Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 13:30

PGA: Nick Watney komst hjá 2 högga víti þegar sannaðist að kylfusveinn hans snerti ekki flöt

Nick Watney komst hjá 2 högga víti eftir að mótsstjórn dæmdi svo að kylfusveinn hans, Chad Reynolds, hefði ekki verið að kanna yfirborð flatarinnar á 1. hring Hyundai Tournament of Champions, sem hófst á föstudaginn. Upptökur sýndu að hendur Reynolds yfir grasflötinni en þær snertu yfirborðið aldrei. Reynolds stóð fyrir aftan Watney, sem var að lesa púttlínuna. Watney Hefðu hendur Chad Reynolds snert flötina, hefði það verið brot á reglu 16-1d. „Við horfðum á upptökuna og maður sá að hönd hans var rétt ofn við flötina,“ sagði Watney. „Þannig að ekkert víti var dæmt.“ Chad Reynolds sagði líka að hann hefði ekki snert flötina. „Það var enginn ásetningur til staðar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 13:00

GK: Sunnudagspúttmótaröðin vinsæla hefst í dag – Tími: kl. 14-18!

Sunnudagspúttmótaröð Hraunkots hefst (í dag) 8.janúar 2012. (Púttmótaröðin) hefst eftir klukkustund þ.e. kl. 14:00 og leikið er til kl. 18:00.  Leiknir eru 2 hringir og telur betra skor. Síðan telja 6 bestu hringirnir af 10. Verðlaun eru boltakort í Hraunkoti fyrir 4 efstu sætin í hverju móti . Góa- Linda gefur síðan glæsilegar gjafakörfur fyrir þá sem ná bestum árangri í heildar keppninni ( 6 bestu hringir telja). Þátttökugjald einungis 500 krónur. Heimild: www.keilir.is

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Nikki Garrett – 8. janúar 2012

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski kylfingurinn Nicole Maree (Nikki) Garrett, en hún fæddist 8. janúar 1984 og er því 28 ára í dag. Nikki gerðist atvinnumaður í golfi seint á árinu 2005 og var komin á Evrópumótaröðina (ens. Ladies European Tour, skammst. LET) árið 2006. Hún vann ekki mót á nýliðaári sínu en var 4 sinnum meðal 10 efstu í mótum LET og lauk 1. ári sínu í 12. sæti á peningalista mótaraðainnar það ár, þ.e. með  €99,445 í verðlaunfé. Hún hlaut,Ryder Cup Wales Rookie of the Year, þ.e. var valin nýliði ársins 2006. Árið 2007 sigraði hún tvisvar sinnum í röð á LET þ.e. á Tenerife Ladies Open and the Open de España Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 11:50

Q-school LET: Tinna hefur leik á La Manga

Tinna Jóhannsdóttir, GK, er einmitt á þessum mínútum að hefja leik í Q-school Evrópumótaraðar kvenna (ens.: Ladies European Tour, skammst.: LET) á La Manga á Spáni. Hún á rástíma kl. 12:50 að staðartíma (11:50 að íslenskum tíma). Golf 1 sendir Tinnu velgegnisstrauma suður á bóginn og vonar að allt gangi upp hjá henni og hún verði 2. íslenski kvenkylfingurinn til að spila á LET!

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 08:45

PGA: Steve Stricker efstur þegar Hyundai TOC er hálfnað – Spilaði á 63 höggum!

Steve Stricker sýndi öllum og sannaði af hverju hann er efstur Bandaríkjamanna á heimslistanum, en hann er nú í 6. sæti heimslistans. Jafnframt sýndi hann öllum að stirðleikinn sem hann hefir verið að fást við í hálsvöðvum og kraftleysi í handlegg, virðist ekki há honum. Hann var bara 1 höggi frá því að setja nýtt vallarmet á Plantation golfvellinum í Kapalua á Hawaii í nótt. Golfleikur hans var það næsta við fullkomnun. Steve Stricker kom í hús á 63 glæsihöggum!  Hann spilaði skollafrítt, fékk 8 fugla og örn á par-5 15. brautina. Stricker leiðir nú á mótinu, er á samtals -15 undir pari, 131 höggi (69 62) og á 5 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 08:00

Bill Clinton, Phil Mickelson og Greg Norman spila á Humana Challenge, 16. janúar n.k.

