Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2012 | 20:00
Afmæliskylfingur dagsins: Halla Björk Ragnarsdóttir – 27. september 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Halla Björk Ragnarsdóttir. Halla Björk er fæd 27. september 1994 og á því 18 ára í dag. Halla Björk er afrekskylfingur í GR og klúbbmeistari Golfklúbbs Öndverðarness 2012. Halla Björk spilaði m.a. á Unglingamótaröð Arion banka í sumar. Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Halla Björk Ragnarsdóttir (Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kathy Whitworth, 27. september 1939 (73 ára); Armando Saavedra, 27. september 1954 (58 ára); Rachel L. Bailey, 27. september 1980 (32 ára – spilar á ALPG) ….. og ….. Töfrahurð Fjölskyldutónleikar Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2012 | 19:45
Birgir Leifur á 69 í Bogogno á 3. degi

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lék 3. og síðasta hring fyrir niðurskurð í Bogogno á Ítalíu í dag. Birgir Lefiur spilaði á 3 undir pari, 69 höggum og fékk 6 fugla og 3 skolla. Samtals er Birgir Leifur búinn að spila á 2 undir pari, 214 höggum (71 74 69). Hann lauk leik eftir 3. hring í 21. sæti. Það eru 28 efstu í mótinu sem tryggja sér sæti á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina, sem fram fer í nóvember n.k. Golf 1 óskar Birgi Leif góðs gengis á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag í Bogogno SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2012 | 17:00
Ryder Cup 2012: Lee Westwood einn reynslumesti leikmaður í liði Evrópu

Lee Westwood er meðal þeirra eldri í liði Evrópu í Ryder Cup. Þetta er í 8. skipti sem hann tekur þátt í keppninni og José Maria Olazábal er 8. fyrirliðinn. „Ég hef meiri reynslu en margur annar leikmaður í sögu Ryder Cup, ólíkir fyrirliðar í ólíkum Ryder Cup keppnum og ég hef séð hvernig ólíkir fyrirliðar bera sér að,“ sagði Westwood í gær í Medinah. Og Westwood, 39, líkar það sem hann hefir séð til Olazábal fram að þessu. „Ef þú setur Ryder Cup fyrirliða starfið hans til hliðar, þá finnst mér hann bara frábær náungi,“ sagði Westwood. „Hann er góður, pottþéttur náungi. Hann er heiðarlegur. Hann segir þér það sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2012 | 14:40
Íslenska kvennalandsliðið í 42. sæti í Tyrklandi eftir 1. dag

Í dag hófst heimsmeistaramót áhugamanna á Gloria golfvellinum í Antalya í Tyrklandi. Alls taka þátt 157 keppendur sem skipa kvennalandslið áhugamanna 53 þjóða. Kvennalandslið Íslands skipa þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK; Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Íslandsmeistarinn í höggleik 2012 Valdís Þóra spilaði best allra í íslenska liðinu í dag, var á 5 yfir pari, 77 höggum; fékk 2 fugla, 5 skolla og 1 skramba. Hún deilir 76. sætinu ásamt 15 öðrum kylfingum. Guðrún Brá og Ólafía Þórunn spiluðu báðar á 7 yfir pari, 79 höggum og deila 99. sætinu einnig ásamt 15 öðrum kylfingum. Becky Harris frá Wales og Daníela Holmqvist frá Svíþjóð spiluðu best Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2012 | 14:00
Ryder Cup 2012: Fimm bestu paranirnar í Ryder bikarnum

Það er ekki allt unnið með því að vera besti kylfingur heims. Bestu kylfingar heims spila ekki endilega vel saman í fjórmenningi eða besta bolta eins og þarf að gera í Ryder bikarnum. Fræg eru samt dæmi um frábæra kylfinga sem hafa verið paraðir með öðrum frábærum kylfingum og hafa saman myndað eftirminnileg lið í Ryder Cup. Dæmi um góða samvinnu er t.a.m. samvinna Jack Nicklaus og Tom Watson. Dæmi um það gagnstæða er samvinna Tiger og Phil Mickelson. Hal Sutton fyrirliði gerði tilraun með að para saman erkifjendurna Woods og Mickelson og sú tilraun mistókst hrapalega, þar sem þeir töpuðu báðum leikjum sínum. Þeir voru ekki aðeins keppninautar heldur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2012 | 07:30
Ryder Cup 2012: Hver sigrar 39. Ryder bikars keppnina?

