Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 10:15

Ragnar Már og Særós Eva hlutu viðkenningar við útnefningu á Íþróttafólki Kópavogs

Ragnar Már Garðarsson, GKG og Særós Eva Óskarsdóttir, GKG hlutu viðurkenningar í flokki 13-16 ára við hátíðlega athöfn á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum í Kópavogi síðdegis í gær. Bæði eru í afreksmannahóp GSÍ 2012.

Ragnar Már Garðarsson, GKG ásamt móður sinni Ragnheiði Sigurðardóttur, GKG á Íslandsmótinu í höggleik unglinga í Grafarholtinu 2011.Mynd: Golf 1

Særós Eva, GKG, (t.v.) á Íslandsmóti í höggleik unglinga í Grafarholtinu 2011. Mynd: Golf 1.

Á íþróttahátíðinni var jafnframt lýst yfir kjöri á íþróttakarli og konu Kópavogs fyrir árið 2011.  Að þessu sinni voru það Kári Steinn Karlsson, frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki, og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir,  fimleikakona úr Gerplu, sem voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2011. Fengu þau að launum farandbikar og eignarbikar jafnframt því sem Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, afhenti þeim hvoru um sig 150 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni frá bæjarstjórn Kópavogs Voru Kári Steinn og Kristjana Sæunn voru valin úr hópi 38 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu íþróttaráðs Kópavogs eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum.

Aðrir, sem hlutu viðurkenningar voru:

Flokkur 17 ára og eldri:

Fanndís Friðriksdóttir knattspyrna, Hanna Rún Ólafsdóttir dans,  Jón Margeir Sverrisson sund, Kári Steinn Karlsson frjálsar íþróttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir hópfimleikar, Ólafur Bjarki Ragnarsson handknattleikur, Róbert Kristmannsson áhaldafimleikar, Sigurður Þór  Sigurðsson dans, Stefanía Valdimarsdóttir frjálsar íþróttir og Svana Katla Þorsteinsdóttir karate.

Flokkur 13 til 16 ára:

Aníta Rún Árnadóttir körfuknattleikur, Arna Ýr Jónsdóttir frjálsar íþróttir,  Athena Neve Leex sund,  Berglind Gígja Jónsdóttir blak, Ella Dís Thorarensen knattspyrna, Glódís Perla Viggósdóttir knattspyrna, Herborg Lúðvíksdóttir dans, Katrín Kristinsdóttir karate, Kristín Hermannsdóttir hestaíþróttir, Malín Agla Kristjánsdóttir dans, Sandra Erlingsdóttir handknattleikur,  Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir áhaldafimleikar,  Adrían Héðinn Gonzales borðtennis,  Brynjar Karl Ævarsson körfuknattleikur, Davíð Freyr Guðjónsson karate,  Eyþór Pétur Aðalsteinsson siglingar, Guðlaugur Agnar Valsson dans, Ingimar Logi Guðlaugsson sund, Kristófer Haukur Hauksson dans, Lúðvík Már Matthíasson blak, Orri Sigurður Ómarsson knattspyrna, Páll Olgeir Þorsteinsson knattspyrna,  Sigurður Egill Karlsson handknattleikur, Sindri Hrafn Guðmundsson frjálsar íþróttir, Valgarð Reinhardsson áhaldafimleikar og Vladimir Ristic tennis.

Flokkur ársins 2011 var kjörinn meistaraflokkur Gerplu í hópfimleikum kvenna en liðið varð Norðurlandameistari í hópfimleikum kvenna auk þess að verða bæði Íslands- og bikarmeistari.

Einnig voru á hátíðinni afhentar viðurkenningar fyrir árangur á alþjóðlegum vettvangi.

Heimild: www.kopavogur.is