Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2012 | 14:00

Steve Stricker tilbúinn í slaginn á Hyundai Tournament of Champions

Steve Stricker lýsti því yfir rétt fyrir fyrsta mótið á keppnistímabili PGA, Hyundai Tournament of Champions að hann væri tilbúinn í slaginn eftir að hafa átt við hálsmeiðsli sem valdið hafa kraftleysi í vinstri handlegg. Stricker Steve Stricker,  sem er nr. 6 á heimslistanum er sá kylfingur sem er efstur á listanum af þeim sem þátt taka í mótinu. Hann sagðist hafa fengið kortisón sprautu (2. sprautuna sem hann fær)  rétt fyrir jóladag. Hann hefir líka farið í 6 skipti í sérstaka meðferð í desember, sem m.a. fólst í nuddi og hann segir að nú líði sér „býsna vel.” Jafnvel þó Stricker hefji ekki styrkleikaæfingar þangað til hann fer í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Herdís Björg Rafnsdóttir – 6. janúar 2012

Það er Herdís Björg Rafnsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Herdís Björg er fædd 6. janúar 1962 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Herdís Björg er í Golfklúbbi Reykjavíkur og tók s.l. sumar þátt í nokkrum opnum golfmótum með góðum árangri m.a. Styrktarmóti Soroptimista á Nesvelli þ. 25. ágúst 2011, þar sem hún varð í verðlaunasæti (4. sæti) af fjölmörgum konum sem þátt tóku. Herdís Björg er verkfræðingur að mennt frá University of Washington. Hún er gift Þorsteini G. Gunnarssyni og eiga þau 2 syni. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með stórafmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Cary Middlecoff, 6. janúar 1921; Nancy Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2012 | 11:00

GL: Kjörinu á Íþróttamanni Akraness frestað um óákveðinn tíma – Valdís Þóra tilnefnd af hálfu GL

Í dag, Þrettándanum átti að fara fram kjör á Íþróttamanni Akraness, en undafarin 4 ár hefir kylfingurinn, Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hlotið heiðurinn af því að vera kjörin.  Í ár er hún enn tilefnd af hálfu GL – en nú hefir kjörinu verið frestað um óákveðinn tíma.   Eftirtaldir 16 aðir íþróttamenn voru tilnefndir af sínum félögum í kjörið að þessu sinni:  1. Badmintonmaður ársins: Egill Guðvarður Guðlaugsson 2. Fimleikamaður ársins: Ástrós Líf Rúnarsdóttir 3. Hestaíþróttamaður ársins: Jakob S. Sigurðsson 4. Hnefaleikamaður ársins: Arnór Már Grímsson 5. Íþróttamaður Þjóts: Anton Kristjánsson 6. Íþróttamaður Umf. Skipaskaga: Jófríður Ísdís Skaftadóttir 7. Karatemaður ársins: Aðalheiður Rósa Harðardóttir 8. Keilumaður ársins: Kristján Arne Þórðarson 9. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2012 | 10:00

Hver er kylfingurinn: Nancy Lopez? Fyrri hluti

Einn afmæliskylfinga dagsins er Nancy Lopez. Hún er með allra frægustu kvenkylfingum. T.a.m. þegar greinarhöfundur var að byrja í golfi fyrir 7 árum síðan, hélt GR enn Nancy Lopez kvennamót. Í dag á þessi hetja kvennagolfsins merkisafmæli, er 55 ára og því verður hún kynnt hér sérstaklega: Nancy Lopez fæddist 6. janúar 1957 í Torrance, Kaliforníu og er yngsta konan (30 ára) til að hljóta inngöngu í frægðarhöll LPGA (Ladies Professional Golf Association). Nancy sigraði í 48 skipti á LPGA-mótaröðinni, þ.á.m. á 3 risamótum kvenna (í öll skipti á LPGA Championship árin 1978, 1985, and 1989) og vann sér inn meir en $ 5 milljónir (u.þ.b. 635 milljónir íslenskra króna) Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2012 | 08:00

Lucas Glover slasaðist á brettaborði á Hawaii

Bandaríski kylfingurinn Lucas Glover hefir ekki verið mikið í golffjölmiðlum að undanförnu… ja nema ef vera skyldi vegna þróunar á skegginu hans, sem hann hefir verið að safna, s.s. sést á myndinni hér að ofan. Hann er þó einn þeirra sem hafa þátttökurétt á fyrsta móti PGA mótaraðarinnar 2012, Hyundai Tournament of Champions, sem hefst á Kapalua á Hawaii í dag.  Þátttökurétt í mótinu hafa einungis þeir, sem unnið hafa mót á PGA Tour, árinu áður, en Lucas tókst einmitt að landa einum sigri á Wells Fargo Championship í Quail Hollow, 2011. Alls hefir Lucas Glover sigrað 3 sinnum á PGA Tour, þ.á.m. Opna bandaríska risamótið 2009. Nú er hins vegar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2012 | 00:30