Þann 16. janúar n.k. hefst Humana Challenge golfmótið  (fyrrum Bob Hope Classic) og stendur yfir til 22. janúar. Spilað er á La Quinta  Country Club í Kaliforníu á Palmer og Nicklaus völlunum á PGA West.  Spilað er um $1.008 milljóna vinningstékk, þann stærsta í sögu mótsins og nýjan  Bob Hope Memorial verðlaunagrip.Það er Bill Clinton Foundation, sem er helsti styrktaraðili mótsins og Bill er einnig stærsta stjarnan, sem þátt tekur á mótinu a.m.k. Pro-Am hlutanum. Nú á Þrettándanum s.l. föstudag tilkynntu tvær stórstjörnur að þær myndu einnig taka þátt, þ.e. Greg Norman og Phil Mickelson.  Um þátttöku sína í mótinu sagði Greg Norman m.a.: „Eftir samtal við Clinton forseta og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 07:00

GO: Skellið ykkur á grunnnámskeið í golfi hjá Magnúsi og Phill í MPgolf!

Nú þegar vetur konungur ríkir og ekkert er hægt að spila golf utan dyra er um að gera að skella sér til golfkennara og láta hann/þá fara yfir sveifluna innandyra. MPgolf, þeir Magnús Birgisson og Phill Hunter bjóða nú upp á grunngolfnámskeið. Hér eru nánari upplýsingar um námskeiðið: Staðsetning: Inniaðstaða GO í Kauptúni í Garðabæ ( hlýtt og notalegt). Markhópur: Allir sem hafa áhuga á að bæta grunnatriðin í sveiflunni. Hópur 1.    KL: 12.00-13.00 Þriðjudaginn  17. janúar. Fimmtudaginn 19. janúar. Þriðjudaginn  24. janúar. Fimmtudaginn 26. janúar. Hópur 2.    KL: 18.00-19.00 Þriðjudaginn  17. janúar. Fimmtudaginn 19. janúar. Þriðjudaginn  24. janúar. Fimmtudaginn 26. janúar. Kennarar: Magnús Birgisson og Phill Hunter. Verð: Kr. 9500 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2012 | 21:30

Viðtalið: Hörður Hinrik Arnarson, GK.

Viðtalið í kvöld er við Hörð Hinrik Arnarson, GK, framkvæmdastjóra golfdeildar Heimsferða og golfkennara með meiru. Hér á næstu dögum munu birtast kynningar á golfvöllum Cádiz héraðs á Spáni, sem mörgum Íslendingum er að góðu kunn, en margir hafa stigið sín fyrstu spor í golfíþróttinni á par-3 vellinum á Costa Ballena undir leiðsögn Harðar og prófað aðra frábæra golfvelli í nágrenninu í kjölfarið s.s. Arcos Gardens, Sherry Golf, Montecastillo og Novo St. Petri. Hér fer viðtalið við Hörð Hinrik: Fullt nafn: Hörður Hinrik Arnarson. Klúbbur: GK. Hvar og hvenær fæddistu?  Ég fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði 9. apríl 1967. Hvar ertu alinn upp?  Ég er alinn upp í Hafnarfirði. Hverjar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2012 | 16:15

Evróputúrinn: Van der Walt og Oosthuizen leiða fyrir lokahring Africa Open

Það eru 4 heimamenn í efstu 5 sætum á Africa Open. Fyrsta sætinu deila þeir Tjaart Van der Walt og sá sem leiddi í gær, sigurvegari Opna breska 2010, Louis Oosthuizen. Báðir eru þeir samtals á -21 undir pari, þ.e. 198 höggum; Tjaart (69 64 65) og Louis á (69 62 67). Í 3. sæti er Retief Goosen, 1 höggi á eftir forystunni. Í 4. sæti er Bretinn Danny Willet tveimur höggum á eftir forystunni og í 5. sæti er Richard Sterne, sem hefir þurft að kljást við gigt og er að koma aftur til keppni nú eftir nokkurt hlé.  Hann er búinn að spila á samtals -17 undir pari Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2012 | 14:00

Verðlaunahafi GWAA Ben Hogan Award – Sophie Gustafson – svarar 18 spurningum

Sophie Gustafsson hlaut GWAA Ben Hogan verðlaunin sem veit eru þeim kylfingi, sem haldið hefir áfram að spila golf þrátt fyrir fötlun eða sjúkdóm Sophie stamar og segist hafa forðast að halda ræður og gefa viðtöl. Eftir að hún ljóstraði upp um ástæðuna fyrir því er hún í hverju viðtalinu á fætur öðru. Hér svarar hún 18 spurningum blaðafulltrúa LPGA: 1. Segðu okkur frá einhverju sem fólk veit ekki um þig? Ég æfði listdans á skautum þangað til ég var 13 ára.  2. Hvað myndi þig langa til að gera ef þú værir ekki atvinnukylfingur? Mig myndi langa til að vera ljósmyndari. 3. Ef þú gætir skipt um líf við Lesa meira