Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2012 | 06:00

PGA: Stricker í 1. sæti með 5 högga forystu eftir 3. hring á Hyundai TOC á Hawaii

Steve Stricker heldur forystu sinni á þessu 1. móti PGA Tour á 2012 keppnistímabilinu,  Hyundai Tournament of Champions. Stricker er samtals búinn að spila á -19 undir pari, 200 höggum (68 63 69). Hann á 5 högg á næsta mann fyrir lokahringinn, sem spilaður verður í nótt, en heldur óvenjulegt er að mótum á PGA Tour ljúki á mánudögum. Í 2. sæti er Jonathan Byrd á -14 undir pari, 205 höggum (67 71 67) ásamt Webb Simpson (68 68 69) og Skotanum Martin Laird (68 70 71). Fimmta sætinu deila síðan Bryce Molder og Kevin Na, báðir á -11 undir pari, þ.e. 208 höggum samtals, hvor – þ.e. 8 höggum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 21:30

Golfvellir í Cádiz á Spáni: Arcos Gardens Golf Club & Country Estate (nr. 1 af 3)

Hér fer fyrsta kynningargrein um þennan mikla uppáhalds- og draumastað íslenskra kylfinga, en margir hafa verið svo heppnir að fá að spila þar. Óhætt er að segja að golfleikur á golfvelli Arcos sé ógleymanleg upplifun og hafa ferðir á völlinn verið vinsælar. T.a.m. er Arcos uppáhalds golfstaður Ragnhildar Sigurðardóttur, GR. Arcos Gardens Golf Club & Country er tiltölulega nýr hann opnaði árið 2006.  Golfklúbburinn og hótelið er staðstett í 300 ára gömlum ólífutrjáarlundi, rétt hjá hvíta bænum Arcos de la Frontiera, en þaðan er stutt í sögulega staði á Spáni s.s. Jerez, þar sem m.a. er hægt að fara í Sherry-smökkun á einni af fjölmörgum sherry-verksmiðjum bæjarins. Eins er stutt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 21:29

Arcos Gardens: Fairway Gardens

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 21:29

Arcos Gardens: Villur

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 21:25

Arcos Gardens: Cortijo

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 20:00

Q-school LET: Tinna í góðum málum – deilir 17. sæti eftir 1. dag

Tinna Jóhannsdóttir, GK, deilir 17. sæti eftir 1. dag á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna, með 4 öðrum, þ.á.m. Kelly Tidy frá Englandi og Carlotu Ciganda frá Spáni.  Kelly sigraði m.a. eitt elsta kvennagolfmótið Ladies British Open Amateur 2010 (hefir verið haldið frá 1893) og var í liði Breta&Íra áCurtis Cup 2010. Carlota er Sun Devil þ.e. spilaði með liði Arizona í bandaríska háskólagolfinu og sigraði m.a. European Championships 2004 og 2008 og hefir átt sæti í spænska golflandsliðinu. Tinna er virkilega að keppa við rjómann í evrópsku kvennagolfi og hún stendur sig vel! Tinna  spilaði 1. daginn á Suður-velli La Manga og var á +1 yfir pari, en Suðurvöllurinn er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 17:30

Golfvellir í Cádiz á Spáni

Hér í kvöld verður fyrsti golfvöllurinn af 21 í Cádiz héraði á Spáni kynntur í máli og myndum. Þeir vellir sem kynntir verða til sögunnar eru eftirfarandi 1. Arcos Gardens Golf & Country Estate. 2. Costa Ballena Ocean Golf Club. 3. San Roque gamli völlurinn. 4. San Roque nýi völlurinn. 5. Club de Golf Valderrama. 6. Real Club de Golf Sotogrande. 7. Almenara. 8. Club de Golf La Cañada. 9. Alcaidesa. 10. Montenmedio Golf & Country Club. 11. Club de Golf Campano. 12. Club de Golf Novo Sancti Petri. 13. Golf Meliá Sancti Petri. 14. Club de Golf Vista Hermosa. 15. Golf El Puerto (de Santa Maria). 16. Montecastillo Barcelló Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 16:30

Q-school LET: Tinna T-26 eftir 9 holur

Tinna byrjaði illa á La Manga fékk 2 skolla en spilaði allt á pari eftir það. Hún spilaði samt ekkert verr en margar aðrar – en einhver byrjunarskrekkur og taugaspenningur virðist vera meðal keppenda – margar að fá skolla eða skramba á fyrstu holunum. Eftir 9 spilaðar holur er Tinna jöfn öðrum í 26. sæti.  Helst vildi maður flauta leikinn af hér (ef það væri hægt) því þær sem eru í 35 efstu sætum komast áfram – og skv. þessu væri Tinna komin áfram í lokaúrtökumót LET. Til þess að fylgjast með göngu mála á La Manga smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 16:15

Evróputúrinn: Louis Oosthuizen sigraði á Afríca Open

Það var Louis Oosthuizen, sem varði titil sinn frá því í fyrra, varð í 1. sæti og hirti verðlaunatékka upp á €158.500 (u.þ.b.  25 milljónir ísl. kr. )  Oosthuizen lauk leik á -27 undir pari þ.e. 265 höggum (69 62 67 67). Í 2. sæti varð landi Louis, Tjaart Van der Walt á -25 undir pari 267 höggum (69 64 65 69) – sem hljóta að vera vonbrigði því hann leiddi ásamt Oosthuizen í gær. Í 3. sæti varð Retief Goosen, á -24 undir pari og í 4. sæti Jaco Van Zyl á -23 undir pari – heimamenn í 4  efstu sætunum. Það er ekki fyrr en í 5. sæti Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2012 | 14:30

Nýr draumaáfangastaður kylfinga: Marokkó – Monty að hanna golfvöll í Marokkó

Á CNN er skemmtilegur þáttur sem heitir „Living Golf” og á O´Donoghue, fréttamaður CNN hrós skilið fyrir frábæra þætti. Í gær var þátturinn sérlega áhugaverður, en fjallað var um uppgang golfferðamennsku í Marokkó.   Þar sagði m.a. að Colin Montgomerie, betur þekktur sem Ryder Cup fyrirliðinn Monty  sé einn þeirra, sem er að hanna golfvöll í Marokkó. Til þess að sjá myndskeið af allri frétt CNN smellið hér: LIVING GOLF CNN – MAROKKÓ Hér er lausleg þýðing á frétt CNN um golf í Marokkó: O’DONOGHUE: Sól rís yfir Atlas fjallgarðinum í Marokkó, landi, þar sem golfferðamönnum fjölgar ört. Áætlað er að fjöldi golfvalla muni aukast um 13 á næstu 3 Lesa meira