Spurningin sem brennur á vörum flestra er hver komi til með að standa uppi sem sigurvegari í Ryder bikars keppninni í Medinah í Bandaríkjunum n.k. sunnudag? Rétt svar við því er að það verður annaðhvort lið Evrópu eða Bandaríkjanna. En hvort liðið verður það? Nokkrir bandarískir íþróttafréttamenn reyna að spá í spilin + giska á hvernig stigin koma til með að skiptast. Ekki kemur á óvart að 11 af 12 spá Bandaríkjunum sigri. Hér má sjá spánna: Sérfræðingarnir spá í Ryder Cup Sérfræðingar Spáir eftirfarandi liði sigri Stig Chris Dunham Golfvefsíðustjórandi 15.5-12.5 Þeir hafa skiptst á að sigra í Bandaríkjunum frá 1983 (7 Ryder bikars keppnir) – Bandaríkin ætla Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 18:30
Viðtalið: Jóhann Sævar Símonarson, GVS

Viðtalið í kvöld er við einn af stofnendum Golfklúbbs Vatnsleysustrandar (GVS), mann,s sem flestir sem spila Kálfatjarnarvöll þessa dagana kannast við, því hann er þar alltaf, a.m.k. fyrir hádegið. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar hjá GVS og aðrar eru komnar í skipulag og fyrirhugaðar. Meðal þess sem unnið hefir verið að, að undanförnu er að búa til stórt og fínt æfingasvæði og síðan er fyrirhugað að stækka Kálfatjarnarvöll úr 9 holum í 18 holu völl og er m.a. gert ráð fyrir nýju klúbbhúsi og glæsilegu hóteli á staðnum. Þess mætti geta að GVS hefir nú nýverið hlotið umhverfisviðurkenningu sveitarfélagsins Voga 2012 fyrir snyrtilegt umhverfi og má það til sanns vegar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 16:00
Birgir Leifur á 74 höggum í Bogogno á 2. degi

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lék 2. hring á 1. stigi úrtökumótsins í Bogogno fyrr í dag. Hann lék á 2 yfir pari, 74 höggum og er því samtals búinn að spila á 1 yfir pari 145 höggum (71 74). Birgir fékk 3 fugla, 3 skolla og 1 skramba. Sem stendur er Birgir Leifur T-43, þ.e. deilir 43. sætinu ásamt nokkrum öðrum kylfingum, en sætisröðin gæti enn breyst eftir því sem líður á kvöldið, því nokkrir kylfingar eiga eftir að ljúka leik. Ekki er öll nótt úti enn, aðeins skilja 2 högg að þá sem eru T-43 og T-19, þ.e. Birgir Leifur þarf eins og staðan en nú aðeins að vinna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 15:30
Ryder Cup 2012: Donald og Garcia paraðir saman á 2. æfingadegi

Sergio Garcia og Luke Donald spiluðu saman í fjórmenningi á 2. æfingadegi í Medinah. Garcia og Donald eru með 4 vinninga úr 4 leikjum í fjórmenningi í fyrri leikjum og það virðist næsta víst að þeir verði paraðir saman þegar leikar hefjast fyrir alvöru n.k. föstudag. Þeir spiluðu á æfingunni við Rory og G-Mac en það er önnur liðsheild sem virðist næsta pottþétt Evrópu megin. Lee Westwood, sem spilaði fjórbolta á æfingunni paraður með Donald spilaði nú með Paul Lawrie og á móti Francesco Molinari og Nicolas Colsaerts. Ian Poulter og Justin Rose léku saman annan daginn í röð og spiluðu æfinga fjórbolta við Peter Hanson og Martin Kaymer. Fyrir æfinginguna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 13:15
Heimsmeistaramót kvenlandsliða áhugamanna hefst á morgun

Stærsta verkefni landsliðsins er framundan, Heimsmeistaramót áhugamanna í golfi. Mótið fer fram í Antalya í Tyrklandi. Á heimsmeistaramótinu (ensk. World Amateur Team Championships) er leikið um hina eftirsóttu bikara, Einsenhower Trophy í karlaflokki og Espirito Santo Trohpy í kvennaflokki. Núverandi heimsmeistarar í karlaflokki eru Frakkland en Kórea í kvennaflokki, en mótið fór síðast fram í Argentínu 2010. Heimsmeistaramót áhugamanna, er liðakeppni þar sem hver þjóð sendir þrjá kylfinga til leik í karlaflokki og þrjá í kvennaflokki. Leiknar eru 72 holur eða fjórir 18 holu hringir og telja tvö bestu skorin eftir hvern hring. Alls eru 56 þjóðir skráðar til leiks í kvennaflokki og 72 þjóðir í karlaflokki. Leiðið verður á Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

