Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 07:00
Westwood verður ekki með á Dunhill Links

Lee Westwood, ein af hetjunum í Ryder Cup liði Evrópu hefir dregið sig úr Dunhill Links Championship, sem hefst í Skotlandi á morgun. Hinn 39 ára liðsmaður Ryder bikarsliðs Evrópu þarf lengri tíma til þess að hvíla sig eftir átök s.l. helgi. Þá eru aðeins þrír eftir af vinnings Ryder Cup liði Evrópu sem taka þátt í mótinu: Paul Lawrie, Peter Hanson og Martin Kaymer — auk eins úr bandaríska tapliðinu, Dustin Johnson. Westwood vann mótið 2003, og Lawrie tveimur árum áður og Kaymer fyrir tveimur árum (2010) rétt eftir sigur Ryder bikars liðs Evrópu í Celtic Manor. Í þetta sinn tekur Kaymer þátt sem sá liðsmaður sem tók úrslitapúttið sem hélt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 19:30
Ólafur Björn á 77 og Ólafur Már á 83 á 1. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina eftir 1. dag

Ólafur Björn Loftsson, NK og Ólafur Már Sigurðsson, GR, spiluðu í dag 1. hring á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina. Leikið er á golfvelli Frilford Heath golfklúbbsins í Frilford, Abingdon, í Oxfordshire og má sjá heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR: Ólafur Björn spilaði á 77 höggum og er í 75. sæti eftir 1. dag. Ólafur Björn fékk 1 fugl (á 14. braut), 3 skolla og slæman skramba á 10. braut. Ólafur Már hins vegar lék á 83 höggum og er í 109. sæti eftir 1. dag. Hann fékk ótrúlegan skramba á 1. braut (10 högg á par-4 braut) og 2 aðra skramba á 8. og 15. braut og skolla á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 19:00
Hver er kylfingurinn: Paul Lawrie?

Paul Stewart Lawrie, MBE, er skoskur kylfingur sem var fyrir sunnudaginn s.l. þ.e. 30. september 2012, best þekktur fyrir að sigra á Opna breska árið 1999. Á sunnudaginn var hann einn af 8 leikmönnum í Ryder Cup liði Evrópu 2012, sem vann sinn leik. Lawrie vann bandarískan keppinaut sinn, Tour Championship sigurvegarann 2012, Brandt Snedeker með stærsta mun allra sigurleikja Evrópu, 5&3. Vipp hans beint ofan í holu á 4. braut Medinah golfvallarins er eitt fallegasta höggið í allri keppninni. Hann vann dýrmætt stig fyrir lið Evrópu og þáttur hans gleymist ekki svo glatt. Lítið fer fyrir þessum hógværa skoska atvinnu kylfingi. Hver er hann? Paul Lawrie fæddist í Aberdeen Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 18:00
GK: Björn Jónsson og Helgi Benedikt Þorvaldsson sigruðu í styrktarmóti Tinnu

Laugardaginn 29. september s.l. kepptu 45 lið í styrktarmóti Tinnu Jóhannsdóttur. Spilað var með Texas scramble formi. Úrslit í mótinu voru eftirfarandi: 1. Sæti. (FÉLAGAR) 67 Högg 65 Nettó Björn Jónsson GR & Helgi Benedikt Þorvaldsson GKG 2.Sæti. (AA GOLF) 69 Högg 66 Nettó Axel Þórir Alfreðsson GK & Sigríður Jensdóttir GK 3.Sæti.(ÉG ER ASNI) 68 Högg 67 Nettó Davíð Einar Hafsteinsson GMS & Rúnar Örn Jónsson GMS 4.Sæti.(GUNNERS) 68 Högg 67 Nettó Arnar Freyr Jónsson GN & Haukur Armin Úlfarsson GR Nándarverðlaun: 4. hola Magnús Arnarson GÚ 1,64 cm 6. hola Gylfi Þór Harðarsson GÁS 0,43 cm 10. hola Rúnar Örn Jónsson GMS 6,10 cm 16. hola Guðbrandur Sigurbergsson Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 16:30
GK: Bændaglíma Golfklúbbsins Keilis fer fram laugardaginn 6. október n.k.

Bændaglíma Golfklúbbsins Keilis fer fram n.k. laugardag 6. október 2012. Keppnisfyrirkomulag er 4 manna Texas Scramble og verða keppendur að skrá sig saman í holl. Allir eru ræstir út á sama tíma kl. 14:00. Nándarverðlaun eru veitt á 10. braut (Sandvíkinn). Veitingavagninn verður á ferðinni meðan á keppni stendur. Að móti loknu verður glæsilegur kvöldverður að hætti Brynju og að honum loknum er verðlaunaafhending. Um er að ræða grillveislu eins og Brynju er einni lagið. Eyjólfur Kristjánsson mætir á svæðið og tekur nokkur lög. Keilisfélagar eru hvattir til að fjölmenna og skrá sig tímanlega. Síðustu forvöð til að skrá sig eru á föstudaginn, 5. október kl. 13:00. Aðeins eru 90 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 16:00
EPD: Stefán Már varð í 44. sæti á Fulda EPD Tour Championship

