Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 21:50

Golfvellir í Cádiz á Spáni: Arcos Gardens Golf Club & Country Estate (nr. 3 af 3)

Arcos Golf & Garden Estate er hannað af Landmark, hönnuðum PGA West, Palm Beach Polo og Ocean golfvallarins á Kiawah eyju í Bandaríkjunum. Völlurinn er frábær skemmtun fyrir öll getustig í golfi allt frá atvinnumanninum til háforgjafaráhugamannsins í golfi.  Svo er hann undurfallegur, í 300 ára olífutrjálundi, með karóbtré, furur og suðræn blóm og runna um allt. Það eru 5 teigastaðsetningar við hverja holu.  Um 107 sandglompur og vötn, sem koma við sögu reyna á nákvæmni kylfinga, þó að brautir séu fremur víðar.  Einkennisbraut vallarins er 16. brautin, þar sem er fallegt útsýni yfir hvíta bæinn, Arcos de la Frontiera (sjá mynd hér að neðan): Til þess að sjá myndaseríu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 21:45

Arcos Gardens – golfvöllur

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 15:00

Viðtalið: Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO.

Viðtalið í dag er við kylfing, sem er mörgum að góðu kunn Eygló Myrru Óskarsdóttur, GO og University of San Francisco. Henni hefir gengið vel í bandaríska háskólagolfinu s.l. haust, lið hennar sigraði t.a.m. í Wolf Pack Classic mótinu, sem fram fór í Nevada í október s.l. Hér fer viðtalið: Fullt nafn: Eygló Myrra Óskarsdóttir. Klúbbur: GO. Hvar og hvenær fæddistu?   Ég fæddist 15. október 1991, í Óðinsvéum, í Danmörku. Hvar ertu alin upp?   Ég er alin upp í Garðabæ fyrir utan að ég var 2 ár í Danmörku. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?  Ég bý heima hjá pabba og mömmu og á 2 systur Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 13:30

Q-school LET: Glæsilegt Tinna! – Lék 3. hring á -2 undir pari!

Til hamingju Tinna!  Tinna Jóhannsdóttir, GK, átti sinn albesta hring á fyrri hluta úrtökumóts LET til þessa á Suður-velli La Manga, í Cartagena, Murcia á Spáni. Hún byrjaði á 10. teig í dag, en fékk því miður skolla á 11. og 15. braut en lét ekki deigann síga og lauk fyrri 9 á fallegum fugli á 18.  Tinna var því á +1 eftir fyrri 9. Síðan spilaði hún seinni hluta hrings síns á fyrstu 9 holum Suður-vallarins. Og þar spilaði hún eins og engill, skollafrítt, fékk 3 fugla, á 1., 3. og 7. braut og glæsiskor dagsins upp á -2 undir pari staðreynd! Tinna er samtals á -1 undir pari, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andrea á sama afmælisdag og Ian Poulter – 10. janúar 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Andrea Ásgrímsdóttir, golfkennari með meiru hjá MPgolf. Hún fæddist 10. janúar 1974 og er því 38 ára í dag.  Sjá má nýlegt viðtal Golf1 við Andreu með því að smella hér: VIÐTAL VIРANDREU ÁSGRÍMSDÓTUR Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Ian Poulter 10. janúar 1976 (36 ára) og Romain Wattel, 10. janúar 1991 (21 árs). Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is  

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 11:25

Q-school LET: Tinna á +1 yfir pari eftir 9. holu á 3. hring

„Ef ég fengi val um að spila 1 völl áður en ég myndi deyja, væri það Suður-völlurinn á La Manga.“ Lord Deedes. Svona eru ummælin um völlinn, þar sem Tinna Jóhannsdóttir berst nú um að halda sæti sínu meðal 35 efstu til þess að mega taka þátt í lokaúrtökumóti LET í næstu viku. Enn sem komið er lítur allt vel út. Tinna byrjaði á 10. teig og er búin að spila á +1 yfir pari. Hún fékk skolla á 11. og 15. braut og tók þetta síðan aðeins tilbaka á 18. braut, þar sem hún fékk fugl. Það er vonandi að þannig verði framhaldið… fuglafærin gefi sig hvert á fætur Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 11:00

