Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Tryggvi Valtýr Traustason – 26. september 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Tryggvi Valtýr Traustason. Tryggvi er fæddur 26. september 1962 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Tryggvi er í Golfklúbbi Setbergs í Hafnarfirði.  Hann varð m.a. Íslandsmeistari 35+ s.l. ár, 2011, í Kiðjaberginu. En það er aðeins eitt af fjölmörgum afrekum Trygga á sviði golfíþróttarinnar. Sem dæmi mætti nefna að Tryggvi varð klúbbmeistari GK 1983 og 1999. Hann varð klúbbmeistari GSE 2001 og Íslandsmeistari í sveitakeppni með GK 1988, 1989, 1991 og 1995. Tryggvi er kvæntur Kristínu Þorvaldsdóttur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Tryggvi Valtýr Traustason (50 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 09:30

Ryder Cup 2012: Lið Evrópu gengur Medinah völlinn – „Go Sergio“ lið Evrópu á líka aðdáendur meðal Bandaríkjamanna!!!

Lið Evrópu er komið til Chicago þar sem Ryder bikars keppnin eða Ryder Cup hefst á morgun. Í gær gekk liðið Medinah golfvöllinn og …. hann er ekki sá stysti 7648 yarda (6993 metra), hefir verið lengdur frá því að Tiger Woods vann annan af 2 PGA meistaramóts titlum sínum hér, 2006. Þetta er völlur sem hentar hinum högglöngu, sleggjunum. Fyrsta brautin virðist ekkert erfið, 433 yarda (396 metra) bein fyrir utan andstyggilega brautarglompu og flatarglompur stráðar allt í kringum hallandi flötina – en eins og allir vita sem fylgst hafa með Ryder Cup er 1. brautin sérlega mikilvæg; sérstaklega 1. teigur. Önnur brautin er par-3, 192 yarda (176 metra). Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 09:00

Ryder Cup 2012: Þungu fargi létt af Martin Kaymer – segist hafa fundið sitt fyrra form

Martin Kaymer viðurkennir að sér létti að hafa fundið aftur sitt fyrra form rétt fyrir Ryder bikars keppnina í Chicago. Fyrir aðeins mánuði síðan hafði fyrirliði Evrópu í Ryder bikarskeppninni, José Maria Olazábal mestar áhyggjur af Kaymer, sem ekki hafði verið meðal 10 efstu í mótum, sem hann spilaði í frá apríl nú fyrr á árinu, en náði samt einu af sjálfkrafa sætunum í Ryder bikars keppnisliði Evrópu. Hvað sem öðru líður þá er hinn 27 ára Þjóðverji sjálfsöryggið uppmálað fyrir keppnina. „Allt í einu á föstudeginum í Hollandi (fyrir 3 vikum) small allt í drævunum hjá mér aftur, “ sagði hann. „Ég er mjög, mjög ánægður að það small Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 08:30

Skosku tónlistarmennirnir Fowlis og Benedetti flytja gelíska tónlist við lokaathöfn Ryder Cup

Skosku tónlistarmennirnir Julie Fowlis og Nicola Benedetti, munu taka þátt í lokaathöfn Ryder Cup á sunnudaginn og flytja hefðbundna gelíska tónlist. Undir laginu sem milljónir heyra væntanlega í útsendingum sjónvarpsstöðva sinna verður sýnd kynningarstuttmynd um Skotland um viðskipti þar, ferðmennsku og golf. Atriði Benedetti og Fowlis markar yfirfærslu leikanna yfir til Skotland sem verður næsti gestgjafi Ryder bikarsins í Gleneagles árið 2014. Um það hafði Benedetti m.a.eftirfarandi að segja: „Það er heiður að fá að taka þátt í hátíðarhöldunum og flytja tónlist og þ.a.l. hluta af list lands síns.“


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2012 | 07:00

Golfútbúnaður: Cobra Amp Cell dræverinn

Cobra AMP Cell drævreinn er útbúinn nýjustu  MyFly tækni Cobra, og geta kylfingar valið milli 6 mismunandi loft/ferils stillinga til þess að ná hámarks frammistöðu og fjarlægð. Dræverinn kemur í 4 mismunandi litum (silurlituðum, rauðum, bláum og appelsínugulum), og hægt er að stilla loft á AMP Cell drævernum auðveldlega í 8.5° 9.5°, 9.5° drag (ens.: draw), 10.5°, 10.5° drag and 11.5° með því að nota þar til gerðan Cobra skrúflykil.  Þessi stillanleiki dræversins hefir í för með sér að kylfingar geta aðlagað AMP dræver sinn að sveifluhraða, vallaraðstæðum og veðri. Ólíkt sumum dræverum þar sem leikmenn verða að aðlaga plötuna í sólanum til þess að viðhalda réttu horni kylfuandlits þá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2012 | 21:30