Stefán Már Stefánsson, GR, tók þátt í Fulda EPD Tour Championship, í Þýskalandi, nú um helgina. Spilað var í Golf Club Hofgut Praforst í Hünfeld. Mótið virðist hafa fallið svolítið í skuggann af Ryder bikarskeppninni hjá golffréttariturum hér heima. Stefán Már spilaði á samtals 6 yfir pari, 222 höggum (73 75 74) og deildi 44. sætinu í mótinu með 2 öðrum, Tjeerd Staal frá Hollandi og Arwed Fischer frá Þýskalandi. Stefán Már varð í 31. sæti peningalista EPD-mótaraðarinnar með 6.656.07 evrur og Þórður Rafn Gissurarson, GR, sem líka hefir spilað á mótaröðinni varð í 78. sæti með € 2097,20. Fyrir 5 efstu sætin á peningalistanum var m.a. í boði kortið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Phill Hunter – 2. október 2012

Það er Phill Hunter, golfkennari í MP Golf Academy hjá Golfklúbbnum Oddi (GO) sem er afmæliskylfingur dagsins. Phill er breskur, fæddist 2. október 1964 og er því 48 ára í dag. Hann er kvæntur og á 1 strák. Phill hefir yfir 28 ára reynslu af golfkennslu. Á árunum 1983-1986 vann hann við Wath Golf Club og á árunum 1986-1988 við Grange Park Golf Club í Englandi. Hér á landi var Phill golfkennari hjá GR 1988-1991 og hjá GS 1992-1996 auk þess sem hann þjálfaði unglingalandsliðið á þessum árum. Phill og fjölskylda bjuggu síðan um 11 ára skeið í Þýskalandi þar sem hann var yfirgolfkennari við Golfclub Haus Kambach í Eschweiler. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 12:30
LET: Lorena Ochoa keppir á Lacoste móti Evrópumótaraðar kvenna

Næstkomandi fimmtudag hefst á golfvelli Chantaco klúbbsins í Saint-Jean-de-Luz, Aquitaine, í Frakklandi, Lacoste Ladies Open de France. Mótið stendur 4. -7. október 2012. Þess mætti geta að Chantaco golfklúbburinn er einkaklúbbur Lacoste veldisins, en þar ólst upp og æfði m.a. einn eiganda Lacoste í dag, Katherine Lacoste, meðan hún var enn í keppnisgolfi. Meðal stórfrétta vikunnar er að Lorena Ochoa hefir ákveðið að snúa sér aftur að keppnisgolfi – þ.e. hún mun spila í mótinu. Blaðafulltrúar LET tóku viðtal við Lorenu, þar sem hún sagði m.a. að ein ástæða þess að hún tæki þátt væri að Lacoste hefði verið einn af stærri styrktaraðilum hennar og þau hefðu beðið hana að taka þátt. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 11:30
Ryder Cup 2012: Óstundvísi Rory McIlroy og risaklukkan

José Maria Olazábal og restin af Ryder Cup liði Evrópu fengu gífurlegan skrekk á sunnudaginn. Það er einhvern veginn eitthvað sympatískt við þetta 🙂 Rory McIlroy var ekki með tímamismuninn á hreinu; vaknaði of seint og kom í Medinah Country Club aðeins 11 minútum fyrir rástíma hans og Keegan Bradley í tvímenningi sunnudagsins. Hann hefði átt þar að auki 5 mínútur og 1 sekúndu eftir rástímann – Bradley myndi hafa fengið að slá á undan …. en að loknum þeim tíma hefði fyrsti sigur Bandaríkjamanna verið í höfn þann daginn og það hefði svo sannarlega breytt landslaginu. Þetta eina stig, sem Rory hefði tapað með seinagangi sínum hefði getað kostað lið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2012 | 09:00
Ryder Cup 2012: Stricker að jafna sig eftir óskemmtilegt Ryder Cup mót 2012

Í Ryder og forsetabikarnum voru Tiger og Steve Stricker með frábæran feril fyrir Ryder bikars mótið í Medinah 6-0-2 (þ.e. 6 sigra og 2 töp). Nú um helgina gekk hins vegar ekkert upp hjá þeim félögum. Athyglin var sem fyrr öll á Tiger og því sem úrskeiðis fór hjá honum, en minna ritað um að Stricker skilaði ekki einu einasta stigi til bandaríska liðsins. Í Medinah bættist 0-0-4 á glæsilegan feril, sem nú er því 6-0-6 (þ.e. 6 sigrar 6 töp). Í tvímenningsleik Steve Stricker á móti Þjóðverjanum Martin Kaymer var allt jafnt milli þeirra á 16. holu og bandaríska liðið vantaði sárlega 1 stig til að lyfta Ryder bikarnum Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

