Golfvellir í Cádiz á Spáni: Arcos Gardens Golf Club & Country Estate (nr. 2 af 3)
Það fyrsta sem maður tekur eftir þegar komið er að Arcos Gardens er hversu fallegt og vandað allt er. Allt frá anddyrinu, borðstofunnar, veitingastaðanna, garðanna og síðan þegar komið er í villu eða hús, allt eftir hvar gist er… hversu hreint allt er. Golfvöllurinn er dásemd og um hann verður nánar fjallað á morgun. En rétt eins og allt utandyra er dekur hvers kylfings, frá pro-shopinu, æfingasvæðinu og æðislegum vellinum, þá ekki skotaskuld að dunda sér við aðra hluti á Arcos, sé einhver með í hópnum sem svo ólíklega vill til að ekki spili golf. Arcos Gardens er staður dekurdýranna. Þar er t.a.m. hægt að fara í hárgreiðslu, í ræktina, Lesa meira
Arcos Gardens: Dekur
Landsliðþjálfarinn skiptir afrekshópunum upp
Á vef GSÍ er eftirfarandi fréttatilkynning: „Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari hefur að undanförnum vikum verið að skipuleggja æfingardagskrá fyrir afrekshópa GSÍ. Úlfar hefur skipt hópnum upp í samræmi við stöðu og markmið hvers kylfings og nefnast hóparnir Team Iceland, A hópur og B hópur. Team Iceland skipa þeir kylfingar sem eru af fullri alvöru í atvinnumennsku, eða hafa það markmið innan tíðar að stíga skrefið úr áhugamennsku yfir í atvinnumennsku; og hafa sýnt frábæran árangur í mótum hérlendis og erlendis. A hópur er skipaður þeim kylfingum sem sýndu hvað bestan árangur í sínum flokkum á seinasta tímabili. B hópi verða kylfingar í afrekshópi GSÍ sem ekki skipa Team Iceland eða A Lesa meira
Íþróttakarl og kona Garðarbæjar valin – Ingunn og Guðjón Henning hlutu viðurkenningar – Óðinn Þór og Gunnhildur þóttu efnilegust
Í gær, 8. janúar fór fram við hátíðlega athöfn í sal FG val á íþróttakarli og konu Garðarbæjar. Það er Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar sem stendur að valinu. Meðal þeirra, sem tilnefndir voru til að hljóta sæmdarheitið Íþróttakarl og kona Garðarbæjar voru Guðjón Henning Hilmarsson, GKG og Ingunn Gunnarsdóttir, GKG. Aðrir íþróttamenn, sem tilnefndir voru, voru 6 karlar og 5 konur: Íþróttakarl Garðabæjar 2011 Emil Gunnarsson – blak Garðar Jóhannsson – knattspyrna Gunnar Kolbeinn Kristinsson – hnefaleikar Marvin Valdimarsson – körfuknattleikur Svavar Már Ólafsson – handknattleikur Örn Valdimarsson – skotfimi Íþróttakona Garðabæjar 2011 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir – knattspyrna Hanna Guðrún Stefánsdóttir – handknattleikur Hanna Rún Óladóttir – dans Hjördís Lesa meira
Viðtalið: Sasha Zelenka frá Austurríki.
Cádiz Cup, fór fram í Arcos Gardens, 5. maí 2011, en 2. grein af 3 um Arcos Gardens birtist hér á Golf 1.is í kvöld Cádiz Cup er boðsmót, þar sem boðið er golffréttamönnum og fulltrúum golfferðaskrifstofa. Af hálfu Íslands var Heimsferðum og Golf1.is boðið að þessu sinni. Golf 1 tók viðtöl við 7 þátttakendur í Cadiz Cup, sem komu víðsvegar að frá Evrópu. Þrjú þessara viðtala hafa þegar birtst, þ.e. við Krizstinu Batta, tvöfaldan meistara áhugamanna í Ungverjalandi og Mauricio Veloccia, golfkennara á Ítalíu og Julien Bacqués, Frakka búsettann í Austurríki, sem vinnur hjá golfferðaskrifstofunni TGR-Golfreisen í Vín. Hér birtist 4. viðtalið við Austurríkismanninn Sasha Zelenka, einn sigurvegara á Lesa meira
Q-school LET: Tinna lauk leik á 2. hring á 71 höggi!