Ólafía Þórunn fékk ekkert stig hjá íþrótta- fréttamönnum og Ólafur Björn varð í 10. sæti

Nú fyrr í kvöld, þ.e. 5. janúar 2012, tilkynntu Samtök íþróttafréttamanna um val þeirra á Íþróttamanni ársins 2011 á Grand Hótel. Íþróttamaður ársins 2011 í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna er Heiðar Helguson, knattspyrnumaður. Alls gáfu Samtökin, 21 fréttamaður, 31 íþróttamanni stig. Nokkra athygli vekur að í 6 efstu sætunum eru 4 knattspyrnumenn og hefir eflaust sitt að segja að vefurinn fótbolti.net hefir núorðið atkvæðisrétt meðal Samtaka íþróttafréttamanna. Þess skal getið hér að Golf1.is á ekki aðild að Samtökunum. Heiðar hlaut 229 stig, Ólafur Loftsson, NK 65 stig og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR ekkert stig. Vekur þetta val fréttamannanna nokkra furðu í ljósi hins sögulega afreks Ólafs að verða fyrstur íslenskra kylfinga Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 21:30

Evróputúrinn: Thomas Aiken efstur eftir 1. dag á Africa Open

Thomas Aiken frá Suður-Afríku tók forystuna á fyrsta móti Evrópumótaraðarinnar snemma í dag og lét hana aldrei af hendi.  Hann spilaði á 64 höggum, fékk 2 erni og 5 fugla og -9 undir pari – skollafrír draumur staðreynd á par-73 East London golfvellinum. Thomas, sem er 28 ára vann fyrsta Evrópumótstitil sinn á síðasta ári á Open de España og varð 9 sinnum meðal 10 efstu í mótum, sem hann tók þátt í 2011. „Ég bjóst ekki við þessu eftir að hafa ekki snert kylfu í 2 vikur,“ sagði Thomas Aiken. „Þetta var frábær morgun í morgun, ég fór snemma út og aðstæður til að skora voru góðar. Ég var þarna Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 21:00

Johnny Miller telur að Tiger Woods muni sigra a.m.k. 4 sinnum, 2012

Tiger Woods spilaði vel í lok árs 2011, þ.á.m. lauk hann leik með tveimur fuglum og sigraði Chevron og nú veltir golfheimurinn fyrir sér mögluleika hans að hann spili aftur eins og í gamladaga. Einn er sá maður sem aldrei er spar á skoðanir sínar, en það er  golffréttamaðurinn Johnny Miller á NBC sjónvarpsstöðinni, sem þekktur er fyrir mjög svo opinskáa gagnrýni sína, oft á tíðum, á kylfinga.  Hann telur að Tiger muni eiga frábært ár með a.m.k. 4 sigrum. (Innskot:  Johnny Miller á sjálfur 32 sigra að baki á atvinnumannsferli sínum þ.á.m. 25 á PGA Tour, þ.á.m. 2 á risamótum og varð 3 sinnum í 2. sæti á Masters). Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 16:00

GK: Kaupið almanak til styrktar æfingaferðar unglinga GK á Costa Ballena!

Unglingarnir í Keili eru að fara í æfingaferð á Costa Ballena á Spáni. Fjáröflun fyrir ferðina hefir staðið yfir í vetur og stendur enn. Nú getið þið styrkt unglingana í Keili með því að kaupa almanak.  Þess mætti geta að Golf1 verður með kynningu á Costa Ballena, sem er einn af 21 golfvöllum og golfstöðum á Costa de la Luz í Cádiz, sem kynntir verða næstu daga og hefst kynning golfvallanna með viðtali við Hörð Arnarson og kynningu á Arcos Gardens golfvellinum á laugardaginn n.k.  En það er um að gera að kaupa almanak og styrkja unglingana í Keili! Á heimasíðu Golfklúbbsins Keilis er eftirfarandi frétt um fjáröflunina: „Unglingarnir í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2012 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Katrín Dögg Hilmarsdóttir – 5. janúar 2012

Það er Katrín Dögg Hilmarsdóttir, GKJ, sem er afmæliskylfingur dagsins en hún fæddist 5. janúar 1982 og á því 30 ára stórafmæli í dag!  Afrek Katrínar á sviði golfsins eru mörg. Hér verður aðeins tæpt á nokkrum. Katrín Dögg varð m.a. Íslandsmeistari í sveitakeppni kvenna með sveit GKJ 1998 (sjá mynd hér að neðan frá því en Katrín Dögg er 2. f.h.) og 2001. Síðargreinda árið, þ.e. 2001 var Katrín Dögg kjörin íþróttamaður Mosfellsbæjar. Eins var Katrín Dögg  í sveit GKJ, sem varð í 3. sæti í sveitakeppni GSÍ 2009 eftir leik um 3. sætið við GO. Árið 2007 var Katrín Dögg ráðin markaðs-og kynningarstjóri GSÍ. Hún er með mastersgráðu frá Lesa meira