LET: Nýtt mót – ISPS Handa British Masters –

Í gær tilkynnti LET um nýtt flaggskips mót þar sem verðlaunafé er í hærri kantinum eða £300,000.  Styrktaraðili mótsins er japanska fyrirtækið ISPS í eigu Dr. Haruhisa Handa. Dr. Handa sagði m.a. við þetta tækifæri: „ISPS er ánægt að vera aðalstyrktaraðili þessa nýja, spennandi móts. Buckinghamshire Golf Club er frábær mótsstaður og við hlökkum til að halda ISPS Handa Ladies British Masters  á keppnisvelli þeirra.“Mótið fer fram dagana 16. – 18. ágúst 2012.„Sendiherra“ ISPS, Laura Davies sem býr í Surrey, þ.e. nálægt vellinum sagði: „Ég er mjög ánægð að spila í þessu nýja móti á svona fallegum velli, sem Buckinghamshire golfvöllurinn er. Ég mun halda áfram að styðja ISPS, sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 10:30

Íþróttamenn ársins hjá GSÍ: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Ólafur Björn Loftsson, NK

Á hverju ári velja sambönd tiltekinna íþróttagreina, íþróttamenn ársins innan sinna vébanda. Að höfðu samrráði við afreksnefnd GSÍ valdi Golfsamband Íslands þau Ólafíu Þórunni Kristinsdóttir, GR og Ólaf Björn Loftsson, NK,  kylfinga ársins 2011. Kylfingar ársins hjá GSÍ  2010 voru: Birgir Leifur Hafsteinsson, GKG og Tinna Jóhannsdóttir, GK. Ólafía Þórunn, GR var að mati stjórnar GSÍ valin kvenkylfingur ársins 2011. Ólafía Þórunn er þrefaldur Íslandsmeistari, í höggleik, holukeppni og með  kvennasveit GR í sveitakeppni GSÍ 2011. Eins varð Ólafía Þórunn klúbbmeistari GR, 2011. Ólafía stundar nám og spilar með golfliði eins sterkasta háskólaliðs í Bandaríkjunum, Wake Forest.  Hún spilaði ekki í öllum mótum Eimskipsmótaraðarinnar í sumar, en varð samt í  2. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 09:00

Golfútbúnaður: Nýi Ping i20 dræverinn

Ping i20 línan er það nýjasta frá PING.  Í nýlegri auglýsingu fyrir nýja i20 PING dræverinn segir: „Í Ping i20 drævernum kemur saman vinnanleiki, fyrirgefanleiki og lengd sem gerir kylfinginn fullkomnari og höggval hans fjölbreyttara. Mattur, dökkur liturinn á  460cc Ping i20 drævernum grípur augað og dregur úr glampa og endurskini frá drævernum. PING hefir endurhannað yfirborð kylfuhöfuðsins til þess að gera það dýnamískt og draga úr líkum þess að kylfingar dragi boltann, auk þess sem áhersla er lögð á að skapa þær aðstæður sem auka kylfuhaushraðann og boltahröðunina. Í i20 drævernum er þéttur  tungsten sóli og er þyngd komið fyrir aftan í sólanum  til að auka MOI kylfunnar og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2012 | 06:00

PGA: Steve Stricker sigraði á Hyundai Tournament of Champions, í Kapalua, Hawaii

Steve Stricker hefir alltaf trúað því að reynslan muni fleyta honum langt til að sigra 1. mótið á PGA TOUR (Hyundai Tournament of Champions). Enginn annar kylfingur er vanari því að skapa sér mikla forystu og sjá hana síðan gufa upp og berjast síðan fyrir sigrinum. Það er einmitt það sem Stricker gerði á Maui í nótt þegar hann vann Hyundai TOC, með lokahring sem leit bara létt út á pappírnum. (Sigur á þessu móti, sem hann vann í 6. tilraun sinni). „Ég hef verið í þessari stöðu áður. Það er ekki góð tilfinning heldur,“ sagði Stricker eftir að ljúka leik (á lokahringnum) á -4 undir pari, 69 höggum, með Lesa meira