Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 06:00

GS: Inniæfingaraðstaða opnar að Hafnargötu 2, mánudaginn 9. janúar n.k. – púttmót verða á mánudögum í vetur

Á heimasíðu GS er eftirfarandi fréttatilkynning:
Inni æfingaraðstaða Golfklúbbs Suðurnesja í HF húsinu að Hafnargötu 2 opnar mánudaginn 9.janúar næstkomandi. Þar geta meðlimir Golfklúbbs Suðurnesja nýtt sér þessa inni aðstöðu án endurgjalds til að slá í net og til að æfa pútt á góðum 18 holu púttvelli. Auk þess er stefnt að því að taka í notkun golfhermi, sem GS félagar geta fengið aðgang að gegn sanngjörnu gjaldi. Viðgerð stendur yfir á herminum en tilkynning mun berast þegar þeirri viðgerð er lokið.

Opnunartíma í Inni æfingaraðstöðu GS í HF húsinu að Hafnargötu 2 í vetur verður eftirfarandi;

Mánudagar         19:00 – 21:00      (Púttmót)

Þriðjudagar         19:00 – 21:00
Miðvikudagar    19:00 – 21:00
Fimtudagar         19:00 – 21:00

Púttmótaröð GS hefst einnig 9. Janúar.

Púttmótaröð GS 2012 hefst mánudaginn 9.janúar næstkomandi kl. 19:00.  Mótin eru aðeins fyrir félagsmenn GS. Hvetjum félagsmenn til að mæta og æfa púttin í æfingaaðstöður GS að Hafnargötu 2. Spilað verður í tveimur flokkum hvert mánudagskvöld;
Úrvalsflokkur: fgj. 10 og minna.
Gæðaflokkur: fgj. 11 og hærra

Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í hvorum flokki í hverju móti ásamt verðlaunum fyrir besta skor hjá 14 ára og yngri unglingum.Verðlaun verða einnig fyrir heildarkeppni sem spilað verður fram að páskum Mótsgjald er 500 kr. en kr 300.- fyrir börn og unglinga. Félagar ættu því þannig að geta mætt í pútt á mánudagskvöldum í vetur hjá GS. Heitt verður á könnunni.

Mótin eru til styrktar barna og unglingastarfi klúbbsins.