Tinna Jóhannsdóttir, GK, lauk leik á Norður-velli La Manga á 71 höggi. Hún byrjaði á 10. teig og fékk strax skolla á 11. braut en síðan 3 fugla á seinni 9 og var í -2 undir pari eftir 9 holur. Það gekk ekki eins vel með fyrri hluta Norður-vallarins, en Tinna fékk skolla á 17. og 18. braut – í blálokin, sem hefir verið svekkjandi…. og spilaði því samtals á pari. Alls hefir Tinna spilað á +1 yfir pari 145 höggum (74 71) Aðeins örfáar af þeim 101 sem eru í B-hóp úrtökumótsins fyrir LET hafa spilað á eða undir pari og er Tinna sem stendur í góðri stöðu. Þegar Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Sergio Garcia – 9. janúar 2012
Það er Sergio Garcia sem er afmæliskylfingur dagsins, en hann fæddist 9. janúar 1980, í Borriol, Castellón, Spáni, og er því 32 ára í dag. Sergio byrjaði að spila golf þriggja ára og var kennt af föður sínum, Victor. Á árunum 2000-2009 var hann í meira en 300 vikur á topp 10 á heimslistanum; hæst komst hann í 2. sætið, í nóvember 2008, þegar hann sigraði á HSBC Champions. Sergio gerðist atvinnumaður árið 1999 eftir að hafa verið á lægsta skori áhugamanna, sem þátt tóku á Masters það ár. Á ferli sínum hefir hann bæði spilað á Evróputúrnum og PGA. Hann hefir 22 sinnum sigrað sem atvinnumaður í golfi; 10 sinnum Lesa meira
GK: Framtíðarskipulag Keilis
Á heimasíðu Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði má sjá eftirfarandi frétt um framtíðarskipulag Hvaleyrarvallar, sem og litla par-3 holu völl Keilis, Sveinkotsvöll: „Hér (að ofan) má sjá framtíðarskipulag seinni holna Keilis, vinsamlegast smelllið á mynd til að sjá teikninguna. Í fjárhagsáætlun Keilis sem sammþykkt var á aðalfundi nú í desember fyrir 2012, er ráðgert að klára holu númer 15 sem er par 3 hola sem getur nýst inní Sveinskotsvöll fyrst til að byrja með áður enn holan verður tekin inní endanlegt skipulag. Skipulagið gerir enfremur ráð fyrir því að á næstu árum verður hægt að vinna hægt og rólega í endurgerð holna 14 og 13 án þess að það hafi áhrif Lesa meira
Tinna á -2 undir pari eftir 9 holur á La Manga
Tinna Jóhannsdóttir, GK, hóf leik í morgun á La Manga kl. 8:55 að íslenskum tíma. Eftir 9 spilaðar holur var hún -2 undir pari. Tinna byrjaði á 10. teig Norður-vallarins, sem er par-71. Hún fékk skolla á par-4 11. brautina, sem þykir frekar erfið braut. Eftir það náði hún sér hins vegar á strik og fékk 3 fugla: á 14. braut (par-4); 15. braut (par-5) og 17. braut (par-4). Sjá má umfjöllun Golf 1 um La Manga golfvöllinn með því að smella HÉR: Sjá má stöðuna á La Manga á 2. degi með því að smella HÉR:
Hank Haney gefur út bókina „The Big Miss“ um 6 ár sín sem sveifluþjálfi Tiger
„The Big Miss“ er bók skrifuð af fyrrum sveifluþjálfara Tiger Woods, Hank Haney, sem kemur út í mars n.k. og veitir innsýn í árin sem þeir vörðu saman og þar sem gekk á ýmsu, áður en líf kylfingsins hrundi saman vegna skandalsins. Bókinni er lýst af útgefendanum, Crown Archetype, í Random House Inc, sem „hreinskilinni og þykir veita innsýn með undraverðum hætti,“ jafnframt því að vera endursögn á mjög árangursríkri samvinnu Haney og Woods, sem leiddi til 14 risamótstitla. Hún lýsir líka tveimur stærstu áskorununum Haney, sem sveifluþjálfara hins 14 falda sigurvegara risamóta, Tiger, sem af mörgum er talinn besti kylfingur allra tíma. „Það sem elti Tiger eins og vofann Lesa meira






