Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 15:25
Axel, Haraldur Franklín og Rúnar hefja keppni á HM áhugamanna í Tyrklandi á morgun

Íslenska karlalandsliðið í golfi sem skipað er þeim Axel Bóassyni GK, Haraldi Franklín Magnús GR og Rúnari Arnórssyni GK munu hefja leik á morgun á HM áhugamanna, mótið fer fram í Antalya í Tyrklandi. Á heimsmeistaramótinu (ensk. World Amateur Team Championships) er leikið um hinn eftirsóttu bikara, Einsenhower Trophy. Núverandi heimsmeistarar eru lið Frakklands, en mótið fór síðast fram í Argentínu 2010. Heimsmeistaramót áhugamanna, er liðakeppni þar sem hver þjóð sendir þrjá kylfinga til leik. Leiknar eru 72 holur eða fjórir 18 holu hringir og telja tvö bestu skorin eftir hvern hring, alls eru 72 þjóðir til leiks í karlaflokki. Um Eisenhower Trohpy sem er heitið á karlabikarnum er leikið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 14:45
Ólafur Björn á 73 og Ólafur Már á 79 á Frilford úrtökumótinu eftir 2. dag
Ólafur Björn Loftsson, NK og Ólafur Már Sigurðsson, GR, spiluðu í dag 2. hring á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina. Leikið er á golfvelli Frilford Heath golfklúbbsins í Frilford, Abingdon, í Oxfordshire og má sjá heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR: Ólafur Björn spilaði í dag á 73 höggum og er því samtals búinn að spila á 150 höggum (77 73). Ólafur Már bætti sig líka í dag, lék á 79 höggum og er samtals búinn að spila á 162 höggum (83 79). Golf 1 óskar þeim Ólafi Má og Ólafi Birni góðs gengis á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 14:00
Bandaríska háskólagolfið: Ragna Björk Ólafsdóttir varð í 3. sæti á Myrtle Beach Intercollegiate og St. Leo í 1. sæti!!!

Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG 2012 og golflið St. Leo og Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og The Royals golflið, the University of Queens in Charlotte spiluðu Myrtle Beach Invitational, á Sunset Beach í Norður-Karólínu. Mótið stóð dagana 1.-2. október 2012, þ.e. lauk í gær. Þátttakendur voru 84 frá 15 háskólum. Ragna Björk spilaði á glæsilegum 148 höggum (73 75) og deildi 3. sæti í mótinu. Hún var á 2.-3. besta skorinu í liði sínu; en liðsfélagi Rögnu Bjarkar, Laura Huertas var líka í 3. sæti. Golflið St. Leo varð í 1. sæti af 15 háskólum, sem þátt tóku. Glæsilegt!!! Næsta mót Rögnu Bjarkar verður á heimavelli þ.e. St. Leo Invitational Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 11:30
LEK: Ásgerður Sverris, Rúnar Svanholt og Bogi Nilson sigruðu á síðasta viðmiðunarmóti LEK
Laugardaginn s.l. 29. september 2012 fór fram síðasta viðmiðunarmót LEK 2012, á Garðavelli, á Akranesi. Þátttakendur voru 76. Allir voru ræstir út kl. 11 vegna næturfrosts. Það var frekar kalt þegar kylfingar hófu leik, flatir m.a. frosnar, en þó logn. Eftir því sem leið á daginn hlýnaði þó aðeins. Sjá má stöðuna í stigakeppnum LEK að lokinni keppni í MP-banka viðmiðunarmótum LEK 2012/v. 2013 með því að SMELLA HÉR: Helstu úrslit í síðasta viðmiðunarmóti LEK 2012 voru eftirfarandi: Konur 50+: Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 Alls Mismunur 1 Ásgerður Sverrisdóttir GR 3 F 38 39 77 5 77 77 5 2 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 10:30
Bandaríska háskólagolfið: Sunna varð í 17. sæti á Starmount Forest mótinu
Sunna Víðisdóttir, GR og Elon og Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG, tóku nú um helgina þátt í Starmount Forest mótinu í Norður-Karólínu. Gestgjafi var háskóli Berglindar. University of North Carolina, Greensboro. Þátttakendur voru 89 frá 16 háskólum. Sunna lauk keppni í 17. sæti ásamt einni annarri; stóð sig langbest að golfliði Elon. Hún spilaði á samtals á 10 yfir pari, 223 höggum (73 73 77). Elon, háskóli Sunnu varð í 9. sæti í liðakeppninni. Sunna spilar næst í Lady Pirate Invitational í Greenville, Norður-Karólínu, 8.-9. október 2012. Berglind spilaði á samtals 19 yfir pari, 232 höggum (82 75 76). Berglind deildi 48. sæti með 3 öðrum kylfingum. Lið Berglindar, UNCG, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 10:00
Ryder Cup 2012: Rannsókn á ókvæðisorðum hreytt í lið Evrópu og kærestur þeirra í Medinah stendur yfir