Afmæliskylfingur dagsins: Jodie Kidd – 25. september 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Jodie Kidd. Jodie Kidd fæddist 25. september 1978 í Guildford í Englandi og er því 34 ára í dag. Aðrir frægir kylfingar eru: Heather Locklear, fædd 25. september 1961 (Sjá afmælisgrein um hana með því að SMELLA HÉR:); Tjaart Van der Walt, 25. september 1974 (38 ára); John Mallinger, 25. september 1979; Belen Mozo, 25. september 1988 (24 ára) …. og …. Skúli Már Gunnarsson (41 árs) Aron Atli Bergmann (14 ára) Ystiklettur Veiðifélag (57 ára) Jon Halldor Gudmundsson (55 ára) Helgi Gunnlaugsson (34 ára) Speshandverk Lillaogmagga (46 ára) Afmæliskylfingurinn Jodie Kidd  er þekkt sjónvarpsstjarna og módel í heimalandi sínu og jafnframt frambærilegur kylfingur, er með 18 í forgjöf. Sem barn kom hún fram Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2012 | 20:30

Birgir Leifur á 71 höggum eftir 1. dag í Bogogno

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tekur þátt í úrtökumóti á 1. stigi fyrir Evrópumótaröðina. Mótið fer fram í Bogogno á Ítalíu. Birgir Leifur lék á 1 undir pari, 71 höggi. Hann fékk 5 fugla, 2 skolla og skramba á hringnum og deilir 17. sæti með 10 öðrum kylfingum eftir 1. dag. Það eru 29 efstu sem komast áfram á annað stig úrtökumótsins, en skorið verður niður eftir 3 hringi. Sá sem leiðir eftir 1. dag er Svíinn Robin Wingardh á 6 undir pari, 66 höggum. Golf 1 óskar Birgi Leif góðs gengis á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2012 | 08:00

Golf 1 eins árs í dag!!!

Golf 1 er eins árs í dag, þ.e.  1 ár er frá því að fyrsta fréttin birtist á Golf 1 golffréttavefnum.  Það var frétt í greinaflokknum „Frægir kylfingar“ og um John F. Kennedy 35. forseta Bandaríkjanna, sem enn í dag þykir fremstur í golfi af þeim sem setið hafa í forsetastóli í Bandaríkjunum.. Sjá fyrstu grein Golf 1 með því að SMELLA HÉR:  Frá því fyrir ári síðan hafa tæp 3500 greinar birtst á Golf1, þar af um 100 á ensku,  ásamt 110 myndaseríum. Það gerir u.þ.b. 9.6 greinar per dag allt árið um kring og hér um bil 1 enska grein eða myndaseríu í birtingu 3. hvern dag. Golf Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 18:45

Afmæliskylfingur dagsins: Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir – 24. september 2012

Það er Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir sem er afmæliskylfingur dagsins. Katrín er fædd 24. september 1961. Hún er í Golfklúbbnum á Hellu, sem líka á stórt afmæli í ár, en 60 ár eru frá stofnun klúbbsins.  Katrín hefir gegnt ýmsum stjórnarstörfum fyrir GHR og er núverandi ritari klúbbsins. Hún er gift formanni klúbbsins Óskari Pálssyni og á 3 börn þ.á.m. afrekskylfinginn Andra Má. Sjá má nýlegt viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:  Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Tommy Armour, f. 24. september 1895- d. 11. september 1968) ; W-7 módelið Lisa Hall, 24. september 1967 (45 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2012 | 15:30

Viðbrögð Brandt Snedeker við sigrinum á Tour Championship

Golf 1 hefir áður kynnt kylfinginn Brandt Snedeker til sögunnar í greinaflokknum: Hver er kylfingurinn? og má sjá umfjöllun um hann með því að smella hér: Brandt Snedker 1  –  Brandt Snedeker 2  –  Brandt Snedeker 3  –  Brandt Snedeker 4 Brandt Snedeker er heitasta umfjöllunarefnið í golfheiminum, sem stendur eftir að hafa sigrað á Tour Championship og þar með unnið sér inn tæpar 11 milljónir bandaríkjadala. Hér má lesa um viðbrögð hans við nokkrum spurningum blaðamannamanna að sigri loknum: • Afstaða Snedeker til þess að sigra TOUR Championship styrktu af  Coca-Cola og FedExCup umspilið: „Þetta er það sem maður vinnur að allt sitt líf. Ég lít á öll púttin sem Lesa meira