Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 17:55
Einar Haukur varð í 25. sæti í úrtökumóti fyrir Nordea-mótaröðina í Svíþjóð

Einar Haukur Óskarsson, GK, tók þátt í úrtökumóti fyrir Nordea-mótaröðina í Svíþjóð, nú um helgina. Úrtökumótin fyrir Nordea mótaröðina voru 4 að þessu sinni og var spilað á Elisefarm, Rönnebäck, Ljunghusens GK og í Ystad. Einar Haukur tók þátt í Rönnebäck úrtökumótinu þar sem þáttakendur voru 51. Einar Haukur var á samtals 7 yfir pari , 223 höggum (78 74 71). Einar Haukur varð í 25. sæti og hlaut því miður ekki fullan keppnisrétt á mótaröðinni að þessu sinni. Til þess að sjá úrslitin úr Rönnebäck úrtökumótinu fyrir Nordea mótaröðina SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 15:00
LET: Stacey Keating sigraði á Lacoste mótinu í Frakklandi

Ástralska stúlkan Stacey Keating sigraði í dag á Lacoste Ladies Open de France í Chantaco Golf Club, Saint-Jean-de-Luz, Aquitaine, Frakklandi. Keating lék á samtals 14 undir pari, 266 höggum (62 71 69 64). Hún átti 1 högg á Díönu Luna, sem búin var að leiða mestallt mótið, en fyrir lokahringinn átti Díana 3 högg á Stacey. Þetta er 2. sigur Keating á aðeins 3 vikum og aðeins mánuði eftir að Keating var vísað úr móti á Opna breska kvennamótinu (lesa má um það nánar á heimasíðu Stacey sem komast má á með því að SMELLA HÉR: Keating fékk sigurbikarinn og koss frá José María Olazábal, fyrirliða Ryder bikarsins í ár. Díana Luna frá Ítalíu varð í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 13:00
Íslenska karlalandsliðið í 27. sæti á heimsmeistaramóti áhugamanna – Rúnar spilaði best lokahringinn

Í dag lauk heimsmeistaramóti áhugamanna í Antalya, í Tyrklandi. Íslenska karlalandsliðið lauk keppni á samtals 430 höggum og varð í 27. sæti ásamt liði Chile, Dana, Slóvaka og Íra, af 72 þátttökuþjóðum. Bandaríkjamenn unnu liðakeppnina á samtals 404 höggum og er Eisenhower Trophy því á leið til Bandaríkjanna. Axel Bóasson, GK, var á lægsta heildarskori í íslenska landsliðinu spilaði á samtals 214 höggum (69 74 71) og varð í 39. sæti í einstaklingskeppninni af 225 keppendum, sem er stórglæsilegur árangur. Haraldur Franklín Magnús, GR, lék á samtals 220 höggum (74 71 75) og varð í 81. sæti og Rúnar, GK, sem var á lægsta skori liðsins í dag, 70 glæsihöggum, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Fannar Ingi Steingrímsson – 7. október 2012

Það er Fannar Ingi Steingrímsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Fannar Ingi er fæddur 7. október 1998 og er því 14 ára í dag. Fannar Ingi er í GHG, þ.e. Golfklúbbi Hveragerðis. Fannar Ingi spilaði á Unglingamótaröð Arion banka s.l. sumar með góðum árangri. Hann varð í 2. sæti á 1. mótinu á Garðavelli, Akranesi og í 4. sæti á 2. mótinu á Þverárvelli. Strax í kjölfar mótsins á Þverárvelli hélt Fannar Ingi til Skotlands, á mót US Kids, en hann hefir keppt nokkuð erlendis í þeim mótum. Þar varð hann í 21. sæti þ.e. ofarlega fyrir miðju en þátttakendur voru 46 og það strax eftir 2. mót Unglingamótaraðar Arionbanka. Fannar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 11:00
Hver er kylfingurinn: Ryo Ishikawa?

Ryo Ishikawa (á japönsku: 石川 遼 Ishikawa Ryo) fæddist 17. september 1991 í Matsubushi, Saitama, Japan og er því nýorðinn 21 árs. Ryo er líka kallaður „Hanikami Ōji“ (þ.e. feimni prinsinn), í heimalandi sínu Japan. Áhugamannsferill Ryo Þann 20. maí 2007 varð Ishikawa yngstur til að sigra á almennu móti á japanska PGA þegar hann sigraði á the Munsingwear Open KSB Cup aðeins 15 ára og 8 mánaða. Hann keppti sem áhugmaður og þetta var fyrsta mótið sem hann tók þátt í á japanska PGA. Hann átti 1 högg á hæst rankaða japanska kylfing þess tíma, Katumasa Miyamoto. Sá sem var efstur á heimslistanum og tók þátt í mótinu var Toru Taniguchi, sem varð Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 10:00
PGA: Hápunktar og högg 3. dags á JT Shriners Hospitals for Children Open

