS er eftirfarandi frétt:  „Við athöfn (þann 29. desember 2011) var tilkynnt hver hlyti titilinn íþróttamaður Skagafjarðar 2011. Meðal þeirra sem tilnefndir voru var Jóhann Örn Bjarkason kylfingur. Hann átti gott golfár og hefur aldrei verið betri. Íþróttamaður ársins í Skagafirði var valinn Elvar Einarsson, hestamaður á Syðra-Skörðugili og er hann vel að titlinum kominn. Á samkomunni fengu einnig  ungir og efnilegir íþróttamenn viðurkenningu og voru þau Hlynur Freyr Einarsson og Aldís Ósk Unnarsdóttir tilnefnd af hálfu Golfklúbbsins.“ Heimild: GSS

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2012 | 18:00

Tinna Jóhannsdóttir, GK, spilar um sæti á Evrópumótaröð kvenna – Q-school LET byrjar á sunnudaginn

Tinna Jóhannsdóttir, GK, er nú á Spáni þar sem hún mun hefja leik á La Manga, sunnudaginn n.k., 8. janúar 2012, og keppa um eitt sæta á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðar kvenna (ens.: Ladies European Tour, skammst. LET). Aðeins einum íslenskum kvenkyfingi hefir tekist að komast á Evrópumótaröðina hingað til, þ.e. klúbbfélaga Tinnu, Ólöfu Maríu Jónsdóttur, GK. Með Tinnu í ferð er Björgvin Sigurbergsson, þjálfari hennar. Tinna hefir verið við nám í San Francisco í Kaliforníu, þar sem hún spilaði golf með golfliði skóla síns. Hún gerðist atvinnumaður nú í haust og hóf ferilinn á The Cactus Tour í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta skipti sem Tinna reynir að komast á Evrópumótaröðina. Lesa meira