Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 08:00
Ryder Cup 2012: Myndir frá Medinah

Hér að neðan er tengill á heimasíðu Ryder Cup þ.e. myndasíðu með öllum myndum frá Ryder bikars keppninni 2012 í Medinah, Chicago. Til þess að skoða myndaseríur frá öllum dögum mótsins SMELLIÐ HÉR: Þessi keppni verður lengi í minnum höfð fyrir það hvernig liði Evrópu tókst að snúa svartnættisstöðu á laugardeginum í sætan sigur á sunnudeginum, þegar lið Evrópu vann 8 1/2 af 12 tvímenningsleikjum keppninnar. Hér að ofan eru m.a. skemmtilegar myndir af sigurgleði evrópskra liðsmanna að leik loknum. Svona til upprifjunar þá fóru leikar svo í Ryder bikars keppninni 2012 – SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 07:00
Ryder Cup 2012: Olazábal segir að árangur liðs Evrópu á laugardeginum hafi ráðið úrslitum

José Maria Olazábal fyrirliði Ryder bikars liðs Evrópu hefir látið hafa eftir sér að laugardagsleikirnir hafi ráðið úrslitum í frábærum sigri Evrópu í Ryder bikarnum í Medinah. Staðan var orðin 10-4 eftir hádegið á laugardeginum og lið Evrópu að missa tökin á Ryder bikarnum – þetta leit illa út. En Sergio Garcia og Luke Donald tókst að sigra Tiger Woods og Steve Stricker til að minnka muninn og Ian James Poulter fékk fugla á síðustu 5 holurnar í dramatískum sigri hans og nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy á þeim Jason Dufner and Zach Johnson. Þar með var staðan orðin 10-6 og skapaði grunninn fyrir lið Evrópu sem þarfnaðist 8.5 stiga Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 02:45
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór í 29. sæti eftir 1. dag Jim Rivers Intercollegiate

Andri Þór Björnsson, GR og The Colonels, golflið Nicholls State taka þátt í Jim Rivers Intercollegiate mótinu, sem stendur dagana 1.-2. október 2012. Þátttakendur eru 75 frá 14 háskólum og leikið er í Squire Creek, í Choudrant, Louisiana. Eftir 1. dag og tvo spilaða hringi er Andri Þór búinn að spila á samtals 5 yfir pari, 149 höggum (75 74) og deilir 29. sæti ásamt Gustavo Chuang frá Nevada háskólanum. Lið The Colonels er í 12. sæti í liðakeppninni og er Andri Þór búinn að spila best allra í lið sínu. Golf 1 óskar Andra Þór góðs gengis lokahringinn! Til þess að fylgjast með gengi Andra Þórs SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 21:25
Shanshan Feng sigraði á Opna japanska

Kínverska stúlkan Shanshan Feng nældi sér í 3. sigur sinn á japanska LPGA (skammst.: JLPGA). Hún var á sléttu pari á Opna japanska (ens.: Japan Women’s Open á lokahringnum í gær, 30. september í Yokohama Country Club. Feng, sigraði á LPGA Championship risamótinu fyrr á þessu ári. Hún er fyrsti leikmaðurinn frá árinu 1997 til þess að sigra risamót bæði á LPGA og JLPGA, á sama árinu. Hún er líka eini leikmaðurinn til þess að vera á heildarskori upp á par eða betur í Yokohama. Feng var á 1 undir pari, 71 höggi á lokahringnum og átti 1 högg á InBee Park, sem varð í 2. sæti. Ji-Hee Lee varð í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 20:30
Afmæliskylfingur dagsins: Dagur Ebenezersson – 1. október 2012

Það er Dagur Ebenezersson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Dagur er fæddur 1. október 1993 og er því 19 ára í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbnum Keili og spilaði m.a. á Eimskipsmótaröðinni í sumar. Golf 1 tók fyrr á þessu ári viðtal við Dag sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Dagur Ebenezersson (19 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: George William Archer f. 1. október 1939 – d. 25. september 2005; ….. og ……. Þórdís Geirsdóttir (47 ára) Áslaug Sif Guðjónsdóttir (65 ára) Litla Búðin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 20:00
Bandaríska háskólagolfið: Sunna í 11. sæti eftir 1. hring Starmount Classic
Þær Sunna Víðisdóttir, GR og Elon og Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG, taka í þessum skrifuðum orðum þátt í Starmount Classic mótinu í Greensboro, Norður- Karólínu. Spilað er í Starmount Forest CC. Þátttakendur eru 89 frá 16 háskólum. Sunna átti glæsihring upp á 2 yfir pari, 73 högg og er í 11. sæti, eftir fyrri hring dagsins. Sunna er á besta skori liðs síns. Berglindi hins vegar átti ekki sinn besta hring, spilaði á 10 yfir pari, 81 höggi og er sem stendur í 65. sæti. Berglind er á 2. besta skori liðs síns, eftir 1. hring. Nú er verið að spila 2. hringinn í mótinu. Elon háskóli Sunnu er í 5. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 19:00
Bandaríska háskólagolfið: Stefanía Kristín og The Falcons luku leik í 11. sæti á Lander Inv.

Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, klúbb- og púttmeistari GA 2012, og nú háskólanemi í Pfeiffer, sem spilar með the Falcons, golfliði skólans, tók ásamt liði sínu þátt í Lander Bearcat Invitational. Spilað var á Old South Golf Links, í Hilton Head, Suður-Karólínu dagana 29.-30. september í síðasta mánuði. Það voru 66 þátttakendur frá 12 háskólum, sem kepptu í mótinu. Stefanía Kristín spilaði á samtals 21 yfir pari, 165 höggum (83 82). Stefanía Kristín hafnaði í 54. sæti og lið the Falcons í 11. sæti. Næsta mót sem Stefanía Kristín og The Falcons spila í er Patsy Rendleman Invitational í Salisburg, Norður-Karólínu sem fram fer 15.-16. október n.k. Golf 1 óskar Stefaníu Kristínu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 18:00
Ryder Cup 2012: „Hr. Ryder Cup – Ian Poulter“

Fjölmiðlar í enskumælandi löndum eiga ekki til nægilega stór orð til að lýsa afreki Ian Poulter á Ryder Cup 2012. „Mr. Ryder Cup“ og „The Catalyst of the Miracle of Medinah“ eru aðeins dæmi þegar kemur að umfjöllun um Poulter. Fjölmiðlar eru þegar búnir að setja hann á stall með Seve Ballesteros, José María Olazábal, Bernhard Langer, Nick Faldo og Ian Woosnam, sem þrátt fyrir að Ryder bikarinn sé liðakeppni, sköruðu fram úr sem einstaklingar. Ef það á ekki fyrir Ian Poulter að liggja að sigra á risamóti þá getur hann huggað sig við það að hann er þegar búinn að skrifa sig í sögubækurnar sem einn af bestu kylfingum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 15:00
Ryder Cup 2012: Davis Love III ver leikplan sitt og ákvarðanir í Ryder keppninni

Davis Love III segir að hann hafi enga eftirsjá varðandi leikplan sitt þrátt fyrir að lið hans hafi brotnað saman í gær gegn sterku liði Evrópu Lið Bandaríkjanna tapaði með 14½ vinningi g. 13½ vinningi eftir að hafa verið í forystu 10-6 á laugardeginum. „Við vorum að spila svo vel, allir í liði okkar voru að spila svo vel, ég myndi ekki hafa gert neitt öðruvísi,“ sagði Love. „Allt fór eftir áætlun. Við vorum 4 yfir. Leikplanið virkaði fyrstu tvo dagana, það bara gerði það ekki í dag (þ.e. í gær).“ Bandaríski fyrirliðinn bar tilfinningar tapliðs Ryder Cup liðs hans við þær sem lið Evrópu fann fyrir eftir hrun þeirra 1999. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 12:30
Ryder Cup 2012: Viðbrögð nokkurra bandarískra fjölmiðla við ósigri Bandaríkjamanna í Rydernum

Golf 1 birti fyrir Ryder bikars keppnina spá nokkurra þekktra bandarískra fjölmiðlamanna og þar var trúin á bandaríska Ryder bikars liðið sterk. Af 12 fjölmiðlamönnum sem beðnir voru að spá um úrslitin sögðu 11 af 12 að bandaríska liðið myndi sigra. Og það leit svo sannarlega þannig út á laugardagskvöldinu að Bandaríkjamenn myndu rúlla yfir lið Evrópu. Staðan var 10:6. Það voru fæstir sem spáðu fyrir um 14 1/2 – 13 1/2 vinnings úrslitin liði Evrópu í vil. Sjá spá bandarísku fjölmiðlamannanna fyrir keppnina með því að SMELLA HÉR: Það er gaman að blaða í gegnum nokkra þekkta bandaríska fjölmiðla í dag þ.e. sé maður á bandi evrópska liðsins. Það Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