Það eru þeir Jonas Blixt frá Svíþjóð, Bandaríkjamaðurinn Ryan Moore og Brendan de Jonge frá Zimbabwe, sem leiða eftir 3. dag Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open, sem fram fer á TPC Summerlin golfvellinum í Las Vegas. Það er mjög líklegt að það verði einhver af þeim 3 sem stendur uppi sem sigurvegari í kvöld því allir eru þeir búnir að spila á samtals 19 undir pari og hafa 5 högga forystu á þá sem næstir koma. Blixt og de Jonge héldu blaðamannafund eftir 3. hring, en myndskeið af broti þess fundar má sjá með því að SMELLA HÉR: Myndskeið frá blaðamannafundinum með Ryan Moore má sjá með því að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 08:50
Asíutúrinn: KJ Choi sigraði á CJ Invitational

Í Nine Bridges Golf Club á Jeju eyju í Kóreu fór dagana 4.-7. október fram CJ Invitational þar sem gestgjafi var KJ Choi. Mótinu lauk fyrr í morgun. Klúbburinn hefir yfir að ráða golfvelli sem talinn er meðal 100 bestu í heimi – þetta er keppnisvöllur og almenningi einungis veittur takmarkaður aðgangur til að spila hann. (Til þess að komast á glæsilega heimasíðu klúbbsins SMELLIÐ HÉR: ) Úrslitin urðu þau að gestgjafinn KJ Choi, frá Kóreu, sigraði í mótinu á samtals 15 undir pari, 269 höggum (69 65 68 67). Í 2. sæti varð nýliðinn á PGA Tour og landi Choi, Bae Sang-Moon á 13 undir pari, 271 höggi (69 68 66 68). Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 07:00
Ryder Cup 2012: Jason og Amanda Dufner best klædd af Ryder Cup liði Bandaríkjanna í Gala dinnernum

Það er vart hægt að trúa því að nú skuli vera vika liðin frá Ryder bikarnum og ævintýralegri framgöngu og sigri liðs Evrópu í dag fyrir viku. Fyrr en varir verða jólin komin og nýtt ár og það eina góða við það hversu fljótt tíminn líður er að vorið nálgast óðfluga og þar með nýtt golftímabil 2013. Það voru margir þættir hins gríðarumfangsmikla Ryder bikars móts sem hlutu takmarkaða umfjöllun, m.a. Gala Dinerinn sem alltaf er boðið til áður en mótið hefst. Þar koma stórstjörnur beggja liða fram með eiginkonur og kærestur upp á arminn og er mikið spáð í klæðaburð kylfinga og þeirra, sem þeim fylgja. Í óopinberri könnun, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2012 | 22:55
PGA: Þrír deila forystu fyrir lokahring JT Shriners Hospitals for Children Open

Bandaríkjamaðurinn Ryan Moore, Svíinn Jonas Blixt, og Brendan de Jonge frá Zimbabwe deila forystunni fyrir lokahring Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open. Allir eru þeir á 19 undir pari, 194 höggum; Blixt (64 64 66); de Jonge (62 66 66) og Ryan Moore (61 68 65). Í 4. sæti eru Bandaríkjamennirnir Jimmy Walker og Tim Herron 5 höggum á eftir forystumönnunum, þ.e. á samtals 14 undir pari, 199 höggum. Í 6. sæti eru 4 kylfingar þ.á.m. Ástralinn Jason Day á samtals 12 undir pari. John Daly átti afleitan hring upp á 86 högg og er í síðasta sæti þeirra, sem komust í gegnum niðurskurð – Ótrúleg sveifla að fara úr 63 höggum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2012 | 17:20
Golfgrín á laugardegi

Dómarinn við ákærða: „Allt í lagi, þú ert búinn að útskýra að dauðsfall eiginkonu þinnar hafi verið af völdum óhappatilviljunar og að Titleist boltinn, sem réttarlæknirinn gróf úr höfuðkúpu hennar hafi grafist þar vegna keðju óheppilegra kringumstæðna, sem leitt hafi til dauða hennar. Því gastu líka gefið meira og minna trúverðugar skýringar á. En það sem ég hef enn ekki skilið er af hverju réttarlæknirinn fann líka Wilson Smart Core bolta í konu þinni?“ Ákærði: „Nú það var varaboltinn….“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

