Afmæliskylfingur dagsins: Camilo Villegas – 7. janúar 2012
Afmæliskylfingur dagsins er kólombíski kylfingurinn, sem er í uppáhaldi hjá svo mörgum: Camilo Villegas. Hann fæddist 7. janúar 1982 og á því 30 stórafmæli í dag! Golf 1 hefir nýlega verið með kynningu á afmæliskylfingnum Camilo, sem sjá má með því að smella hér: CAMILO VILLEGAS NR. 1 CAMILO VILLEGAS NR. 2 CAMILO VILLEGAS NR. 3 Reyndar er þetta mikil stjörnufæðingardagur í golfinu því margir aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag. Þ.á.m. eru: Gígja Kristín Guðbjörnsdóttir, GHD, 7. janúar 1941 (71 árs) ; Kristján Hreinsson, NK, 7. janúar 1957 (55 ára); Emanuele Canonica, 7. janúar 1971 (41 árs); Daniel Vancsik, 7. janúar 1977 (35 ára); Natalie Gulbis, 7. Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir golfsumarið 2011 – Styrktarmót Þroskahjálpar hjá GS –
Þann 7. ágúst s.l. sumar 2011, fór fram styrktarmót Þroskahjálpar hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Góð þátttaka var um 130 skráðu sig í mótið og luku 124 keppni. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni og veitt voru verðlaun fyrir 4 efstu sætin í kvenna- og karlaflokki og jafnframt dregið úr fjölda glæsilegra skorkortavinninga. Sjá má myndaseríu frá mótinu með því að smella hér: STYRKTARMÓT ÞROSKAHJÁLPAR HJÁ GS – 7. ÁGÚST 2011 Helstu úrslit urðu þessi: Karlar: Hola F9 S9 Alls H1 CSA leiðréttingar fyrir Stableford keppnir 0 1 Sigurður H Haraldsson GS 20 F 21 21 42 42 42 2 Björn Reynald Ingólfsson GK 21 F 20 21 41 41 41 3 Halldór X Halldórsson Lesa meira
Styrktarmót Þroskahjálpar hjá GS – 7. ágúst 2011
Hver er kylfingurinn: Nancy Lopez? Seinni hluti
Ferill Nancy Lopez eftir 1990 Meiðsl og fjölskylduábyrgð takmörkuðu þátttöku Nancy Lopez í mótum tíunda áratugsins, þ.e. eftir 1990, en það ár fæddist 3. barn hennar (dóttir) þó hún hafi sigrað í 6 mótum á 10. áratugnum, síðast 1997, þá 40 ára að aldri. Meðal athyglisverðasta árangurs hennar árið 1997 var þó þegar hún varð í 2. sæti á US Open, en hún varð fyrsta konan til að spila hvern hinna 4 keppnishringina á skori sem var 60 og eitthvað, þ.e. undir 70). Engu að síður tapaði hún fyrir Alison Nicholas. Nancy fékk inngöngu í frægðargolfhöll Georgiu 1998 og frægðaríþróttahöll Georgia, árið 2002. Nancy var í liði Bandaríkjanna, sem keppti Lesa meira
PGA: Jonathan Byrd leiðir eftir 1. dag á Hyundai TOC á Hawaii – Myndskeið: samantekt 1. dags og högg dagsins hjá Keegan Bradley
Fyrsta mót keppnistímabilsins 2012 á PGA Tour, Hyundai Tournament of Champions (ens. skammst: TOC) hófst í gær í Kapalua, Hawaii. Á mótinu keppa aðeins 28 sigurvegarar á PGA túrnum frá því í fyrra, reyndar aðeins 27 eftir að Lucas Glover slasaðist, þ.e. tognaði á hné eftir fall af brettaborði, en hann dró sig úr mótinu. Eftir 1. dag er það Bandaríkjamaðurinn, Jonathan Byrd, sem vermir 1. sætið, en hann á titil að verja frá því í fyrra. Hann spilaði á -6 undir pari, 67 höggum, en Plantation golfvöllurinn, sem spilað er á, í Kapalua er par-73. Jonathan fékk 8 fugla á hringnum og 2 skolla á 9. og 11. brautunum, Lesa meira
Paul Casey verður frá keppni í 2 mánuði vegna meiðsla í snjóbrettaslysi