Yfirmenn Ryder Cup eru að rannsaka meint ókvæðisorð sem beint var að evrópsku leikmönnunum í Ryder bikarnum og kærestum þeirra þ.á.m. kærestu Graeme McDowell, Kristin Stape. Kristin er bandarísk og var ein þeirra sem urðu fyrir verulegu aðkasti bandarískra aðdáenda í lokaleiknum á föstudeginum, þar sem léku Nicolas Colsaerts og Lee Westwood annars vegar og Tiger Woods og Steve Stricker, hins vegar. Eðli ókvæðisorðanna sem ausið var yfir betri helming G-Mac er óþekkt en parið var það sem hló síðast þegar Evrópa fyrir kraftaverk vann mótið og stakk þar með upp í háværa aðdáendur bandaríska liðsins. G-Mac hefir verið verið að deita innanhúshönnuðinn, Kristin Stapes í yfir ár, jafnvel og hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 09:30
Bandaríska háskólagolfið: Ari og Theodór Emil og golflið University of Arkansas at Monticello urðu í 13. sæti á Texoma Championship

Theodór Emil Karlsson, GKJ og Ari Magnússon, GKG, sem báðir stunda nám og spila golf með golfliði University of Arkansas at Monticello spiluðu 30.september – 2. október á Texoma Championship í Kingston, Oklahoma. Þátttakendur voru 77 frá 14 háskólum. Theodór Emil spilaði á samtals 242 höggum (76 84 82) og varð í 55. sæti. Hann lék langbest að golfliði Arkansas. Ari lék á samtals 252 höggum (89 82 81) og varð í 68. sæti. Hann var á 4. besta skori í golfliði Arkansas. Golflið The University of Arkansas at Monticello Devils varð í 13. sæti í liðakeppninni. Næsta mót þeirra Theodórs Emils og Ara er Millsaps College Invitational í Jackson, Mississippi, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 09:00
Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra varð í 8. sæti á Rose City Collegiate
Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og The University of San Francisco tók þann 1.-2. október þátt í Rose City Collegiate mótinu. Mótið fór fram í Langdon Farms GC, Aurora, Oregon. Þátttakendur voru 74 frá 13 háskólum. Eygló Myrra náði þeim glæsilega árangri að verða í 8. sæti, sem hún deildi með 2 öðrum!!!! Glæsilegt!!!! Eygló Myrra lék á samtals 10 yfir pari, 226 höggum (78 73 75). Næsta mót sem golflið The University of San Francisco tekur þátt í er Edean Ihlanfeldt Invitational, í Sahalee, Sammamish, Washington, dagana 8.-10. október n.k. Gestgjafi er University of Washington. Til þess að sjá úrslitin á Rose City Collegiate SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 08:00
Ryder Cup 2012: Lögreglumaðurinn sem keyrði Rory á völlinn tekur til máls

Það var Patrick Rollins, lögreglumaður í Lombard sem keyrði Rory McIlroy á Medinah golfvöllinn þannig að hann komst þangað í tíma. Hann hefir nú tekið til orða: „Ég var aðeins að sinna skyldustörfum,“ en hann hefir verið sakaður um að hafa verið of fljótur með Rory á völlinn og hafa orðið til þess að Rory vann dýrmætt stig. „Ryder bikarinn vannst á golfvellinum en ekki hraðbrautinni,“ hló Rollins „en ég fæ að heyra það að hafa ekki ekið honum á rangan golfvöll eða fyrir að hafa ekki látið springa hjá mér.“ „En trúið mér, ég myndi hafa gert þetta fyrir alla, bandaríska liðið ef þeir hefðu fyrir slysni verið seinir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 07:30
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór varð í 25. sæti á Jim Rivers Intercollegiate

Andri Þór Björnsson, GR og The Colonels, golflið Nichols State tóku þátt í Jim Rivers Intercollegiate mótinu. Spilað var í Squire Creek, Choudrant, Louisiana. Þátttakendur í mótinu voru 75 frá 14 háskólum. Andri Þór lék á samtals 7 yfir pari, 223 höggum (75 74 74) og varð í 25. sæti, sem hann deildi með 3 kylfingum. Andri Þór stóð sig langbest af golfliði Nicholls State. The Colonels urðu í 12. sæti í liðakeppninni. Næsta mót Andra Þórs og The Colonels er Crown Classic, í Lufkin, Texas 29.-30. október n.k. Til þess að sjá umfjöllun á heimasíðu Nicholls State um Andra Þór og Jim Rivers mótið SMELLIÐ HÉR: Til þess að Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