Eftir að hafa átt við meiðsli að stríða í rifbeinum og tá síðastliðin 2 keppnistímabil, þá hlakkaði Englendingnum Paul Casey loks til þess að hefja keppni frískur 2012. En af keppni verður víst ekkert á næstunni, þar sem Casey sneri sig úr axlarlið í snjóbrettaslysi. Skv. frétt AP mun Casey missa af keppni fyrstu 2 mánuði ársins 2012. Þ.a.l. verður Casey ekki með í keppnum Evrópumótaraðarinnar í Miðausturlöndum – þ.á.m. Abu Dhabi Golf Championship þar sem hann er tvöfaldur meistari. Einnig er vafi um hvort hann taki þátt í World Golf Championships-Accenture Match Play Championship – þar sem Casey hefir tvívegis orðið í 2. sæti á s.l. 3 árum. Mótið fer fram Lesa meira
Birgir Leifur, GKG; Bjarki, GB; Guðrún Brá, GK og Sunna, GR hljóta styrki frá ÍSÍ
Á golf.is er eftirfarandi fréttatilkynning: „Nú fyrir stuttu kynnti stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ úthlutun sína til sérsambanda. Úthlutað var rúmlega 87 milljónum króna og komu kr.3.960.000 í hlut GSÍ. Það er umtalsverð aukning frá fyrra ári og má þakka það góðum árangri kylfinga á liðnu ári auk þess sem GSÍ hefur lagt fram ítarlega Afreksstefnu til næstu 10 ára sem kynnt var á síðasta golfþingi. Birgir Leifur Hafþórsson GKG er settur á B-styrk ásamt 11 öðrum íþróttamönnum og er ánægjulegt að sjá að Afrekssjóður metur árangur hans með þeim hætti, að hann sé meðal fremstu íþróttamanna landsins. Eftirfarandi er úthlutun til GSÍ úr afrekssjóði: Til landsliðsverkefna, EM og HM kr.2.300.000 Birgir Lesa meira
Viðtalið: Steinunn Sæmundsdóttir, GR.
Viðtalið í kvöld er við Steinunni Sæmundsdóttur, GR, tvöfaldan Íslandsmeistara í flokki 50+ árið 2011 og árið 2010, 9 faldan klúbbmeistara kvenna í GR og 12 faldan Íslandsmeistara á skíðum. Steinunn var fyrst kvenna valin íþróttamaður Reykjavíkur árið 1980 og er varla neinn kveníþróttamaður Íslands betur að þeim heiðri kominn. Steinunn byrjaði aftur að spila golf sumarið 2010 eftir mikil veikindi í kjölfar slyss og strax það sumar vann Steinunn tvívegis á Íslandsmóti. Hér fer viðtalið við Steinunni Sæmundsdóttur: Fullt nafn: Steinunn Sæmundsdóttir. Klúbbur: GR. Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík, 28. nóvember 1960. Hvar ertu alin upp? Ég er alin upp í Hvassaleitinu. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar Lesa meira
GO: Skellið ykkur á grunnnámskeið í golfi hjá Magnúsi og Phill í MPgolf!
Nú þegar vetur konungur ríkir og ekkert er hægt að spila golf utan dyra er um að gera að skella sér til golfkennara og láta hann/þá fara yfir sveifluna innandyra. MPgolf, þeir Magnús Birgisson og Phill Hunter bjóða nú upp á grunngolfnámskeið. Hér eru nánari upplýsingar um námskeiðið: Staðsetning: Inniaðstaða GO í Kauptúni í Garðabæ ( hlýtt og notalegt). Markhópur: Allir sem hafa áhuga á að bæta grunnatriðin í sveiflunni. Hópur 1. KL: 12.00-13.00 Þriðjudaginn 17. janúar. Fimmtudaginn 19. janúar. Þriðjudaginn 24. janúar. Fimmtudaginn 26. janúar. Hópur 2. KL: 18.00-19.00 Þriðjudaginn 17. janúar. Fimmtudaginn 19. janúar. Þriðjudaginn 24. janúar. Fimmtudaginn 26. janúar. Kennarar: Magnús Birgisson og Phill Hunter. Verð: Kr. 9500 Lesa meira
Evróputúrinn: Oosthuizen efstur eftir þegar Africa Open er hálfnað
Það eru 5 Suður-Afríkumenn, sem raða sér í efstu tvö sætin á Africa Open. Efstur trónir sá sem á titil að verja frá því í fyrra Louis Oosthuizen á samtals -15 undir pari, 131 höggi (69 62). Louis Oosthuizen átti frábæran hring í dag; kom í hús á -11 undir pari; þ.e. 62 höggum, spilaði skollafrítt, fékk 1 örn og 9 fugla. Öðru sætinu deila 4 heimamenn: Tjart Van der Walt, Retief Goosen, Jaco Ahlers og Thomas Aiken. Til þess að sjá stöðuna þegar Africa Open er hálfnað smellið HÉR:









